Bændablaðið - 29.04.2021, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 19
Bændasamtökum Íslands til minn
ingar um Gunnar Bjarnason, fyrrum
hrossaræktarráðunaut og kennara
á Hvanneyri. Gunnar sýndi mikið
frumkvæði í starfi sínu sem reið
kennari og var fyrstur til að kenna
nemendum sínum að temja hesta
sér til reiðar. Hefur slík kennsla
haldist nær óslitin síðan. Úrslit
voru þessi:
1. sæti: Helga Rún Jóhannsdóttir
2. sæti: Steindóra Ólöf Haralds
dóttir
3. sæti : Sverrir Geir
Guðmundsson
4. sæti: Laufey Rún Sveinsdóttir
5. sæti: Elínborg Árnadóttir
6. sæti: Björn Ingi Ólafsson
Eiðfaxabikarinn
Eiðfaxabikarinn hefur verið veittur
síðan 1978. Hann er veittur þeim
nemanda sem hlýtur bestu einkunn
í bóklegum áfanga og hlaut hann í
ár Elínborg Árnadóttir.
Ásetuverðlaun FT
Félag tamningamanna hefur veitt
ásetuverðlaun frá árinu 1971 og
hlýtur þau sá nemandi sem þykir
sitja hest sinn best. Ásetan skal
vera falleg og notuð til að stjórna
hestinum. Þau hlaut Steindóra Ólöf
Haraldsdóttir.
Framfarabikar Reynis
Verðlaunin hafa verið veitt síðan
2013 þeim nemanda sem hefur sýnt
hvað mestan áhuga, ástundun og
tekið hvað mestum framförum í
reiðmennsku II, sem saman stendur
af knapamerki III og frumtamn
ingaráfanga. Þessi bikar er gjöf
Hestamannafélagsins Grana til
minningar um Reyni Aðalsteinsson
og alla þá frábæru hluti sem
hann gerði fyrir hestamennsku á
Hvanneyri og víðar. Verðlaunin í
ár hlaut Björn Ingi Ólafsson. /HKr.
SMIÐJUVEGI 7 200 KÓPAVOGI SÍMI 54 54 300 ISPAN.IS
ER KOMINN TÍMI
Á NÝTT GLER ?
VIÐ SÉRSMÍÐUM GLER
EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM
• EINANGRUNARGLER
• SÓLVARNARGLER
• HLJÓÐVARNARGLER
• ÖRYGGISGLER
• HAMRAÐ GLER
• HERT GLER
• LAKKAÐ GLER
• SPEGLAR
Verðlaunahafar frá vinstri: Björn Ingi, Elínborg, Helga Rún, Steindóra Ólöf og Laufey Rún.Steindóra Ólöf Haraldsdóttir hlaut ásetuverðlaun Félags tamingamanna.
Norðurþing:
Njóta ekki lækkunar
vatnsgjalds
Kostnaður við meðhöndlun
úrgangsmála hefur aukist gríðar-
lega og er ein af ráðstöfunum
meirihluta Norðurþings til að
mæta honum að lækka vatns-
gjald sem innheimt er með fast-
eignagjöldum. Heildarupphæð
lækkunarinnar nam um 18 millj-
ónum króna, tekjur Orkuveitu
Húsavíkur ohf. lækkuðu því sem
því nemur.
Hjálmar Bogi Hafliðason óskaði
eftir því á fundi skipulags og fram
væmdaráðs Norðurþings á dögun
um að umræða yrði um lækkun
vatnsgjalds og gjaldskrá sorpgjalda.
Málum er þannig háttað í
Norðurþingi að aðeins hluti íbúa
sveitarfélagsins nýtur afsláttar
ins. Í hinum dreifðu byggðum eru
íbúar í mörgum tilfellum með eigin
vatnsveitu sem hefur ekki kallað á
fjárfestingar eða viðhald af hálfu
sveitarfélagsins.
Þessir aðilar njóta því ekki
ávinning af áðurnefndri lækkunar
aðgerð og greiða þar af leiðandi
hækkun sorpgjalda í mun meira
mæli en aðrir íbúar sveitarfélagsins.
Óskað er eftir aðgerðum fyrir þessa
aðila með tilliti til jafnræðisreglu
stjórnsýslulaga.
Byggðarráð fól sveitarstjóra að
taka saman minnisblað um málið
og leggja fram á næsta fundi. /MÞÞ