Fréttablaðið - 03.06.2021, Síða 28
Tilkynningahnappur var settur í
spjaldtölvur barna í 5. til 10. bekk
síðastliðið haust með það að mark-
miði að gera barnavernd Kópavogs
viðvart. Í gegnum hnappinn geta
börnin sent inn tilkynningar til
barnaverndar um ofbeldi, van-
rækslu og áhættuhegðun, er varða
þau sjálf eða vini sem þau hafa
áhyggjur af.
Börn og foreldrar hafa hlotið
fræðslu um tilgang hnappsins og
hlutverk barnaverndar. Hnappur-
inn auðveldar börnum að tjá sig
um erfiðar aðstæður, sem er í
samræmi við markmið Barnasátt-
málans.
Hnappur í
spjaldtölvum
Verkefnið sem ber heitið Vatns-
dropinn er langstærsta alþjóðlega
menningarverkefnið sem Kópa-
vogsbær hefur átt frumkvæði að,
en Vatnsdropanum er ætlað að
tengja saman listir, vísindi og bók-
menntir á áður óþekktan hátt.
Fyrsta sýning undir merkjum
Vatnsdropans verður opnuð 19.
júní 2021 í Gerðarsafni. Börn á
aldrinum níu til tólf ára stýra sýn-
ingunni og koma þau frá menning-
arstofnunum í samstarfsborgum
verkefnisins, Tampere í Finnlandi,
Odense í Danmörku, Haapsalu í
Eistlandi, auk Kópavogs.
Vatnsdropinn er spennandi
verkefni sem fellur vel að þeirri
sýn Menningarhúsanna í Kópa-
vogi að leita í sífellu nýrra leiða til
að laða börn að menningarstarfi
og gefa þeim skapandi verkfæri til
að kynnast listum og menningu á
eigin forsendum.
Vatnsdropinn
UNICEF á Íslandi hefur, í samstarfi
við Kópavogsbæ, þróað reikni-
módel sem gerir sveitarfélögum
kleift að greina ársreikninga sína
með tilliti til þess hversu stórt hlut-
fall útgjalda þeirra rennur beint
til barna. Það er gert með því að
reikna svokallaðar mælitölur barn-
vænna fjármála og er Kópavogsbær
enn eina sveitarfélagið sem hefur
farið í gegnum slíka greiningu.
Á grundvelli þessarar greiningar
kemur í ljós að um 70% útgjalda
bæjarins er varið til málefna
barna. Með reiknimódelinu
verður hægt að fylgjast með þessu
hlutfalli og hvort og hvernig það
breytist milli ára. n
Mælitala
barnvænna
fjármála
Kópavogsbær hefur sett á laggirnar
Geðræktarhús til að koma til móts
við vaxandi þörf barna og ung-
menna fyrir andlega uppbyggingu
og kall þeirra um aukinn stuðning
í málaflokknum. Þar verða haldin
námskeið og erindi á sviði geðrækt-
ar til að efla andlega heilsu íbúa, en í
fyrstu verður áhersla lögð á að vinna
með börnum og ungmennum.
Húsið, sem reist var árið 1925 eftir
teikningum Guðjóns Samúelssonar,
Andleg uppbygging í Geðræktarhúsi
Geðræktarhús
verður opnað
í Kópavogi í
haust.
er við Kópavogsgerði, á fallegum,
grónum stað við Kópavoginn. Það
hefur frá upphafi tengst heilbrigðis-
málum og fær nú nýtt hlutverk í
geðræktarmálum.
Umhverfið býður upp á að sinna
verkefnum utandyra, svo sem
núvitundaræfingum og hugræktar-
göngum. Dyr Geðræktarhússins
verða opnaðar í haust, en það hefur
verið endurnýjað algjörlega af
Kópavogsbæ undanfarin ár. n
Smiðjuvegi 4C 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Smiðjuvegi 4C 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& iðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Smiðjuvegi 4C 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
8 3. júní 2021 FIMMTUDAGURKÓPAVOGUR BARNVÆNT SVEITARFÉLAG