Fréttablaðið - 03.06.2021, Síða 16

Fréttablaðið - 03.06.2021, Síða 16
Skautafélag Akureyrar, SA, bar sigur úr býtum í öllum flokkum á síðasta keppnis- tímabili í íshokkí. Rúnar Freyr Rúnarsson á stóran þátt í árangrinum, en hann var að ljúka sinni fyrstu leiktíð sem þjálfari meistaraflokka félags- ins. hjorvaro@frettabladid.is ÍSHOKKÍ Uppskera tímabilsins hjá SA var allir titlar sem í boði voru, Íslandsmeistaratitlar í meistara- f lokkum karla og kvenna, U-18, U-16, U-14 a- og b-liða, ásamt báðum deildarmeistaratitlunum í meistara- flokkunum. Afrekið er algjörlega einstakt og er ekki síst eftirtektarvert í ljósi þess að allir leikmenn liðanna sem unnu titlana eru uppaldir í félaginu sem og Rúnar Freyr Rúnarsson, aðalþjálfari liðanna. Eftir langt og strangt keppnis- tímabil hefur Rúnar Freyr ákveðið að hætta störfum hjá SA og mun Finninn Sami Petteri Lehtinen snúa aftur til Akureyrar og taka við starfi hjá félaginu á nýjan leik. „Það þróaðist þannig síðasta sumar að Lehtinen kom ekki til baka og við vorum búnir að ráða Bandaríkjamann til þess að taka við liðunum. Hann kom svo ekki og þá var leitað til mín um að taka við starfinu tímabundið. Mér fannst ég ekki geta sleppt því tækifæri að stýra uppeldisfélaginu. Ég sé alls ekki eftir þeirri ákvörð- un, en þetta er gríðarlega mikil vinna og þar sem ég er í fullu starfi auk þess að vera tónlistarmaður þá ákvað ég að halda ekki áfram og færa keflið í góðar hendur Lehtinen á nýjan leik,“ segir Rúnar Freyr. „Vegna kórónaveirufaraldursins var ákveðið að fá ekki erlenda leik- menn til félagsins á síðustu leiktíð og traustið sett á uppalda leikmenn bæði hjá karla- og kvennaliðunum. Það er algerlega frábært að sjá uppskeru á góðu yngri flokka starfi hérna á Akureyri skila sér með þessum ríkulega árangri,“ segir þjálfarinn stoltur. Ætlaði að spila með syninum „Það var nú alltaf planið hjá mér að ná að spila meistaraflokksleik með syni mínum, en eftir að hann flutti til Svíþjóðar til þess að spila íshokkí þar ákvað ég að leggja skautana á hilluna og snúa mér að þjálfun,“ segir Rúnar Freyr, en auk þess að þjálfa hjá SA er hann þjálfari U-20 og U-18 ára landsliða Íslands. „Það er mikill uppgangur í íshokkí hér heima og f leiri leikmenn sem standa upp úr í yngri flokkunum. Þá erum við með íshokkíleikmenn sem eru um tvítugt sem hafa farið til Sví- þjóðar í nám á brautum sem bjóða upp á íshokkíþjálfun samhliða náminu. Það er bara hið besta mál og mun vonandi skila sér í öflugra landsliði innan tíðar,“ segir hann um framhaldið. Aðspurður um hvort ekki verði erfitt að hætta störfum hjá SA á þess- um tímapunkti segir Rúnar Freyr: Gildi félagsins skapa þennan árangur Íslands- meistaralið SA í kvennaflokki. MYND/ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON „Jú vissulega, en það er þægilegt að vita af því að félagið er í frábærum höndum. Mig langar að benda sér- staklega á hversu frábært starf Sarah Smiley hefur unnið hjá okkur, en hún er eins konar yfirþjálfari og sér um þjálfun yngri flokkanna. Það er ekki síst henni að þakka hversu öfluga leikmenn við eigum bæði karla- og kvennamegin. Svo hefur skapast rík hefð og góð gildi hjá félaginu, sem eiga að mínu mati stóran þátt í því hversu vel hefur gengið. Hér hjálpast allir að og vinna saman að þeim verkefnum sem þarf að sinna. Það er ómetanlegt að eiga jafn marga sjálfboðaliða og félagið býr að. Þar er mannauður sem er boðinn og búinn að verja mörgum klukku- stundum í hverri viku til þess að aðstoða við þau verk sem þarf að sinna,“ segir Rúnar Freyr. Langar að þjálfa áfram „Hvað mig sjálfan varðar þá hef ég áhuga á að vera áfram í starfi hjá Íshokkísambandi Íslands, en ég fékk ekki að stýra liðunum í neinum mótum þar sem þeim var frestað vegna faraldursins. Það verður hins vegar bara að koma í ljós hvort minna krafta verði óskað hjá sambandinu,“ segir þessi sigursæli þjálfari. Íshokkísamband Íslands breytti á dögunum starfi Vladimirs Kolek, sem verið hefur landsliðsþjálfari, í starf afreksstjóra, sem á að hafa heildarsýn yfir íshokkístarfið á Íslandi. Rúnari Frey líst vel á það og hlakk- ar til að vinna með Kolek, verði af samstarfi þeirra í framtíðinni. n Rúnar Freyr tók við starfi aðalþjálfara SA fyrir tímabilið og vann alla titla sem í boði voru. MYND/ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON Það er algerlega frá- bært að sjá uppskeru á góðu yngri flokka starfi hérna á Akureyri skila sér með þessum ríkulegra árangri. Rúnar Freyr Rúnarsson hjorvaro@frettabladid.is HANDBOLTI Hand boltadeild Fram hef ur fundið leikmann sem fær það verkefni að leysa Steinunni Björns- dóttur af hólmi. Steinunn sleit krossband í leik með íslenska landsliðinu í mars fyrr á þessu ári. Fram hefur samið við sænska leikmanninn Emmu Ols son um að leika með liðinu næstu tvö keppnis- tímabil. Olsson kemur í Safamýrina frá sænska liðinu Önn ereds. Þá tilkynnti Stjarnan í gær að félagið hefði fengið örvhentu skyttuna Lenu Margréti Valdi- marsdóttur til liðs við sig frá Fram. Lena Margrét hefur allan sinn feril leikið í Safamýrinni en færir sig nú í Garðabæinn. n Fram búið að fylla skarð Steinunnar  hjorvaro@frettabladid.is FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, FH, hafnaði í fjórða sæti í langstökki T37 á Evr- ópumeistaramóti IPC í Póllandi. Lengsta stökk Bergrúnar Óskar var 4,11 metrar en sameiginlegt Íslandsmet hennar og Matthildar Ylfu Þorsteinsdóttur í greininni er 4,27 metrar. Patrekur Andrés Axelsson keppti ekki í 400 metra hlaupi í gær vegna meiðsla. Hann er skráður í 100 metra hlaup á lokakeppnisdegi. Patrekur Andrés fór einnig út til f lokkunar og nú er ljóst að keppnis- flokkur T11 verður hans flokkur til frambúðar. Í dag er viðburðaríkur dagur þar sem Ingeborg Eide Garðarsdóttir og Bergrún Ósk keppa í kúluvarpi. Bergrún Ósk hleypur einnig í 200 metra hlaupi. Stefanía Daney Guð- mundsdóttir keppir svo í 400 metra hlaupi. n Bergrún einu sæti frá verðlaunapalli Í LOFTINU REYKJAVÍK SÍÐDEGIS VIRKA DAGA 16:00-18:30 Sækja frá SÆKTU NÝJA APPIÐ! Bergrún Ósk keppir fyrir hönd FH. ÍÞRÓTTIR 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.