Fréttablaðið - 11.05.2021, Page 64

Fréttablaðið - 11.05.2021, Page 64
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Hauks Arnar Birgissonar n Bakþankar GLÆSILEGAR GJAFIR FYRIR BRÚÐHJÓNIN KYNNTU ÞÉR VINSÆLA GJAFABRÉFIÐ OKKAR LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK UM FJÓRÐUNGUR LANDS- MANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup. KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM Á VEFVERSLUN OKKAR GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ FJÖLBREYTT ÚRVAL AF RÚMFÖTUM EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNGUM BY BRINKHAUS Ve rð b irt m eð fy rir va ra u m in ns lá tta rv ill ur o g/ eð a br ey tin ga r. 44% 18-80 ára lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali* *Samkvæmt prentmælingum Gallup 20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * — Sími: 550 5050 soludeild@frettabladid.is NÁÐU TIL FJÖLDANS! Það eru breyttir tímar og fyrir miðaldra mann er erfitt að átta sig á síbreytilegu landslagi. Tölvur hafa leyst hefðbundna afþreyingu af hólmi og samfélagsmiðlar komið í stað persónulegra samskipta. Börn eru hætt að leika sér og horfa þess í stað á YouTube-myndbönd af öðrum leika sér. Mín eigin börn eru meira að segja farin að nota tölvuna til þess að horfa á myndbönd af öðrum leika sér – í tölvunni! Ég skil ekkert. Önnur hver manneskja er nú kölluð samfélagsmiðlastjarna og sífellt fleiri teljast áhrifavaldar, hvað svo sem það nú þýðir. Á hverja hefur þetta fólk eiginlega áhrif og hvers konar áhrif hefur það? Áhrifavaldarnir, sem flestir unnu í genalottóinu, sýna sjálfa sig á tilgangslitlum ljósmyndum með meitlaða og undarlega þjáningar- svipi, í fráleitum stellingum sem ekki er hægt að koma sér í án utan- aðkomandi aðstoðar – sem útskýrir kannski svipinn á þeim, þegar ég pæli í því. Mér verður oft hugsað til fólksins sem þarf að taka ljósmynd- irnar – það eru hinir bókstaflegu „fylgjendur“. Guð, hvað ég vorkenni þeim. Mikið hlýtur þeim að líða kjánalega þegar þeir hlaupa á eftir áhrifavaldi sínum tímunum saman, sem handstýrir þeim svo skerpan, lýsingin og sjónarhornið nái að fanga bakhluta áhrifavaldsins með hárréttum hætti. Bossa myndir virðast áhrifameiri en aðrar. En eflaust er þýðingarlaust að klóra sér í hausnum yfir þessu öllu eða pirra sig. Þessar nýju atvinnu- greinar eru komnar til að vera og verða sennilega lögverndaðar þegar fram líða stundir. Þangað til ætla ég að hafa áhyggjur af því hvaða stuttermabol ég vel fyrir bólusetningarsjálfuna. Sú verður lækuð. n Miðaldra á miðlum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.