Fréttablaðið - 03.06.2021, Qupperneq 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Katla og Unnur
María sitja
og Sigríður
stendur fyrir
aftan. Að baki
þeim eru
krakkar að leik
á ærslabelg.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Fulltrúar Ungmennaráðs á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi. Krakkarnir eru mjög áhugasamir um málefnin.
Ungmennaráðið er vel skipað.
fyrir okkur um daginn. Auk þess
fáum við kynningu á heimsmark-
miðum Sameinuðu þjóðanna.
Utanaðkomandi fagfólk kemur
þá til okkar með fyrirlestra. Við
komum með ábendingar varðandi
innleiðingu Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna og komum með
tillögur að úrbótum fyrir bæinn,“
segja þær.
Innleiðingarferli Barnasáttmál-
ans er búið að vera í gangi frá árinu
2018, en þá sendum við tvo fulltrúa
til að vera í stýrihóp sem hafa tekið
þátt í vinnunni. Í þeim hópi eru
líka tveir grunnskólanemendur og
fulltrúar frá bæjarstjórn. Við í Ung-
mennaráðinu getum gert athuga-
semdir við tillögur stýrihópsins og
höfum því mikil áhrif,“ segir Katla.
„Við fáum að láta skoðanir okkar í
ljós sem er afar mikilvægt,“ bætir
Sigríður við.
Vilja skólasálfræðing
„Á Ungmennaþingi fáum við auk
þess að heyra frá fulltrúum grunn-
skólans sem hafa ýmislegt fram að
færa um bætta starfsemi, til dæmis
að aðgengi að skólasálfræðingi
verði aukið. Covid hafði vissu-
lega áhrif á andlega líðan margra
barna.“
Stelpurnar segja að mun meira
sé gert í sambandi við barnvænt
sveitarfélag í dag, en var þegar þær
voru í grunnskóla. Sigríður vill þó
meina að almennt hafi skólarnir
staðið sig mjög vel og hennar skóli
var meðal annars með UNICEF-
ráð. Framfarir á þessu sviði séu þó
alltaf að verða meiri og aðbúnaður
betri. „Það er mun meira hugsað
um að börnum líði vel í skólanum
en áður. Börnin hafa fengið rödd
og þau skipta máli. Einnig þau
börn sem eru með annað móður-
mál en íslensku. Þau þurfa líka
athygli og aðstoð við hæfi,“ segja
þær.
Jákvætt að hafa áhrif
Þegar stelpurnar eru spurðar hvort
þetta sé skemmtilegt verkefni eru
þær fljótar að svara því játandi.
Unnur María er búin að vera í
ráðinu í fimm ár, sem segir sitt.
„Það er alltaf jákvætt að fá að hafa
áhrif á samfélagið,“ segir Katla,
vogi. Þetta er ekki búið, verkefnið
heldur áfram næstu ár. Í bígerð
er að halda barnaþing 2022 sem
verður ætlað yngstu kynslóðinni.
Kópavogur er annað sveitarfélagið
sem fær viðurkenningu sem barn-
vænt sveitarfélag, svo það er mjög
margt að gerast hér. Það má þakka
öllum þeim sem hafa komið að
þessu verkefni, ungmennaráði,
bæjarstjórninni, stýrihópnum,
sem var sextán manna og skip-
aður börnum og ungmennum.
Sömuleiðis hefur Anna Elísabet
Ólafsdóttir stýrt þessu verkefni
af mikilli fagmennsku, en hún
stendur jafnframt að uppbyggingu
á stofnun Geðræktarhúss í bænum
sem verður opnað í haust. Þá hefur
Amanda K. Ólafsdóttir, deildar-
stjóri frístundadeildar mennta-
sviðs verið okkur innan handar
og er rosalega dugleg. Það eru því
margir sem koma að þessu og það
er mikið að gerast í Kópavogi.“ n
sem verður áfram í ráðinu á næsta
ári. Þær vilja þó ekki meina að
þetta sé pólitík, segjast ekki hafa
neinn sérstakan áhuga á henni.
Hvað finnst þeim merkilegast við
starfið?
„Mér finnst skemmtilegast að
vera þátttakandi í að móta bætt
umhverfi barna og ungmenna.
Það skiptir miklu máli að við unga
fólkið fáum að taka þátt í sam-
félagslegri uppbyggingu þar sem
við erum nær börnunum í aldri en
þeir sem eru eldri,“ segir Sigríður.
Vettvangur fyrir skoðanir
Á hverju ári er haldið ungmenna-
þing þar sem nemendur úr öllum
skólum Kópavogs taka þátt. „Þetta
hafa verið fjölsóttir viðburðir utan
í fyrra þegar þingið fór fram á
netinu vegna Covid. Á ungmenna-
þinginu fengum við fullt af góðum
tillögum um skólamál, umhverfis-
mál, félagsmál og forvarnir. Síðan
tókum við þessar tillögur saman
og fórum með þær á bæjarstjórnar-
fund fyrir viku,“ segja þær.
Eitt af hlutverkum ungmenna-
þings er að skapa ungu fólki
vettvang og leiðir til að koma
skoðunum sínum og tillögum á
framfæri til viðeigandi aðila.
„Innleiðing Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna er mjög
þarft og gott verkefni hjá Kópa-
Það skiptir miklu
máli að við unga
fólkið fáum að taka þátt
í samfélagslegri upp-
byggingu þar sem við
erum nær börnunum í
aldri en þeir sem eru
eldri.
2 3. júní 2021 FIMMTUDAGURKÓPAVOGUR BARNVÆNT SVEITARFÉLAG