Fréttablaðið - 03.06.2021, Page 21
KYNN INGARBLAÐ
FIMMTUDAGUR 3. júní 2021
Kópavogur
Barnvænt sveitarfélag
Unnur María, Sigríður og Katla hafa mikinn áhuga á að hafa áhrif þegar kemur að barnvænu samfélagi og eru ánægðar með að Kópavogur hafi tekið þetta skref. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Börnin hafa fengið rödd
Þær Unnur María Agnarsdóttir, Sigríður Lára Ingibjörnsdóttir og Katla Kristinsdóttir sitja allar í ungmennaráði
Kópavogs. Þær taka virkan þátt í ungmennastarfinu og segja það bæði skemmtilegt og gefandi. 2
Unnur María er elst í hópnum en
í næstu viku ætlar hún að þreyta
inntökupróf í læknisfræði við
Háskóla Íslands. Sigríður Lára og
Katla eru báðar nemendur á nátt-
úrulíffræðibraut í Verzlunarskóla
Íslands. Þær koma allar úr grunn-
skólum Kópavogs, Lindaskóla,
Vatnsendaskóla og Smáraskóla.
Unnur María segir að hver
grunnskóli velji fulltrúa í ung-
mennaráðið á hverju ári. Tveir
koma úr Menntaskólanum í
Kópavogi og síðan koma fulltrúar
úr öðrum framhaldsskólum með
lögheimili í bænum. Þær koma
allar inn sem fulltrúar Molans,
sem er félagsheimili ungmenna á
aldrinum 16-25 ára. Unnur María
er formaður ráðsins. Alls er ráðið
skipað 15 fulltrúum.
Fara á fund bæjarstjórnar
„Við mætum á ungmennaráðsfund
einu sinni í mánuði þar sem farið
er yfir ýmis mál tengd börnum og
ungmennum í bænum. Tilgangur-
inn er að veita ungu fólki vettvang
til að koma skoðunum sínum á
framfæri við rétta aðila. Einnig
fáum við fyrirlestra og þjálfun, auk
þess að gæta hagsmuna barna og
ungmenna í Kópavogi. Við mætum
síðan á fund með bæjarstjórn og
förum yfir þau mál sem til okkar
hafa borist sem geta verið margvís-
leg. Öll málefni tengjast börnum
og ungmennum í grunnskólum
bæjarins,“ útskýrir Unnur.
Fagleg fræðsla
„Við skrifum umsagnir um alls
kyns málefni sem koma á borð
ráðsins og fáum fræðslu. Til
dæmis var Borgarlínan kynnt