Fréttablaðið - 03.06.2021, Page 10
Það var mikið heillaspor þegar Hornstrandir voru gerð-
ar að friðlandi árið 1975, ákvörðun sem allir Íslendingar
geta verið stoltir af, enda náttúran einstök á heimsvísu
og svæðið vinsælt til útivistar. Óvíða í Evrópu er hægt
að komast í slíka nálægð við náttúruna enda ekkert
sem rýfur kyrrðina nema fuglar og óvenjuspök tófa.
Á þessu 581 ferkílómetra friðlandi kannast f lestir við
Hornvík, Hornbjarg og Kálfatinda en einnig eru Hæla-
víkurbjarg, Hlöðuvík og Aðalvík vinsælir viðkomu-
staðir göngufólks. Víkurnar og firðirnir á austanverðum
Hornströndum eru þó ekki síður tilkomumiklar, eins og
Smiðjuvík, Furufjörður og Þaralátursfjörður. Skammt
frá lúrir nyrsti jökull Íslands, Drangajökull, en síðan er
í víkunum og fjörðunum fjöldi fossa og steypast þeir
tilkomumestu ofan í sjó. Einn slíkur verður á leið göngu-
fólks í grösugu dalverpi sem heitir Drífandisdalur. Í
honum er tær bergvatnsá, Drífandisdalsá, sem fellur í
sjó fram af þverhníptri bjargbrún. Heitir fossinn Dríf-
andi og þótt ekki teljist hann til frægustu fossa landsins
þá er hann sannkallað hnossgæti, líkt og umhverfið allt.
Ofar í dalnum eru síðan minni fossar með árbökkum
sem skreyttir eru hvönn. Þeir sem lausir eru við loft-
hræðslu geta fikrað sig út á steinklöpp Drífanda og
fylgst með vatninu steypast 50 m fram af þverhnípinu.
Fara verður varlega því klöppin getur verið sleip og í
henni er sprunga! Síðan er haldið upp hlíðarnar vestan
Smiðjuvíkurbjargs og þannig horft yfir Drífanda og
samnefndan dal úr fjarlægð.
Einfaldast er að komast í Drífandisdal frá Hornbjargs-
vita en þar rekur Ferðafélag Íslands vel búinn skála. Þar
er boðið upp á svefnpokagistingu, en frábært tjaldstæði
við snarbratta sjávarhamra freistar margra. Yfir hásum-
arið má komast í vitann á báti frá Norðurfirði á Strönd-
um, Ísafirði eða Bolungarvík. Annar valkostur er viku-
löng ganga með allt á bakinu frá Ófeigsfirði, en einnig
má hefja nokkurra daga göngu úr Jökulfjörðum, t.d. frá
Hesteyri eða Veiðileysufirði. Gangan frá Hornbjargsvita
að Drífanda tekur hins vegar aðeins hálfan dag báðar
leiðir og hentar jafnt ungum sem öldnum. Fyrir þá sem
vilja lengri göngu er tilvalið að kíkja einnig í Smiðjuvík
en þar var búið fram til 1933. Næstu daga má síðan nýta
í fleiri dagsgöngur frá Hornbjargsvita, t.d. yfir í Hornvík,
upp á Kálfatinda og út að Hælavíkurbjargi. n
Fossahnoss á
Hornströndum
Drífandi er tvímælalaust á meðal tilkomumestu fossa landsins og umhverfið einstakt. MYND/SIGRÚN HALLA
Ofan Drífanda eru fallegir fossar. MYND/TG
Drífandi er tilkomumikill séður úr austri. Hornbjargsviti með skála FÍ liggur 8 km norðvestar. MYND/TG
Ólafur Már
Björnsson,
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson,
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR