Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 28
VELJUM ÍSLENSKT
KOMINN TÍMI
Á VIÐGERÐ?
bmvalla.is
Við eigum réttu viðgerðarblönduna
hvert sem verkefnið er, úti sem inni.
Veldu umhverfisvænar gæðavörur,
framleiddar fyrir íslenskar aðstæður.
Smiðjuvegi 11
575-0000
Eins þáttar Polyurethane lím
og þéttikítti með góðri teygju
sem notað er fyrir láréttar og
lóðréttar fúgur. Góð binding
við flest byggingarefni s.s.
timbur, flísar, steypu, málm,
gler og fl.
Límkítti 11FC
4 kynningarblað 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVIÐHALD FASTEIGNA
Viðhald fasteigna er mikilvægt
öllum húseigendum og að mörgu
þarf að huga. Reynir Kristinsson,
húsasmíðameistari og skoðunar-
maður fasteigna, segir mikilvægt
að grípa strax inn í ef skemmdir
láta á sér kræla. Það spari hús-
eigendum stórfé í viðgerðum og
oft þurfi ekki mikið til.
thordisg@frettabladid.is
„Almennt viðhald húsa felst helst
í þaki, þakrennum, gluggum og
ytri kápu hússins; að passa upp á
málningu, glugga og gler og halda
því við,“ segir Reynir Kristinsson,
húsasmíðameistari og skoðunar-
maður fasteigna hjá Fasteigna-
skoðun.
„Ef málning er byrjuð að flagna,
eða komnir eru rakablettir í veggi
utanhúss, þarf að rífa það upp,
gera við og mála að nýju. Eins með
gluggana; að gæta þess að allt sem
gluggum viðkemur sé vel og rétt
unnið, að grunnað sé undir þá
og þeir séu þurrir. Þá kalla dökk-
málaðir gluggar alltaf á meira
viðhald því dökk málning flagnar
auðveldar af, hún dregur í sig meiri
hita, þornar og springur fyrr. Þá
þarf alltaf að hraða viðgerðum á
sprungum sem myndast í veggjum
utanhúss og mjög mikilvægt að
ekki þrífist mosi í sprungunum, því
þar sem mosi er, þar er raki.“
Ekki má mála yfir loftbólur
Innanhúss þarf ekki síður að passa
vel upp á glugga og sprungur í
veggjum.
„Á milli glerja er mismunandi
loftrými og getur þá hélað inn á
glugga. Þá þarf að passa að þurrka
úr glugganum sem annars verður
blautur, málningin flagnar af,
tréverkið fúnar og ryð kemst í
ramma glersins þegar það nær ekki
öndun,“ upplýsir Reynir.
Sjáist loftbóla á máluðum vegg
innandyra, er það merki um að raki
komist í gegnum múrinn.
„Þá þarf að hreinsa það, opna og
láta þorna í minnst tíu daga. Það er
ekki nóg að pússa niður loftbóluna
og mála yfir rakann því þá brýst
fram ný bóla áður en varir. Því
þarf alltaf að komast að uppruna
vandans.“
Alltaf mikilvægt að lofta vel út
Í viðhaldi fasteigna er mjög mikil-
vægt að koma í veg fyrir allan raka
í húsnæði.
„Helsta vandamálið sem við
sjáum í dag eru raka- eða myglu-
blettir í loftum, þar sem kulda brú
er innanhúss, en það er munur á
hita og kulda. Í kuldabrúnni safn-
ast fyrir sót af kertum, ló og fleira
sem veldur myglu ef ekki er loftað
út reglulega. Það er aðalástæðan
fyrir myglu og því þarf alltaf og
skilyrðislaust að opna glugga og
lofta vel út,“ segir Reynir og minn-
ist æskuáranna þegar foreldrar
hans komu reglulega inn í herbergi
til að segja honum að opna glugg-
ann og viðra út innilokað óloftið.
„Í dag kemur maður iðulega í
herbergi krakka sem sitja dagana
langa í tölvum og með lokaða
glugga. Því þarf að herða á þessu
með gluggana eins og í gamla daga,
til að koma í veg fyrir skemmdir
á húsnæði vegna myglu og brýna
fyrir börnum að lofta sem mest út.“
Eftirlit með viðhaldi aðkallandi
Reynir segir aldrei of oft brýnt
fyrir húseigendum að passa upp á
öndun í húsum sínum, hvort sem
það er innanhúss eða í þaki.
„Menn eru að klæða hús sín og
loka fyrir öndun í þaki og þá leitar
hiti upp og raki myndast í geymslu-
lofti eða skriðlofti. Við það myglar
og fúnar þakið og saggi myndast
í því. Því er aðkallandi að láta
þak anda sérstaklega vel, og það
á að vera kalt í þakrýmum,“ segir
Reynir.
Hann leggur áherslu á gott eftir-
lit með viðhaldi bygginga.
„Við sjáum alltof oft heilu blokk-
irnar fá ný þök og þar sem ekki eru
teknar túður upp úr þakinu, og
jafnvel klóaktúður eru þá settar
undir þakið og inn í rýmið. Það
er auðvitað ávísun á myglu, óloft
og skemmdir. Fólk verður að leita
sér ráðgjafar í stærri verkefnum,
eins og með framkvæmdum og
viðhaldi fjölbýlishúsa. Á Íslandi er
ekki sama veðrátta og í Póllandi
eða á Spáni og byggingarverka-
menn sem vinna við húsbyggingar
hér á landi gera eðlilega hlutina
eins og þeir eru vanir heima. Það
sjáum við oft.“
Ástandsskoðun víða skylda ytra
Reynir hefur í árafjöld kallað eftir
því að seljendur láti fara fram
ástandsskoðun á eignum sínum
áður en þær fara í sölu, eins og gert
er í nágrannalöndunum.
„Erlendis geta húseigendur ekki
selt eignir sínar nema fá ástands-
skoðun fyrst og ég tel að það ætti að
vera í lögum að skylda húseigendur
hér á landi til að láta skoða eignir
áður en þeir selja þær. Þá liggur
allt fyrir og kaupendur ganga að
vottuðu ástandi eignarinnar,“ segir
Reynir.
Hann hefur ekki tölu á hversu
mörgum stórslysum hann hefur
afstýrt með því að gera ástands-
skoðun fyrir þá sem eru í fasteigna-
leit.
„Ég mæli alltaf með ástands-
skoðun, sérstaklega í eldri húsum.
Með nýjum eignum heldur bygg-
ingarstjóratrygging í fimm ár og
þótt fólk fari með frænda sinn sem
er smiður að skoða eldri eign er
ábyrgðin þeirra og það fær ekki
skýrslur um ástandið. Leikmenn
eiga ekki gott með að glöggva sig á
ástandi eigna né hvernig viðhaldi
hefur verið háttað, eða gríðar-
legum kostnaði sem felst í því sem
getur komið óvænt upp á, en með
ástandsskoðun hverfa þessi vanda-
mál í afsali og í 90 prósentum til-
vika veit fólk hverju það tekur við.“
Gott viðhald gefur vel af sér
Ástandsskoðun er byggð á sjón-
mati, nema þess sé óskað að nánari
skoðun fari fram.
„Augað nemur til dæmis ekki
raka eða myglu undir parketi, en ég
get séð ef mygla er komin upp um
kverklista og ef hiti eða kuldabrú
og raki er undir með hitamyndavél.
Við sjáum ótrúlegustu hluti og þótt
ekki sé hæg að staðfesta myglu
nema að rífa upp gólfefni getum
við upplýst kaupendur um að
slíkt kæmi ekki á óvart. Fólk þarf
alltaf að staldra við og hugsa. Sjá
til dæmis hvort búið sé að kítta
í glugga og mála yfir, eða hvort
gluggar séu fúnir. Það er einfald-
lega ekki hægt í hraða dagsins að
skoða aðeins eina íbúð og ætla sér
að kaupa hana á staðnum,“ segir
Reynir.
Dýrustu eign húseigenda þurfi að
gæta vel og oft þarf ekki mikið til.
„Fólk er til dæmis alltof latt við
að hreinsa rusl úr þakrennum sem
veldur því að vatn flæðir út fyrir
og veldur skemmdum á húsinu,
ryði, sprungum og skemmdum
á málningu. Það eitt að nenna að
hreinsa lauf úr rennunni getur því
sparað milljóna viðgerð seinna
meir. Því ættu húseigendur alltaf
að reyna að laga áður en ástandið
versnar. Og eins og með bílinn þarf
að þrífa húsið, skola af því drullu,
laga, bletta og mála. Ef viðhald er
gott færðu meira fyrir húsið og
sparar stórfé í viðgerðir.“
Ástandsskoðun ætti að vera
skylda fyrir sölu fasteigna
Reynir Kristinsson húsasmíðameistari hefur komið í veg fyrir mörg slys með ástandsskoðun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON