Fréttablaðið - 11.05.2021, Síða 42

Fréttablaðið - 11.05.2021, Síða 42
Á 110 ára afmæli Knattspyrnu- félagsins Vals hefur aðalstjórn ákveðið að útnefna fjóra ein- staklinga sem heiðursfélaga. Nafnbótin „Heiðursfélagi í Knattspyrnufélaginu Val“ er æðsta viðurkenning sem veitt er félagsmönnum. Fram til þessa hafa fjórtán ein- staklingar hlotið útnefninguna en fyrstu heiðursfélagarnir voru séra Friðrik Friðriksson og Guðbjörn Guðmundsson. Þeir voru útnefndir þann 11. maí 1931. Á 100 ára afmæli félagsins bætt- ust þrír heiðursfélagar í hópinn; Jón Gunnar Zoëga, Pétur Sveinbjarnar- son og Ægir Ferdinandsson. Tveir af fjórtán heiðursfélögum Vals eru á lífi. Viðurkenningu þessa hljóta aðeins þeir einstaklingar sem hafa sinnt fjölbreyttum, ósérhlífnum störfum fyrir félagið um áratuga skeið og hafa í starfi sínu stuðlað að ákvörðunum sem hafa markað framfaraskref fyrir Knattspyrnu- félagið Val. Eftirtaldir einstaklingar bætast í hóp heiðursfélaga á 110 ára afmæli Vals: Grímur Sæmundsen Grímur lék knattspyrnu með Val frá sex ára aldri og samtals um 300 meistaraflokksleiki á árunum 1974-1985, lengst af sem vinstri bak- vörður og fyrirliði í sigursælu liði. Hann varð fjórum sinnum Íslands- meistari og þrisvar bikarmeistari. Grímur var formaður knattspyrnu- deildar árið 1999- 2002 og formaður félagsins frá 2002-2009. Undir formennsku Gríms var lagður grunnur að þeirri miklu uppbyggingu, íþróttamannvirkja og síðar annarra mannvirkja, sem hefur átt sér stað á síðustu árum, auk endurskipulagningar á fjárhag félagsins. Frá árinu 2012 hefur Grímur verið formaður stjórnar Valsmanna en félagið er mikilvægur bakhjarl Vals í uppbyggingu fasteigna og allri starfsemi. Halldór Einarsson Halldór átti farsælan feril með yngri flokkum Vals í knattspyrnu sem náði hámarki í 2. flokki þegar Valur bar sigur úr býtum í öllum leikjum. Síðar varð hann Íslands- meistari með meistaraflokki 1966, 1967 og 1978 og lék sem miðvörður í hinum sögufræga leik gegn Benfica árið 1968. Þegar ferlinum lauk varð hann liðsstjóri meistaraflokks og lykilleikmaður í 1. flokki. Halldór átti frumkvæðið að skipulagi eldri félaga í fótbolta (old-boys) og árið 1983 var hann hugmyndasmiðurinn að fyrsta herrakvöldi íþróttafélaga á Íslandi. Hann var formaður körfuknatt- leiksdeildar Vals árið 1980 þegar Valur vann öll mótin fjögur og hefur verið virkur í Valskórnum síðan 1995. Halldór hefur verið formaður fulltrúaráðs Vals síðan 1998 og var formaður stjórnar um endurbygg- ingu Fjóssins. Þá situr hann í stjórn Valshjartans. Róbert Jónsson Róbert hóf langan og farsælan feril sem knattspyrnuþjálfari árið 1959 þegar hann stýrði 5. flokki drengja. En frá árinu 1964 þjálfaði hann yngri flokka Vals í rúm tuttugu ár og því má segja að hann eigi mestan heiður af árangri þeirra knatt- spyrnumanna sem slógu í gegn með Val, landsliðinu og erlendum liðum næstu áratugina. Róbert var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í eitt ár og þjálfaði meistara- flokk kvenna sömuleiðis í eitt ár. Hann var lengi formaður ungl- ingaráðs og sat í fyrstu nefndinni um Valsdaginn. Samhliða þjálfun dæmdi hann nánast daglega að Hlíðarenda því hann tók knatt- spyrnudómarapróf 1962 og dæmdi fyrir Val til ársins 1988. Róbert var stjórnarmaður í handknattleiks- deild í þrjú ár og hefur látið sig flest málefni Vals varða. Reynir Vignir Á yngri árum lék Reynir knatt- spyrnu með Val og hampaði nokkrum Íslandsmeistaratitlum en varð fljótlega að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Á árunum 1994-2002 var hann formaður Vals og hefur enginn annar setið lengur í formannsstóli. Reynir Vignir leiddi viðræður Knattspyrnufélagsins Vals við Reykjavíkurborg um breytta landnýtingu á Hlíðarenda. Þær viðræður leiddu til upphafs endurskipulagningar fjármála Vals og uppbyggingu nýrra íþrótta- mannvirkja að Hlíðarenda. Reynir Vignir hefur tekið að sér fjölda verkefna fyrir félagið, til að mynda formennsku í afmælisnefnd á 100 ára afmæli félagsins. Fjórir nýir heiðursfélagar Vals Fjórir nýir heiðursfélagar Vals, frá vinstri eru Grímur Sæmundsen, Róbert Jónsson, Halldór Einarsson og Reynir Vignir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Finnur Freyr Stefánsson náði gríðarlega góðum árangri sem þjálfari meistaraliðs KR í körfu- bolta en undir hans stjórn vann liðið alls fimm Íslandsmeistara- titla á jafn mörgum árum. Finnur segir Valsara hafa tekið sér opnum örmum og að hann sé með metnaðarfull markmið fyrir meistaralið Vals í körfu- boltanum. Finnur lýsir sér sem forföllnum íþróttaáhugamanni sem er fæddur og uppalinn í Reykjavík líkt og foreldrar hans og foreldrar þeirra. „Ég bjó fyrstu tólf árin í Þingholt- unum, nánar tiltekið í Miðstræti, en flutti svo á Melana vestur í bæ. Um það leyti byrjaði ég að æfa körfubolta með KR og þá varð ekki aftur snúið. Núna er ég búsettur í Mosfellsbæ með konunni minni og gleðigjöfunum okkar Elísu Guð- rúnu og Höskuldi Hrafni.“ Kominn tími á breytingar Það vakti mikla athygli þegar Finnur gekk til liðs við Val fyrir um þremur árum en hann greinir frá því að eftir um tuttugu ár í þjálfun í Vesturbænum hafi hann fundið fyrir því að kominn væri tími á breytingu. „Síðustu árin voru ævintýri líkust en ásamt því að vera að þjálfa meistaraliðið voru sumrin undirlögð með landsliðinu og orkan var einfaldlega búin á tanknum hjá mér. Það var því gott að geta tekið þá ákvörðun sjálfur að stíga til hliðar. Einhvers staðar þurfti ég svo að finna mér vinnu og þegar Ágúst Björgvinsson stakk upp á að ég kæmi í yngri flokkana í Val ákvað ég að slá til. Viðtökurnar voru góðar frá fyrsta degi enda frá- bært fólk sem starfar í Valsheimil- inu. Ég tengdist strax vel þjálfur- unum í öllum deildum í félaginu og var það ekki síst sá félagsskapur sem varð þess valdandi að ég ákvað að koma til baka í Val eftir Danmerkurdvölina.“ Sterkur kjarni og heild Þegar Finnur er spurður að því hvað þurfi til þess að ná góðum árangri í körfuboltanum nefnir hann nokkur mikilvæg atriði. „Ég held að það sé það sama og í hinum liðsíþróttunum. Það þarf að hafa sterkan kjarna öflugra leikmanna sem myndar hryggjarstykkið í liðinu. Utan um kjarnann verður svo að vera blanda af góðum leik- mönnum og sterkum karakterum. Saman myndar þetta eina heild og því sterkari sem þessi heild er, því betri verður liðið og því líklegra er að árangur náist. Það eru yfir- leitt sterku kjarnaleikmennirnir sem eru í sviðsljósinu en það eru ekkert síður hinir sem vinna alla sína vinnu bak við tjöldin sem eiga hrósið skilið.“ Topp 6 á næstu árum Finnur segir mikla eftirvæntingu ríkja eftir úrslitakeppninni. „Við erum fyrst og fremst spenntir. Þetta er búið að vera langt og skrítið tímabil en blessunarlega fáum við að spila áfram körfubolta og tökum þátt í úrslitakeppninni í fyrsta skipti í 29 ár.“ Markmið Finns er skýrt. „Fyrir mér er stóra markmiðið að festa Val í sessi sem topp 6 félag í körfu- boltanum á næstu árum. Til þess þarf stöðugleika í leikmanna- hópnum og sterkt bakland en ekki síður að barna- og unglingastarfið blómstri og fari að skila sterkum uppöldum leikmönnum upp í meistaraflokkinn. Þegar félög ná þessum stöðugleika þá er yfirleitt stutt í að bikararnir fari á loft, en að sama skapi þegar þessi stöðug- leiki hverfur, þá er voðinn vís.“ Unglingastarf setið á hakanum Finnur telur að á sama tíma og barnastarf í íþróttum sé framúr- skarandi hér á landi mætti ýmis- legt betur fara í skólakerfinu hvað íþróttaiðkun unglinga snertir. „Ég trúi því að allt í heiminum sé í stöðugri framþróun, til dæmis var eini síminn í Miðstrætinu í gamla daga skífusími með snúru en núna eru allir með háþróaða síma sem eru jafnframt öflugar tölvur í vasanum. Íþróttirnar eru engan veginn undanskildar þess- ari framþróun. Úti um allan heim keppast þeir sem eru í forskoti við að halda því forskoti og þeir sem elta að þróa sig áfram til að ná þeim sem eru framar. Ég tel að við hér á Íslandi séum að bjóða upp á barnastarf á heimsmælikvarða sem er í sífelldri þróun en þegar kemur að unglingastarfinu höfum við ekki náð að þróa okkar starf nógu markvisst og róttækt áfram. Til þess að geta fylgt þjóðunum í kringum okkur þurfum við að finna leiðir til að láta unglingana okkar æfa meira og sérhæfðara á menntaskólaaldrinum og upp úr,“ segir Finnur. „Ýmsar leiðir hafa verið reyndar, til dæmis með morgunæfingum fyrir skóla, en með aukinni þekkingu á mikilvægi svefns og í ljósi þess að unglingar æfa oft seint á kvöldin vegna skorts á æfingaaðstöðu þá gætu slíkar morgunæfingar haft neikvæð áhrif til lengdar. Eina leiðin því til að geta aukið æfingamagn er því að koma íþróttaiðkuninni inn á skólatímann. Nú þegar hafa nokkrir framhaldsskólar starf- rækt almennar íþróttabrautir og margir skólar metið íþróttaiðkun nemenda sinna til eininga í stað hefðbundinnar íþróttakennslu.“ Aukið vægi í framhaldsskólunum Finnur segist þó vilja ganga enn lengra. „Ef einstaklingur á sér draum um að verða læknir þá getur viðkomandi farið á náttúru- fræðibraut til að auka líkurnar á að draumurinn rætist, ef einhvern dreymir um að verða verkfræðing- ur getur viðkomandi lagt áherslu á stærðfræði. Hins vegar ef draumur- inn er að verða afreksmaður í sinni íþrótt verður einstaklingurinn að velja á milli þessa að geta æft jafn mikið og keppinautarnir frá öðrum þjóðum eða að sinna skól- anum. Þessu verðum við að breyta til að þróa áfram okkar starf.“ Hann er með ótal hugmyndir um það hvernig hægt sé að þróa þetta mikilvæga starf. „Ég sé fyrir mér að í framhaldsskólunum verði boðið upp á afreksbrautir þar sem kjarnaáfangar námsins styðji við bakið á nemendum sem dreymir um að verða afreksfólk. Þar sé til að mynda lögð áhersla á bóklegt nám í næringarfræði, þjálffræði, íþróttasálfræði, mark- miðasetningu og hugarþjálfun ásamt verklegu námi í styrktar- þjálfun í íþróttagrein viðkomandi í samvinnu við íþróttafélögin. Með slíkum afreksbrautum getum við aukið líkurnar á að ungling- arnir okkar geti náð árangri í sinni íþróttagrein en jafnframt útskrif- ast með stúdentspróf. Við vitum að að það eru bara örfáir sem verða afreksfólk en það á enginn að þurfa að hætta að eltast við drauma sína við það að fara í framhaldsskóla.“ Úrslitakeppnin í fyrsta skipti í 29 ár Fyrir mér er stóra mark- miðið að festa Val í sessi sem topp 6 félag í körfuboltanum á næstu árum, segir Finnur Freyr. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Viðurkenningu þessa hljóta aðeins þeir einstaklingar sem hafa sinnt fjölbreyttum, ósérhlífnum störfum fyrir félagið um áratuga skeið og hafa í starfi sínu stuðlað að ákvörðunum sem hafa markað fram- faraskref fyrir Knatt- spyrnufélagið Val. Ég tengdist strax vel þjálfurunum í öllum deildum í félag- inu og var það ekki síst sá félagsskapur sem var þess valdandi að ég ákvað að koma til baka í Val eftir Danmerkur- dvölina. Finnur Freyr Stefánsson 10 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVALUR 110 ÁR A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.