Fréttablaðið - 11.05.2021, Page 26

Fréttablaðið - 11.05.2021, Page 26
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ég hef starfað við sölu á bygg- ingarvörum í áratugi og sú reynsla og þekking sem á þeim tíma hefur áunnist nýtist mjög vel í starfi mínu hjá Húsasmiðjunni. Enda er hluti af starfinu að miðla af reynslu og þekkingu,“ segir Eggert Gott- skálksson, söluráðgjafi í glugga- og hurðalausnum hjá Húsasmiðjunni. Reynslumikið starfsfólk „Húsasmiðjan er rótgróið fyrir- tæki á íslenska byggingarvöru- markaðnum, stofnað árið 1956, sem er leiðandi á því sviði um land allt. Viðskiptavinir okkar eru bæði einstaklingar í framkvæmdum og fagmenn, stórir sem smáir bygg- ingarverktakar,“ greinir Eggert frá. „Markmið Húsasmiðjunnar er að veita framúrskarandi þjónustu, bjóða upp á rétt vöruúrval og sam- keppnishæft verð. Það er reynslu- mikið starfsfólk í framlínunni og hægt er að treysta á þekkingu þess varðandi flestar byggingarlausnir.“ Í glugga- og hurðadeild Húsa- smiðjunnar er áhersla lögð á að finna sérsniðnar lausnir í samráði við viðskiptavininn. „Fyrst og fremst aðstoðum við einstaklinga og fagmenn við að velja réttu lausnina fyrir framkvæmdina. Hvort sem þú ert að leita að ál-, tré-, PVC- eða timburgluggum og þakgluggum, þá höfum við lausnina fyrir þig og þín verkefni – hvort sem þau eru stór eða smá.“ Fyrir íslenskar aðstæður Eggert segir strangar kröfur liggja að baki vöruframboði Húsa- smiðjunnar. „Allar okkar vörur eru vottaðar og gæðaprófaðar fyrir íslenskar aðstæður. Þá er Eggert Gottskálksson segir mikil verðmæti fólgin í reynslu og þekkingu starfsfólks í glugga- og hurðadeild Húsasmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Eggert segir mikla áherslu lagða á að bjóða upp á fjölbreytt og vandað vöruúrval sem uppfyllir strangar kröfur um íslenskar aðstæður. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Húsasmiðjan vinnur eingöngu með hágæða framleið- endum sem eru með áratuga reynslu af því að selja vörur sínar á íslenska markaðnum. líka mikilvægt að reynsla sé af vörunum á markaðnum og við þær veðuraðstæður sem eru hér á landi. Það er áratugalöng reynsla af okkar vörum á íslenska markaðn- um og er það mjög mikilvægt.“ Framleiðendur eru því valdir af mikilli kostgæfni. „Húsasmiðjan vinnur eingöngu með hágæða framleiðendum sem eru með ára- tuga reynslu af því að selja vörur sínar á íslenska markaðnum. Velfac og Rationel eru til að mynda leiðandi á Norðurlöndunum í framleiðslu á ál-, tré- og timbur- gluggum,“ segir Eggert. „Við bjóðum svo auðvitað líka upp á Swedoor úti-, stál- og eld- varnarhurðir sem allt eru leiðandi vörur á sínu sviði. Loks bjóðum við Aradas PVC glugga og hurðir sem reynst hafa vel við íslenskar aðstæður, og svo mætti lengi telja.“ Stærri gluggar og meiri birta Eggert segist hafa orðið var við ákveðna tískustrauma hvað glugga snertir. „Ég myndi segja að gluggar hafi stækkað hjá hönn- uðum, það er að glerfletirnir eru stærri en áður – enda æðislegt að hafa gólfsíða glugga sem hleypa dagsbirtunni inn. Þannig rými eru yfirleitt bjartari og notalegri. Stílhrein hönnun með einföldum og skörpum línum virðist vera það sem fólk vill, myndi segja að það séu svona helstu tískustraum- arnir.“ Þegar Eggert er spurður að því hvort einhverjar nýjungar séu væntanlegar nefnir hann nokkrar. „Það eru þó nokkrar nýjungar sem eru og hafa verið að koma á markaðinn undanfarin misseri, þar má telja loftventla í gluggum sem hjálpa til við loftskipti í húsnæðinu, þeir eru í glugga- stykkjunum og gefa öndun sem er mikilvægt þegar við erum að horfa til heilbrigðara húsnæðis,“ útskýrir Eggert. „Síðan eru rennihurðirnar frá okkar framleiðendum búnar að vera í mikilli framþróun í takt við aukna notkun þeirra í nútíma hús- næði. Einnig hefur lamabúnaður með stoppurum til að festa glugga og hurðaeiningar í opnun verið að taka miklum breytingum til hins betra,“ segir Eggert. „Það er alltaf framþróun hjá okkar framleiðendum enda erum við að selja frá nokkrum af fremstu glugga- og hurðafram- leiðendum á markaðnum sem eru stöðugt að þróa og bæta sínar vörur.“ Eggert hvetur þau sem eru í framkvæmdum til að heimsækja Fagmannaverslun Húsasmiðjunn- ar í Kjalarvogi 12. „Verið velkomin í glugga- og hurðadeildina í Fag- mannaversluninni, við tökum vel á móti ykkur.“ 2 kynningarblað 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVIÐHALD FASTEIGNA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.