Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202120
Samkvæmt fyrirliggjandi
opinberum tölum hefur sauðfé
ekki verið færra á Íslandi í 160
ár, eða síðan 1861 þegar talsverð
fækkun varð vegna fjárkláða og
stofninn fór niður í 327.000. Í
öðrum búfjárstofnum hafa ekki
orðið miklar sveiflur ef alifuglar
eru undanskildir, þar hefur orðið
gríðarleg aukning í stofninum.
Þó eftir sé að staðfesta
sumar tölur atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins um
búfé landsmanna samkvæmt
endanlegum skýrslum þá liggur
heildarmyndin samt nokkuð ljós
fyrir.
Alifuglarækt hefur lengst
af á síðustu 40 árum verið
umfangsminni en sauðfjárræktin.
Árið 1981 voru hér samkvæmt
Mælaborði landbúnaðarins 416.799
varphænsni og holda hænsni
samanlagt. Auk þess voru 1.363
endur. Alifuglarækt fór vaxandi til
1985 þegar stofninn taldist vera
584.904 fuglar. Þá var sauðfé til
samanburðar 710.190.
Alifuglaræktin var í
mestri lægð 2001
Frá 1985 til 2001 fór alifuglarækt
hrakandi þó með tveim uppsveiflum,
þ.e. 1990 og 1999, en var samt
langt undir sauðfjárfjöldanum.
Neðst fór alifuglaræktin í 207.102
fugla á árinu 2001, en fór síðan
hratt stígandi fram til 2007 þegar
alifuglaræktin fór í fyrsta sinn fram
úr sauðfjárræktinni. Þá töldust
alifuglar í landinu vera 469.682,
en sauðfé 456.007. Eftir þetta varð
hökt á alifuglaræktinni fram til
2015 þegar stofninn taldist vera
249.044 fuglar.
Alifuglastofninn
tók risastökk 2016
Á árinu 2016 varð gríðarlegt
stökk og á einu ári stækkaði
alifuglastofninn um 793.424 fugla
og fór upp í 1.042.468. Það sama
ár taldist sauðfjárstofninn vera
476.647 skepnur. Þetta er aukning
upp á rúm 318,5%.
Sauðfjárstofninn ekki hálf-
drættingur á við alifugla stofninn.
Á árinu 2020 var
sauðfjárstofninn ekki einu sinni
hálfdrættingur á við alifuglana
eða 400.724 og munurinn því
440.118. Sauðfjárbændur í landinu
eru samkvæmt opinberum tölum
samtals 2.127, en alifuglaeigendur
201.
Ekki er ljóst hvað olli þessari
miklu uppsveiflu í tölum varðandi
alifuglaeldið árið 2016, hvort
um er að ræða hreina aukningu í
ræktun, eða sambland af því og
breyttri aðferðarfærði við talningu.
Allavega er þetta langmesti fjöldi
alifugla sem sést hefur í opinberum
tölum hérlendis og hefur hvorki
fyrr né síðar farið yfir eina milljón
fugla. Síðan hefur þetta sveiflast
nokkuð milli ára og rokkað frá um
840.000 til 970.000.
Mikil aukning í alifuglarækt
virðist endurspegla þær miklu
breytingar sem hafa verið að
eiga sér stað á neysluvenjum
landsmanna líkt og hjá íbúum
fjölmargra vestrænna landa.
Þar hefur kjúklingakjöt verið að
ná hæstu hæðum í vinsældum
á kostnað annarra kjöttegunda.
Þannig nam sala á alifuglakjöti
frá afurðastöðvum 2020 um 9.038
tonnum eða svipað og framleiðslan.
Hins vegar nam salan á kindakjöti
„ekki nema“ rúmum 6.204 tonnum
á meðan framleiðslan nam tæpum
9.477 tonnum. Salan á kindakjötinu
var því ekki „nema“ um 65% af
framleiðslunni og var salan á
þessari kjöttegund 2.834 tonnum
minni en af alifuglakjöti. Það þýðir
að kindakjötssalan nam tæplega
69% af alifuglakjötssölunni.
Mikil áskorun og tækifæri
fyrir sauðfjárræktina
Þótt mörgum finnist þessi staða
nokkuð döpur fyrir sauðfjárræktina,
má líka líta á það sem mikla áskorun
og tækifæri fyrir vöruþróun í
sauðfjárafurðum. Sauðfjárbændur
hafa heldur ekki verið þekktir
fyrir uppgjöf í gegnum tíðina og
hljóta að skoða gaumgæfilega þau
tækifæri sem í stöðunni geta falist.
Reyndar hefur verið markviss vinna
í gangi varðandi þann þátt, t.d. í
gegnum Icelandic lamb, en þar
hafa menn ekki síst verið að horfa
á gæðamálin.
Svínakjötið vinnur á
Þá seldist frá afurðastöðvum á
síðasta ári meira svínakjöt en
framleitt var það ár, eða rúm
6.819 tonn, en framleidd voru
6.812 tonn. Mismunurinn skýrist
væntanlega af sölu birgða. Salan
á svínakjötinu var því 615 tonnum
meiri en af kindakjöti. Íslensk
svínakjötsframleiðsla virðist því
njóta vinsælda almennings og það
mun örugglega ekki minnka eftir
því sem búin verða sjálfbærari
um framleiðslu á eigin fóðri.
Flestir voru svínabændur árið
1988, eða 124 talsins, en nú eru
14 ræktendur í landinu samkvæmt
tölum Mælaborðs landbúnaðarins.
Eitthvað skrítin tölfræði
um kalkúnaeldi
Á síðasta ári, 2020, var alifugla-
stofninn talinn vera 840.842 fuglar.
Setja verður spurningarmerki við
þær tölur þar sem fullorðnir kalkúnar
eru þar einungis sagðir sjö talsins,
eða sami fjöldi og 2019, en þeir voru
aðeins 3 árið 2018. Samt voru sagðir
vera 1.113 fullorðnir kalkúnar árið
2016.
Sem kunnugt er hefur talsvert
verið ræktað af kalkúnum hérlendis.
Ekkert lát hefur heldur verið á
kalkúnakjötsneyslunni undanfarin
ár, eins og fólk þekkir vel í kringum
hina aðfluttu þakkargjörðarhátíð
og einnig um jól og áramót. Það
ætti því að koma fram í talningu
ekki síður en holdahænsni. Á
síðasta ári voru framleidd rétt
tæp 310 tonn af kalkúnakjöti
samkvæmt tölum atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis og fór allt
það kjöt í sölu frá afurðastöðvum.
Þetta hefur varla sprottið upp af sjö
fullorðnum fuglum. Það varð lítils
háttar samdráttur í sölu kalkúnakjöts
frá 2019, eða um 2,7%, sem skýrist
væntanlega af COVID-19 og hruni
í ferðaþjónustu.
Nautgriparæktin í þriðja sæti
Nautgriparæktin er í þriðja sæti að
umfangi í íslenskum landbúnaði
hvað fjölda gripa varðar. Þar voru
80.625 gripir á síðasta ári. Hefur
talan haldist nokkuð stöðug fyrir
ofan 80.000 síðan 2016 og eru
nautgripabændur nú sagðir vera
747 talsins.
Þar hefur holdakúm verið að
fjölga á kostnað mjólkurkúa. Þannig
voru 3.295 holdakýr 2020, en 2.891
árið 2019. Mjólkurkýr voru aftur á
móti 2.617 árið 2020, en 2617 árið
2019. Flestar voru mjólkurkýrnar þó
árið 2015, eða 27.441, en þá voru
2.049 holdakýr í landinu.
Af nautgripakjöti voru framleidd
4.652 tonn árið 2020, eða 3,6 % minni
en árið 2019. Salan á nautakjöti frá
afurðastöðvum var mjög svipuð, eða
um 6.667 tonn og þar hafa menn
eitthvað verið að ganga á birgðir
frá fyrra ári þó um 3,1% samdráttur
hafi verið í sölu frá 2019. Líkt
og í kindakjötsframleiðslunni
felast áskoranir í stöðunni í
nautgripakjötsframleiðslunni. Í
gegnum Landssamband kúabænda
hefur sú áskorun reyndar verið tekin
mjög alvarlega með sérstakri áherslu
á gæðamálin.
Flöktandi tölur um
hrossaeign landsmanna
Hrossaræktin í landinu er sú
búgrein sem hefur verið að skila
einna undarlegustu tölunum í
mörg ár. Erfitt hefur reynst að fá
áreiðanlegar tölur um fjölda hrossa
í landinu frá því eftirfylgni var
hætt af hálfu forðagæslumanna.
Starfsfólk Búnaðarstofu sem
síðar fluttist búferlum til MAST
og þaðan til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis, hefur reynt
sitt besta til að móta utan um þessa
grein skráningarkerfi sem byggir
á mörgum þáttum. Eigi að síður
heyrast enn fullyrðingar um að
tölfræðin geti ekki staðist. Er þetta
bagalegt á tímum þegar útflutningur
hrossa hefur aldrei gengið betur.
Tveggja tuga þúsunda
sveifla á milli ára
Á árunum 1990 til 2009 fór fjöldi
hrossa aldrei undir 70 þúsund undir
vökulum augum forðagæslumanna.
Flest voru þau talin árið 1996, eða
80.595. Árið 2009 var fjöldinn
talinn vera 77.291 hross, en hrundi
skyndilega niður í 55.781 árið 2010
af einhverjum undarlegum ástæðum.
Ekki kom það fram í aukningu á
hrossakjöti á markaðnum, sem nam
21.510 hrossum.
Áfram stórar sveiflur í
opinberri skráningu hrossa
Frá 2010 hefur talan um fjölda
hrossa alltaf þótt tortryggileg, en á
árinu 2014 tók talan óvæntan kipp
úr 52.467 í 67.997 hross, eða um
15.530 hross. Talan féll svo niður í
64.816 hross árið 2017, 53.453 hross
árið 2018 og jókst svo á ný upp í
55.230 hross árið 2019. Á síðasta
ári voru hrossin svo talin 58.362 og
hrossaeigendur voru samtals 3.463.
Reynt að ná fram rauntölum
Ýmislegt hefur þó verið gert til að
reyna að fá fram raunverulegri tölu
um fjölda hrossa í landinu, eins og
að hreinsa út af skrá dauð hross og
skrá fædd folöld. Svo virðist sem
bættar aðferðir séu að skila meiri
nákvæmni, þó eflaust vanti enn
eitthvað upp á að nákvæm rauntala
fáist um fjölda hrossa í landinu.
Bjartara yfir
loðdýrabúskapnum eftir
hrun á heimsmarkaði
Loðdýrabúskapur hefur verið æði
sveiflukenndur og átt mjög undir
högg að sækja undanfarin ár. Þar
hefur orðið veruleg fækkun búa í
kjölfar hruns á heimsmarkaði. Nú eru
ekki eftir nema 10 loðdýrabændur
á Íslandi. Aðeins hefur rofað til
með hækkun skinnaverðs á síðasta
uppboði í Kaupmannahöfn. Þannig
stendur verðið í dag undir kostnaði.
Talsvert er þó í að bændur nái að
vinna upp tap undanfarinna missera
og ára. Ólíklegt má því teljast að
einhver hinna eldri búa, sem mörg
voru afar vel búin, verði endurreist
á næstunni.
Ekki færri minkar
í eldi síðan 1985
Samkvæmt haustskýrslum voru
aliminkar 15.764 talsins (læður og
högnar) árið 2020, eða heldur fleiri
en 2019 þegar þeir voru 14.229.
Minkar hafa reyndar aldrei verið
eins fáir á Íslandi síðan 1985 þegar
þeir voru 11.490. Þá voru hins vegar
18.395 refir í eldi, en nú eru þeir
einungis 4. Fyrir 40 árum, eða árið
1981, voru eldisminkar taldir vera
8.922 og refir í eldi voru þá 1.443.
Flestir voru minkarnir í eldi
hérlendis árið 1988 eða 86.645,
en það ár voru einnig 9.000 refir í
eldi. Næst flestir minkar voru þegar
allt lék í lindi á uppgangstímanum
2013 eða 64.484. Þá voru refir
hinsvegar horfnir út úr myndinni
og einungis 4 skráðir í eldi.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Sviptingar í búfjáreign og miklar áskoranir í
sumum greinum sem fela líka í sér tækifæri
0
10.000
20.000
30.000
40.000
50.000
60.000
70.000
80.000
90.000
Skráð hrossaeigna landsmanna í 40 ár frá 1981 -2021
Fjöldi hrossa Eigendur
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.
Heimild: Mælaborð landbúnaðarins - Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
0
100000
200000
300000
400000
500000
600000
700000
800000
900000
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26
Series2 400.724 473.553 477.275 420.235 465.637 458.367 548.707 710.190 827.927 896.000 864.000 736.000 850.000 834.000 658.000 402.000 532.000 699.000 583.000 482.000 327.000 490.000 304.000 50.000 357.000 279.000
Series1 2020 2015 2010 2005 2000 1995 1990 1985 1980 1977 1974 1970 1966 1960 1955 1949 1945 1934 1924 1901 1861 1855 1800 1784 1760 1703
Fjöldi sauðfjár í vetrarfóðrun á Íslandi frá 1703 til 2020 - Samkvæmt gögnum Mælaborðs landbúnaðarins 1981-2000 og samantekt dr. Ólafs R. Dýrmundssonar 1703-1980
M
es
ti
fjá
rfj
öl
d
frá
u
pp
ha
fi
Fj
ár
kl
áð
i
M
óð
uh
ar
ði
nd
in
M
æ
ði
ve
ik
i
Ka
lá
r
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.