Fréttablaðið - 03.06.2021, Qupperneq 34
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Arndís Kristjánsdóttir
frá Móabúðum í Eyrarsveit, síðar til
heimilis að Efstalandi 6, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, 18. maí sl.
Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey.
Auður Kristrún Viðarsdóttir Guðjón Baldvinsson
Arna Sigrún Viðarsdóttir Haraldur Páll Hilmarsson
Sonja Guðrún Viðarsdóttir Óskar Gísli Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóra Sigurjónsdóttir
lést á Sólvangi, Hafnarfirði,
fimmtudaginn 27. maí.
Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 7. júní
kl. 13.00. Streymt verður frá athöfninni á
https://youtu.be/lrs28stdJTc
Ágúst Atlason Mjöll Vermundsdóttir
Sigríður Atladóttir Þór Thorarensen Gunnlaugsson
Jóanna Atladóttir Njáll Vignir Njálsson
Helgi Vilberg Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín,
Ragnheiður Jónsdóttir
frá Deildartungu,
Birkigrund 63, Kópavogi,
sem lést 11. desember sl.,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
10. júní kl. 15.
Öll velkomin, streymi verður auglýst síðar.
Björn Friðgeir Björnsson
Hjartans þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur hlýhug,
samúð og vináttu við andlát og
útför heittelskaðrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Þórdísar Jóhannesdóttur
Laugavegi 72.
Einnig viljum við þakka þeim er sýndu minningu hennar
virðingu með því að styrkja gott málefni. Sérstakar þakkir
færum við Bráðamóttöku Landspítalans fyrir einstaka
hlýju og alúð.
Þorgeir Pétur Svavarsson Anna Þórný Annesdóttir
Guðfinna Svavarsdóttir Friðþjófur Arnar Helgason
Sigurrós Svavarsdóttir Páll Jónsson
Jóhanna Svavarsdóttir Giovanni Rancitelli
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, systir og mágkona,
Þuríður Saga
Guðmundsdóttir
lést á krabbameinsdeild LSH
föstudaginn 21. maí sl. Sérstakar þakkir til
starfsfólks 11E á LSH. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 4. júní klukkan 15.
Þóra Ýr Björnsdóttir
Halldór Einir Guðbjartsson Hulda Magnúsdóttir
Karl Guðmundsson
Sigurbjörg U. Guðmundsdóttir Bjarni Þór Óskarsson
Kjartan Ísak Guðmundsson Erna Vigdís Ingólfsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir alla hlýjuna og
vináttuna sem okkur var auðsýnd við
andlát og útför okkar ástkæra
Kristmanns Eiðssonar
Gauti Kristmannsson Sabine Leskopf
Þorsteinn Kristmannsson Elísabet Benkovic
Mikaelsdóttir
Kristmann Egill Kristmannsson Herdís Pétursdóttir
Eiður Páll S. Kristmannsson Ólöf Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Leikarahjónin Björn Thors og
Unnur Ösp Stefánsdóttir voru
útnefnd bæjarlistamenn Garða-
bæjar 2021 í gær við hátíðlega
athöfn. Þau voru steinhissa.
gun@frettabladid.is
„Við Bjössi höfum bara búið hér í þrjú ár
og eiginlega verið í aðlögun. Þetta er því
óvæntur heiður og við erum full þakk-
lætis,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir,
leikari og leikstjóri, um titilinn bæjar-
listamenn Garðabæjar 2021, sem hún
og maður hennar voru sæmd í gær. Hún
segir þau þekkja fáa í bænum ennþá.
„Við höfum varla litið út um gluggana,
enda með fjögur börn og líka á kafi í
öðrum verkefnum.“
Áður í 101
Fjölskyldan var í 101 Reykjavík áður og
Unnur viðurkennir að skrefin þaðan
hafi verið dálítið þung. „En nú losnar
Garðabær ábyggilega aldrei við okkur!
Við búum í Skógarlundi sem okkur
finnst einstaklega fallegt götuheiti. Það
er líka nýtt fyrir okkur að ganga út og
vera umvafin náttúru eftir augnablik
því hér eru hraun, vötn og skógar í næsta
nágrenni. Slíkt eru lífsgæði. Það er gott
að skokka að Vífilsstaðavatni og gaman
að fara með börnin út í Heiðmörk. Við
höfum líka Hönnunarsafnið á Garða-
torgi og góða veitingastaði, einn var að
opna í Sjálandi með æðislegum mat og
sjávarútsýni. En við störfum í 101 ennþá,
bæði í Þjóðleikhúsinu.“
Aldrei meira að gera
Eins og kunnugt er leikstýrði Unnur
manni sínum í einleiknum Vertu úlfur,
einu örfárra verka sem hægt var að sýna
í vetur. Það er hennar leikgerð eftir bók
Héðins Unnsteinssonar. „Upphaflega átti
það bara að vera lítil, einlæg sýning sem
mundi hreyfa við mikilvægri umræðu,
en varð svo miklu stærri en okkur óraði
fyrir. Við lukum tæplega 60 sýningum
um síðustu helgi en byrjum aftur um
miðjan ágúst. Þá fær Bjössi að leika í
fyrsta skipti fyrir fullum sal af fólki með
engar grímur,“ segir Unnur. Hún upplýsir
líka að aldrei hafi verið meiri framleiðsla
á kvikmyndum og sjónvarpsefni hér á
landi en á þessu ári. „Við Bjössi höfum
verið að leika hvort í sinni stóru seríu.
Hann í Kötlu, sem verður frumsýnd á
Netflix á næstunni og ég í Verbúðinni
með Vesturporti.“
Nú er sumarfríið fram undan. Unnur
segir útlandaþorstann ekki kominn
heldur ætli þau fara um landið – kannski
bara með tjald, veiða, heimsækja Snæ-
fellsnes, Flatey og f leiri spennandi
staði.n
Þetta var óvæntur heiður
Nýir bæjarlistamenn Garðabæjar, Björn Thors og Unnur Ösp. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fleiri heiðraðir
Garðabær heiðraði fleiri íbúa sína
á athöfninni í gær. Hornleikarinn
Joseph Ognibene sem kom til
Íslands fyrir 40 árum til að spila
með Sinfóníuhljómsveit Íslands
hlaut viðurkenningu fyrir sitt
starf. Hann hefur meðal annars
kennt öllum íslensku hornleikur-
unum í þeirri sveit á hljóðfærin og
gefið mikið af sér til ungmenna í
tónlistarnámi.
Einnig voru veittir þrír styrkir til
ungra listamanna í Garðabæ.
Það er gott að skokka að
Vífilsstaðavatni og gaman
að fara með börnin út í
Heiðmörk.
gun@frettabladid.is
Kór Fella-og Hólakirkju heldur
vortónleika sína á laugardag-
inn, 5. júní. Hann syngur að
langmestu leyti íslensk lög um
vorið og sumarið, og með leikur
Matthías Stefánsson á fiðlu.
Í lok tónleikanna, sem verða
án hlés, er gestum boðið að
syngja nokkur velþekkt lög
með kórnum, texti verður á
skjá.
Einsöng varar úr röðum
kórsins eru: Kristín R. Sigurðar-
dóttir, Inga J. Backman, Garðar
Eggertsson og Reynir Þormar
Þórisson, sem einnig leikur á
saxófón. Garðar Eggertsson tekur á móti gestum við inngang-
inn með ljúfum harmónikkuleik. Stjórnandi og píanóleikari
er Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti kirkjunnar.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Aðgangseyrir er 2.000
krónur en 1.000 fyrir eldri borgara og öryrkja. Öllum sótt-
varnareglum verður fylgt til hlítar. n
Gestir fá að syngja
með kórnum í lokin
Kórinn syngur
að langmestu
leyti íslensk lög
um vorið og
sumarið, og með
leikur Matthías
Stefánsson á
fiðlu.
Kór Fella-og Hólakirkju er vel mannaður. MYND/AÐSEND
TÍMAMÓT 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR