Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 45
Risto Izev hefur starfað sem hús-
vörður á Hlíðarenda í sex ár og er
að mati flestra algerlega ómiss-
andi starfskraftur sem kann að
láta þjónustuglaðar hendurnar
standa fram úr ermum.
Risto Izev er ættaður frá Strum
ica í Makedóníu og hefur búið
á Íslandi í 18 ár. Hann hóf störf
sem húsvörður í hlutastarfi á
Hlíðarenda fyrir sex árum eftir að
sérstaklega hafði verið mælt með
honum í starfið. „Það var bara fólk
sem þekkti til mín sem mælti með
mér og sagði að ég yrði frábær í
starfið,“ segir Risto. „Ég er mjög
ánægður hér á Hlíðarenda. Hér
er alltaf frábær stemning, nóg að
gera og mikið um að vera í húsinu
á kvöldin og yfir helgarnar. Það
er alltaf nóg af fólki í húsinu en þá
eru yngri flokkarnir að spila leiki,
taka þátt í mótum og síðan eru
Domino’s og Pepsideildin.“
Eins og fimm manneskjur
Hlutverk húsvarðarins er gífurlega
krefjandi og fjölþætt enda er Risto
eini húsvörðurinn á vakt í húsinu á
kvöldin. „Ég þarf eiginlega að vera
eins og fimm manneskjur,“ segir
hann hlæjandi, „þegar kallað er
á mig úr öllum áttum og síminn
hringir á meðan ég er að redda
hinu og þessu.“ Risto segist hafa
verið snöggur að koma sér inn í
starfið þrátt fyrir að hafa aldrei
unnið sem húsvörður áður. „Ég er
þannig gerður að ég vil alltaf gera
vel við alla og ef eitthvað kemur
upp, þá er ég snöggur að finna
lausn á vandanum og hleyp til ef
vantar upplýsingar og fleira. Ég er
á vöktum eftir klukkan fjögur á
daginn og um helgar. Þá vinn ég í
sjoppunni sem er líka afgreiðslu
og upplýsingamiðja hússins. Ég
svara þar öllum fyrirspurnum,
ef leikmenn koma til mín ef þá
vantar til dæmis að vita eitthvað, í
hvaða sal æfingar eða leikir eru og
fleira. Þá er ég líka reiðubúinn ef
foreldra vantar aðstoð með börnin
sín sem eru kannski á æfingu í
húsinu, eða ef fólk hefur fyrir
spurnir um leiki sem eru á döfinni
og fleira. Þá undirbý ég alla leiki
sem spilaðir eru á mínum vöktum,
raða öllum í klefa sem er oft flókið
þar sem mikill fjöldi leikmanna er
í húsinu um helgar. Síðan er margt
margt fleira sem gera þarf svo allt
gangi smurt fyrir sig. Ég er svo
alltaf seinastur út úr húsi á kvöldin
og læsi Hlíðarenda á eftir mér.“
Smellpassaði í starf húsvarðar
Risto Izev segist vera þannig gerður að hann vilji alltaf gera vel við alla og ef eitthvað kemur upp, þá sé hann
snöggur að finna lausn á vandanum og hleypur til ef vantar upplýsingar og fleira. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
Ég þarf eiginlega að
vera eins og fimm
manneskjur.
Risto Izev
Árið 2019 var sögulegt í kvenna-
boltanum á Íslandi þegar Valur
varð Íslands- og bikarmeistari og
deildarmeistari í handbolta og
körfubolta kvenna og Íslands-
meistari í fótbolta kvenna. Svali
H. Björgvinsson segir ómælda
vinnu og metnað liggja að baki
einu mesta afreki Vals frá upp-
hafi sem ólíklegt sé að verði
leikið eftir.
Svali er Valsari frá blautu barns
beini. „Ég er alinn upp í Hlíðunum
og Valsheimilið og Valsvöllurinn
voru mitt leiksvæði og annað
heimili. Eins og oft var á þessum
árum þá stunduðu krakkar margar
íþróttir og um tíma stundaði ég og
æfði allar greinar í Val. Ég kynnt
ist körfubolta í Val sennilega um
1012 ára aldur, þá var deildin
fámenn og ung.“
Óhætt er að fullyrða að Svali hafi
kolfallið fyrir körfunni sem hann
lýsir sem mikilli listgrein.
„Síðan þá hefur körfubolti og
Valur verið stór hluti af mínu lífi
og góð tilbreyting frá öðru amstri.
Ég hef keppt fyrir og þjálfað alla
aldurshópa, karla og konur í Val
og hef komið að uppbyggingu
Vals sem stjórnarmaður í 25 ár.
Ég er menntaður í sálfræði og
mannauðsstjórnun og hef verið
svo lánsamur að mér hefur verið
treyst fyrir mjög skemmtilegum
og krefjandi störfum og því hefur
Valur og körfubolti alltaf verið
ákveðinn griðastaður fyrir huga
og líkama. Sú gæfa fylgir mér að
kona mín styður þessa ástríðu vel
og börnin þrjú eru öll í Val sem
einfaldar og dýpkar alla umræðu á
heimilinu.“
Jafnrétti snýst um ákvarðanir
Það vakti mikla athygli þegar öll
kvennalið Vals sópuðu til sín fjölda
verðlauna árið 2019. Svali segir
árangurinn meðal annars stafa af
áherslum félagsins á jafnréttismál í
gegnum tíðina.
„Jafnrétti hefur verið ofarlega
hjá okkur í Val lengi og verið virk
umræða um það í stefnumótun
arumræðum sem ég man eftir allt
frá árinu 2000. Jafnrétti er vissu
lega fyrst og síðast spurning um
ákvarðanir frekar en einhver töfra
brögð eða djúpa greiningarvinnu.
Það var því einstaklega ánægju
legt fyrir okkur í Val að ná þeim
magnaða árangri að öll kvennalið
félagsins verða Íslandsmeistarar á
sama ári og handboltinn og körfu
boltinn bikarmeistari að auki, með
viku millibili. Þannig komu 5 af 6
stóru bikurunum í boltagreinum
kvenna að Hlíðarenda það árið.
Í mínum huga er þetta eitt mesta
afrek Vals frá upphafi og ekki mörg
önnur afrek félagsliða sem toppa
þetta ár hjá Val. Ég sé ekki fyrir
mér að þetta verði leikið eftir,“
segir Svali.
Samstaða milli deilda
„Þessu til viðbótar var kvenna
körfuboltaliðið valið lið ársins
í vali íþróttafréttaritara sam
hliða vali um íþróttamann ársins
2019, handboltaliðið í öðru sæti.
Körfuboltaliðið varð lið ársins hjá
Reykjavíkurborg og Margrét Lára
íþróttamaður Reykjavíkurborgar.
Þarna rann saman öll sú vinna
sem leikmenn og félagið hafði
lagt á sig lengi. Það er líka von
okkar og vissa að þetta afrek sé
eitt lóð á vogarskálar um jafnrétti
í íþróttum og framþróun kvenna
íþrótta á Íslandi,“ segir Svali
bjartsýnn.
„Það var líka einstakt að finna
samstöðu milli deilda og metnað
sem ríkti milli stelpnanna gera
þetta ár einstakt. Það var mikil
pressa á fótboltastelpunum undir
lok sumars að vinna Íslandsmótið,
það fannst mér geggjað augnablik.
Fyrir okkur sem komum að því að
stýra og vinna fyrir félag eins og
Val, þá er svo gefandi að sjá ungt
fólk ná markmiðum sínum og
gleðjast sannarlega. Það þarf ekki
meira vítamín þann daginn.“
Mission – ártal á vegginn
Að sögn Svala var þetta ár sérstak
lega eftirminnilegt í kvennakörfu
boltanum. „Fyrir okkur í körfu
boltanum í Val var árið 2019 að því
leyti einstakt að þetta voru fyrstu
titlar í kvennakörfunni. Ég og fleiri
höfum lengi horft á titlavegginn
okkar og saknað þess að sjá ekki
ártal á veggnum í kvennakörfunni.
Við kölluðum þetta verkefni; mis
sion – ártal á vegginn. Körfubolti
er yngsta deild Vals, 50 ára, og
kvennakörfubolti hefur ekki verið
stundaður markvisst í Val nema
í um 20 ár. Við vorum afskaplega
stolt af að eftir þessari uppbygg
ingu var tekið og að liðið okkar
hafi verið valið lið ársins.“
Svali segist vona að þetta sé
minning sem lifi alla tíð með þeim
stelpum sem þá voru í liðinu. „Ég
veit að fyrir mig og Val var þetta
mikil hvatning. Við erum ein
staklega stolt af þessu afreki. Hins
vegar hefur það komið mér á óvart
í þessari umræðu hvað margir,
einstaklingar og fyrirtæki, hafa
mikinn kraft í að gagnrýna þegar
miður gengur, en þessir sömu
aðilar og fyrirtæki eru ekki tilbúin
að koma að því að styrkja þá sem
sannarlega eru að reyna að sinna
jafnrétti og uppbyggingu, hjá Val
eða öðrum félögum. Því á bak við
svona afrek, eins og árið 2019 í Val,
er ómæld vinna.“
Móðir allra íþrótta
Ljóst er að Svali er einn mesti
körfuboltaunnandi sem Ísland
hefur alið af sér en áhugi hans á
íþróttinni á sér engin takmörk.
„Sjálfur hef ég mikinn áhuga á
íþróttum og tæknilega of mikla
ástríðu fyrir körfubolta. Ég er
búinn að spila, þjálfa, rannsaka og
lýsa körfubolta í rúm 40 ár og dag
lega sé ég nýja víddir í þessum fagra
leik. Fyrir mig er körfubolti jafn
vægisstilling og lífsgæði. Fyrir mér
er körfubolti móðir allra íþrótta og
drottning boltaleikjanna, en ég veit
að því eru ekki allir sammála.
En það er mikil uppsveifla með
körfubolta á Íslandi og ég skynja
að fleiri eru að átta sig á þessari
listgrein. Okkur í Val langar að
vera hluti af þessari uppsveiflu
og leggja okkar til, til að byggja
körfubolta upp enn frekar, öllum
til heilla,“ segir hann.
„Það magnaða við íþróttir og
þá útrás sem við fáum í gegnum
íþróttir er að endurgjöfin kemur
strax og er miskunnarlaus, sigur
eða tap. Gekk planið upp, eða ekki?
Á þeirri stundu og í því augna
blikinu skiptir sá leikur öllu máli.
Það er nánast öllu öðru fórnað, en
í stóra samhenginu skiptir hver
kappleikur sáralitlu máli. Það er
einnig magnað og erfitt að lýsa
með orðum, hvað það er gefandi
og hugarstillandi að koma að upp
byggingu íþróttafélags, þar sem
ungt fólk heimsækir drauma sína
og sækir næringu og þroska. Þegar
vel tekst til og markmið, stór eða
smá nást, og gleðin er óspillt. Þá er
markmiði Vals náð og endurgjöfin
til okkar sem sinnum starfinu er
fullkomin.“
Eitt mesta afrek Vals frá upphafi
Svali segir að körfubolti og Valur hafi verið stór hluti af hans lífi enda hefur hann þjálfað marga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það var mikil
pressa á fótbolta-
stelpunum undir lok
sumars að vinna
Íslandsmótið, það
fannst mér geggjað
augnablik.
Svali H. Björgvinsson
13ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 2021 VALUR 110 ÁR A