Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202112
Starfsmenn Verkfræðistofunnar
Mannvits voru nýverið á ferðinni
á Norðurlandi vestra. Tilgangur
þeirra var að mæla rennsli átta
vatnsfalla á svæðinu.
Í apríl 2020 var auglýst eftir
umsóknum um styrki í Skref 1,
frummat smávirkjana, sem eru
grunnrannsóknir á rennsli vatns-
falla og fyrstu hugmyndir um
virkjanir og kostnað við byggingu
þeirra. Alls bárust 12 umsóknir og
var 8 styrkjum úthlutað.
Niðurstöður í næsta mánuði
Gert var ráð fyrir að mælingar
færu fram sl. haust en vegna
mikillar úrkomu var mælingum
frestað þar til núna í apríl þar sem
þær þurfa að fara fram þegar lág-
rennsli er í vatnsföllunum. Búast
má við niðurstöðum í maí.
Rennslismælingarnar eru
kostaðar að miklu leyti af
Smávirkjanasjóði Samtaka
Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
en greint er frá rennslismælingun-
um á heimasíðu ssnv. Tilgangur
sjóðsins er að styrkja fyrstu skref-
in í rannsóknum á mögulegum
rennslisvirkjunum undir 10 MW
að stærð á Norðurlandi vestra.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Bændur í Villingadal í Eyja
fjarðar sveit, þau Árni Sigur
laugs son frá Ragnheiðar-
stöð um í Flóa og Guðrún
Jóns dóttir, hlutu Sauðfjár ræktar-
verð laun Búnaðarsambands
Eyjafjarðar fyrir góðar afurðir
fjár ins og snyrtilegan og vel
rekinn búskap árið 2019.
Guðrún og Árni hófu búskap
árið 1985 og til 2013 í félagsbúi
með Ingibjörgu, systur Guðrúnar.
Þær systur tóku við af foreldr-
um sínum, Jóni Hjálmarssyni og
Hólmfríði Sigfúsdóttur, en afi og
amma þeirra systra höfðu komið
vestan úr Skagafirði og hófu búskap
í Villingadal 1922.
Á fyrstu árum sínum í búskap
byggðu Árni og Guðrún íbúðarhús
og fjós og eru þau með um 20 kýr auk
geldneyta og 150 kindur. Hjá þeim
hefur umgengni og snyrtimennska
verið áberandi og fallegt er að koma
upp í Villingadal.
Í útreikningi vegna sauðfjárrækt-
arverðlauna BSE kemur fram að í
Ytri-Villingadal eru 119 ær með 36,2
kg eftir hverja vetrarfóðraða á, sem
má nefna að vaxtarhraði er 143 g á
dag í lömbum, gerð 10,8 og fituhlut-
fall 1,56. Afurðir eftir 25 gemlinga
er 19,4 kg. /MÞÞ
Sauðfjárræktarverðlaun BSE
fóru til bænda í Villingadal
Árni Sigurlaugsson og Guðrún Jónsdóttir hlutu Sauðfjárræktarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar fyrir árið
2019 fyrir góðar afurðir fjárins og snyrtilegan og vel rekinn búskap. Mynd / BSE
Starfsmenn Mannvits voru á ferð um Norðurland vestra:
Mældu rennsli átta vatnsfalla
Starfsmenn Mannvits við mælingar á Djúpadalsá í Skagafirði.
Ársþing Samtaka sveitar
félaga á Norðurlandi
vestra var haldið nýlega
og af því tilefni voru
Byggða gleraugu SSNV
veitt í fyrsta sinn.Viður
kenningin er veitt þeirri
stofnun eða ráðuneyti sem
þykir hafa skarað fram úr
í fjölgun starfa og verk
efna á Norðurlandi vestra.
Vinnu málastofnun hlaut
viðurkenninguna fyrir
árangursríka upp bygg ingu
starfsstöðva stofnunar
innar á Hvammstanga og
Skaga strönd.
Yfir 40 störf
Á vef SSNV kemur fram að
starfsstöðvarnar báðar hafi
mikla þýðingu fyrir samfé-
lögin á Norðurlandi vestra
og þyki fyrirmyndardæmi
um árangursríkan flutning
verkefna á landsbyggð-
ina. Frá opnun þeirra hafi
þær eflst verulega og starfi
þar nú samtals vel yfir 40
starfsmenn. Slíkur fjöldi
starfa hafi mikil áhrif í hag-
kerfi svæðisins og stuðli að aukinni
byggðafestu og uppbyggingu í lands-
hlutanum.
Veitt þeim sem skara fram
úr við fjölgun verkefna
á Norðurlandi vestra
„Undanfarið hefur mikið verið rætt
um störf án staðsetningar og almennt
flutning starfa út á land sem m.a.
hefur lengi verið baráttumál sveitar-
stjórnarmanna á Norðurlandi vestra.
Til að vekja athygli á þessu og jafn-
framt hvetja og þakka þeim sem vel
hafa staðið sig hefur stjórn SSNV
ákveðið að veita á ársþingi ár hvert,
viðurkenninguna Byggðagleraugun,
þeirri stofnun eða ráðuneyti sem
þykir hafa skarað fram úr í fjölgun
starfa/verkefna á Norðurlandi vestra
eða með öðrum hætti stuðlað að upp-
byggingu hans,“ segir í frétt á vef-
síðu samtakanna.
Er viðurkenningunni ætlað að
hvetja forsvarsmenn stofnana til að
horfa með „byggðagleraugunum“ á
verkefni sinna eininga og nýta þau
tækifæri sem gefast til flutnings
starfa/verkefna á landsbyggðina í
samræmi við áherslur byggðaáætl-
unar og annarra áherslna ríkisins.
Viðurkenningarskjalið er hannað
af Ólínu Sif Einarsdóttur, grafískum
hönnuði ÓE Design, sem búsett er í
Skagafirði. /MÞÞ
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar,
með viðurkenningarskjalið.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Byggðagleraugu fyrirmyndardæmi um
flutning verkefna á landsbyggðina
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull