Bændablaðið - 29.04.2021, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202114
Óskar Þór Jónasson kallar ekki
allt ömmu sína þegar kemur að
prjónaskap því hann prjónaði sér
fína og fallega lopapeysu á meðan
hann dvaldi á sóttvarnarhótelinu
nýlega í Reykjavík vegna COVID-
19.
Óskar hefur búið í Tromsö,
Noregi í um ellefu ár. Hann er á öðru
ári í leikskólakennaranámi og var
orðinn leiður á að vera svona langt
frá fjölskyldu sinni á Íslandi enda
allt lokað meira og minna í Tromsö.
Hann fékk að taka námið í fjarnámi
svo hann kæmist til Íslands.
Óskar tók með sér garn í peysuna
að utan og prjónaði hana þá fimm
daga sem hann var í sóttvarnarhús-
inu. Svo setti hann rennilás á peys-
una þegar hann komst í saumavél
hjá foreldrum sínum.
Óskar Þór stefnir á að fara
aftur út til náms í ágúst í sumar.
Á myndunum, sem mamma hans,
Hrefna Ósk, tók má sjá hann í fínu
peysunni sinni. /MHH
FRÉTTIR
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Hjörleifur Árnason og Hrafn Stefánsson, nýir eigendur Polynorth á Akureyri.
Nýir eigendur hjá Polynorth á Akureyri:
Vél sem steypir kubba til
húsbygginga væntanleg
Nýir eigendur hafa tekið við
félaginu Polynorth við Óseyri 4
á Akureyri. Hjörleifur Árnason,
viðskiptafræðingur og mat-
reiðslumaður, hefur verið í fyr-
irtækjarekstri undanfarin ár,
m.a. í veitingageiranum. Hrafn
Stefánsson er vélfræðingur að
mennt og hefur reynslu af plast-
framleiðslu bæði hér á landi og
erlendis.
Félagið var stofnað árið 1987
og hefur aðalframleiðsla þess verið
einangrunarplast til byggingafram-
kvæmda. Nýir eigendur stefna að
því að fjölga vörulínum, en m.a.
hafa náðst samningar við austur-
rískt fyrirtæki um kaup á vél sem
steypir kubba fyrir húsbyggingar.
Polynorth verður þá eina fyrirtæk-
ið hér á landi sem framleiðir slíkar
einingar, en þær þykja bæði þægi-
legar og einfaldar í uppsetningu,
segir í frétt um eigendaskiptin frá
félaginu. Jafnframt segir að þær séu
með afburða einangrunargildi og
hljóðvist.
Meðal þeirra verkefna sem fyr-
irtækið sinnir er viðhald á lokum
fyrir heita potta og alls kyns áfyll-
ingar eins og í brjóstgjafapúða og
grjónapúðasekki.
Nýjum eigendum er mikið í
mun að halda áfram framleiðslu
einangrunarplasts norðan heiða, en
þannig gefst tækifæri til að viðhalda
persónulegum tengslum við við-
skiptavini. Þá segir í tilkynningu að
fyrirtækið sé opið fyrir hvers kyns
hugmyndum um vörur úr frauðefni
svo og öðrum plastefnum.
/MÞÞ
Nýr og afkastamikill götusóp-
ur hefur verið tekinn í notkun
á Akureyri en honum er ætlað
að vinna gegn svifryksmengun í
bænum.
Götusópurinn, sem er af gerðinni
Schmidt 660, er fyrsta flokks tæki,
vel búinn með góðum tromlukústi,
sjö rúmmetra safnkassa og getur
tekið vatn inn á sig. Hliðarsópur er
stillanlegur og getur sópað alveg upp
að kanti sem er mikill kostur. Þá er
sogkraftur tækisins óvenjumikill.
Sópurinn á metanbíl
Sópurinn er á metanbíl í samræmi
við umhverfis- og samgöngustefnu
bæjarins. Með þessu tæki er hægt
að hreinsa göturnar á skilvirkan og
vandaðan hátt og stuðla þannig að
fallegra umhverfi og hreinna lofti.
Fjárfestingin er liður í aðgerðum
Akureyrarbæjar til að stemma stigu
við svifryksmengun sem mælist
reglulega of mikil. Rík áhersla er
lögð á þetta verkefni um þessar
mundir og er meðal annars unnið
að greiningu á efnasamsetningu og
uppruna svifryks á Akureyri.
Vonir standa til að með samhentu
átaki bæjarins við að hreinsa betur
göturnar og íbúa við að draga úr
bílaumferð og notkun nagladekkja
megi ná góðum árangri í baráttunni
við svifrykið.
Hafist handa við vorverkin
Götusópurinn var boðinn út síð-
asta vor og er keyptur af fyrirtæk-
inu Aflvélum ehf. fyrir 40 millj-
ónir króna. Hann kom til lands-
ins á dögunum og er nú kominn
á götur Akureyrar þar sem hann
verður við stífa vinnu á næstunni.
Vorverkin eru enda að hefjast og
einn liður í því er að hreinsa bæ-
inn og koma honum í sumarbún-
inginn. Þetta kemur fram á vefsíðu
Akureyrarbæjar. /MÞÞ
Nýr götusópur í baráttu við svifryk. Frá afhendingu hans, Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri Aflvéla, og Andri Teitsson,
formaður Umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar. Mynd / Akureyrarbær
Akureyri:
Afkastamikill götusópur gegn svifryksmengun
Fór á sóttvarnarhótel og
prjónaði lopapeysu
Óskar Þór Jónasson í nýju „COVID“
peysunni sinni. Mynd / MHH
Þórður í Skógum 100 ára
„Mér líður mjög vel og hef ekki
yfir neinu að kvarta, ég hugsa
ekkert um það hvað ég er gamall
eða hvað ég verð gamall, ég er
sáttur við guð og menn og líður
vel,“ segir Þórður Tómasson,
fyrrverandi safnvörður í Skógum
undir Eyjafjöllum, en hann varð
100 ára miðvikudaginn 28. apríl.
Þórður er fæddur og uppalinn í
Vallnatúni í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Hann býr í Skógum með Guðrúnu,
systur sinni, sem er 90 ára og Þóra
Sigríður, systir þeirra, sem er búsett
á Hvolsvelli, er 97 ára. Þá áttu þau
bróður, sem dó árið 2016, þá 96
ára en hann hét Kristinn. Þórður
og Guðrún hafa búið í Skógum frá
1959. Þórður hefur stundað ritstörf
af miklu kappi síðustu ár og gefið út
nokkrar bækur, nú síðast fyrir síðustu
jól bókina „Hér er kominn gestur“,
sem er bók um gesti og gangandi í
aldanna rás. Í dag á hann handrit í
þrjár bækur, sem hann stefnir á að
gefa út. /MHH
Þórður Tómasson í Skógum, sem fagnaði 100 ára afmæli sínu miðvikudaginn
28. apríl. Oddafélagið og Skógasafn munu halda Þórði til heiðurs samkomu
föstudaginn 30. apríl í Skógum að viðstöddum forseta Íslands.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson