Fréttablaðið - 11.05.2021, Síða 64
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Hauks Arnar
Birgissonar
n Bakþankar
GLÆSILEGAR
GJAFIR FYRIR
BRÚÐHJÓNIN
KYNNTU ÞÉR VINSÆLA
GJAFABRÉFIÐ OKKAR
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
UM FJÓRÐUNGUR LANDS-
MANNA SEFUR Á DÝNU
FRÁ SVEFN & HEILSU*
*Samkvæmt könnun frá Gallup.
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Á VEFVERSLUN OKKAR
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF
RÚMFÖTUM
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS
AF HEILSUDÝNUM
MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNGUM
BY BRINKHAUS
Ve
rð
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tta
rv
ill
ur
o
g/
eð
a
br
ey
tin
ga
r.
44%
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
Sími: 550 5050
soludeild@frettabladid.is
NÁÐU TIL
FJÖLDANS!
Það eru breyttir tímar og fyrir
miðaldra mann er erfitt að átta sig á
síbreytilegu landslagi. Tölvur hafa
leyst hefðbundna afþreyingu af
hólmi og samfélagsmiðlar komið í
stað persónulegra samskipta. Börn
eru hætt að leika sér og horfa þess
í stað á YouTube-myndbönd af
öðrum leika sér. Mín eigin börn eru
meira að segja farin að nota tölvuna
til þess að horfa á myndbönd af
öðrum leika sér – í tölvunni! Ég skil
ekkert.
Önnur hver manneskja er nú
kölluð samfélagsmiðlastjarna og
sífellt fleiri teljast áhrifavaldar,
hvað svo sem það nú þýðir. Á hverja
hefur þetta fólk eiginlega áhrif
og hvers konar áhrif hefur það?
Áhrifavaldarnir, sem flestir unnu
í genalottóinu, sýna sjálfa sig á
tilgangslitlum ljósmyndum með
meitlaða og undarlega þjáningar-
svipi, í fráleitum stellingum sem
ekki er hægt að koma sér í án utan-
aðkomandi aðstoðar – sem útskýrir
kannski svipinn á þeim, þegar ég
pæli í því. Mér verður oft hugsað til
fólksins sem þarf að taka ljósmynd-
irnar – það eru hinir bókstaflegu
„fylgjendur“. Guð, hvað ég vorkenni
þeim. Mikið hlýtur þeim að líða
kjánalega þegar þeir hlaupa á eftir
áhrifavaldi sínum tímunum saman,
sem handstýrir þeim svo skerpan,
lýsingin og sjónarhornið nái að
fanga bakhluta áhrifavaldsins með
hárréttum hætti. Bossa myndir
virðast áhrifameiri en aðrar.
En eflaust er þýðingarlaust að
klóra sér í hausnum yfir þessu öllu
eða pirra sig. Þessar nýju atvinnu-
greinar eru komnar til að vera
og verða sennilega lögverndaðar
þegar fram líða stundir. Þangað
til ætla ég að hafa áhyggjur af því
hvaða stuttermabol ég vel fyrir
bólusetningarsjálfuna. Sú verður
lækuð. n
Miðaldra á miðlum