Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 26
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég hef starfað við sölu á bygg-
ingarvörum í áratugi og sú reynsla
og þekking sem á þeim tíma hefur
áunnist nýtist mjög vel í starfi
mínu hjá Húsasmiðjunni. Enda er
hluti af starfinu að miðla af reynslu
og þekkingu,“ segir Eggert Gott-
skálksson, söluráðgjafi í glugga- og
hurðalausnum hjá Húsasmiðjunni.
Reynslumikið starfsfólk
„Húsasmiðjan er rótgróið fyrir-
tæki á íslenska byggingarvöru-
markaðnum, stofnað árið 1956,
sem er leiðandi á því sviði um land
allt. Viðskiptavinir okkar eru bæði
einstaklingar í framkvæmdum og
fagmenn, stórir sem smáir bygg-
ingarverktakar,“ greinir Eggert frá.
„Markmið Húsasmiðjunnar er
að veita framúrskarandi þjónustu,
bjóða upp á rétt vöruúrval og sam-
keppnishæft verð. Það er reynslu-
mikið starfsfólk í framlínunni og
hægt er að treysta á þekkingu þess
varðandi flestar byggingarlausnir.“
Í glugga- og hurðadeild Húsa-
smiðjunnar er áhersla lögð á að
finna sérsniðnar lausnir í samráði
við viðskiptavininn. „Fyrst og
fremst aðstoðum við einstaklinga
og fagmenn við að velja réttu
lausnina fyrir framkvæmdina.
Hvort sem þú ert að leita að ál-,
tré-, PVC- eða timburgluggum
og þakgluggum, þá höfum við
lausnina fyrir þig og þín verkefni –
hvort sem þau eru stór eða smá.“
Fyrir íslenskar aðstæður
Eggert segir strangar kröfur liggja
að baki vöruframboði Húsa-
smiðjunnar. „Allar okkar vörur
eru vottaðar og gæðaprófaðar
fyrir íslenskar aðstæður. Þá er
Eggert Gottskálksson segir mikil verðmæti fólgin í reynslu og þekkingu starfsfólks í glugga- og hurðadeild Húsasmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eggert segir
mikla áherslu
lagða á að bjóða
upp á fjölbreytt
og vandað
vöruúrval
sem uppfyllir
strangar kröfur
um íslenskar
aðstæður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Húsasmiðjan
vinnur eingöngu
með hágæða framleið-
endum sem eru með
áratuga reynslu af því að
selja vörur sínar á
íslenska markaðnum.
líka mikilvægt að reynsla sé af
vörunum á markaðnum og við
þær veðuraðstæður sem eru hér á
landi. Það er áratugalöng reynsla af
okkar vörum á íslenska markaðn-
um og er það mjög mikilvægt.“
Framleiðendur eru því valdir af
mikilli kostgæfni. „Húsasmiðjan
vinnur eingöngu með hágæða
framleiðendum sem eru með ára-
tuga reynslu af því að selja vörur
sínar á íslenska markaðnum.
Velfac og Rationel eru til að mynda
leiðandi á Norðurlöndunum í
framleiðslu á ál-, tré- og timbur-
gluggum,“ segir Eggert.
„Við bjóðum svo auðvitað líka
upp á Swedoor úti-, stál- og eld-
varnarhurðir sem allt eru leiðandi
vörur á sínu sviði. Loks bjóðum
við Aradas PVC glugga og hurðir
sem reynst hafa vel við íslenskar
aðstæður, og svo mætti lengi
telja.“
Stærri gluggar og meiri birta
Eggert segist hafa orðið var við
ákveðna tískustrauma hvað
glugga snertir. „Ég myndi segja að
gluggar hafi stækkað hjá hönn-
uðum, það er að glerfletirnir eru
stærri en áður – enda æðislegt að
hafa gólfsíða glugga sem hleypa
dagsbirtunni inn. Þannig rými
eru yfirleitt bjartari og notalegri.
Stílhrein hönnun með einföldum
og skörpum línum virðist vera
það sem fólk vill, myndi segja að
það séu svona helstu tískustraum-
arnir.“
Þegar Eggert er spurður að því
hvort einhverjar nýjungar séu
væntanlegar nefnir hann nokkrar.
„Það eru þó nokkrar nýjungar
sem eru og hafa verið að koma á
markaðinn undanfarin misseri,
þar má telja loftventla í gluggum
sem hjálpa til við loftskipti í
húsnæðinu, þeir eru í glugga-
stykkjunum og gefa öndun sem
er mikilvægt þegar við erum að
horfa til heilbrigðara húsnæðis,“
útskýrir Eggert.
„Síðan eru rennihurðirnar frá
okkar framleiðendum búnar að
vera í mikilli framþróun í takt við
aukna notkun þeirra í nútíma hús-
næði. Einnig hefur lamabúnaður
með stoppurum til að festa glugga
og hurðaeiningar í opnun verið að
taka miklum breytingum til hins
betra,“ segir Eggert.
„Það er alltaf framþróun hjá
okkar framleiðendum enda
erum við að selja frá nokkrum af
fremstu glugga- og hurðafram-
leiðendum á markaðnum sem
eru stöðugt að þróa og bæta sínar
vörur.“
Eggert hvetur þau sem eru í
framkvæmdum til að heimsækja
Fagmannaverslun Húsasmiðjunn-
ar í Kjalarvogi 12. „Verið velkomin
í glugga- og hurðadeildina í Fag-
mannaversluninni, við tökum vel
á móti ykkur.“
2 kynningarblað 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVIÐHALD FASTEIGNA