Bændablaðið - 29.04.2021, Page 24

Bændablaðið - 29.04.2021, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202124 LÍF&STARF lætur það ekki stoppa sig „Ég er fædd og uppalin á Selfossi og bjó þar, þar til við fluttum í Hrútafjörðinn haustið 1984,“ segir Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka, en bærinn er rétt norðan Reykjaskóla. „Foreldrar mínir voru Magnea Kristín Sigurðardóttir frá Seljatungu og Ólafur Nikulásson (Óli Nikk) mjólkurbílstjóri. Maðurinn minn er Skúli Einarsson frá Tannstaðabakka og tókum við við búi foreldra hans. Við eigum fjögur börn, (Laufey Kristín, Eyrún Ösp, Guðrún Eik og Ólafur Einar) og níu barnabörn. Ég vann við skrifstofustörf á Selfossi eftir Verslunarskólapróf og þar til við fluttum í sveitina, en hef síðan verið bóndi, fyrst með kindur en síðan bættist nautaeldi við, minka- eldi í tvö ár, mjólkurframleiðsla og síðast bættist við kjúklingaeldi. Yngsta dóttirin, Guðrún Eik, og hennar maður tóku við jörðinni og hefðbundnu greinunum árið 2014, en við Skúli erum með kjúklinga- eldið enn þá.“ Parkinson-sjúkdómurinn Ólöf greindist 2015 með Parkinson- sjúkdóminn, sem er ólæknanlegur og versnar með árunum, mishratt eftir einstaklingum. Hún var send á Reykjalund til að læra ráð til að hamla sjúkdómnum og fræðast um hvað hægt væri að gera til að halda líkamlegri og andlegri heilsu sem bestri sem lengst. „Þar kynntist ég fimm öðrum „Pörkum“ og tókst vinskapur með hópnum og hittumst við reglulega, a.m.k. einu sinni á ári. Baráttan við hr. Parkinson er stöðug og reyni ég að halda honum í skefjum með reglulegri hreyfingu (liðleiki, þol, styrkur, ákefð) ásamt því að viðhalda fínhreyfingum með því að sauma og prjóna, og hausn- um með því að setja saman liti og reikna út munstur og stærðir og fleira. Gera sudoku og púsla. Svo þið sjáið að það er full vinna að berjast þessari baráttu, en ég tel að hún hafi tvímælalaust borið árang- ur,“ segir Ólöf og brosir, enda alltaf jákvæð og tekur sjúkdómnum af miklu æðruleysi. Velferðarteppi Ólafar „Velferðarteppi Ólafar“ hafa slegið í gegn, en hver er saga þess ver- kefnis? „Jú, ég var að taka til í saumaherberginu mínu snemma árs 2017 og rakst á efni sem ég hafði notað í bútasaum á árum áður. Ég ákvað að ég gæti nú allavega gert eitthvað úr þessu sem ég ætti og fyrir valinu varð að búa til barna- teppi. Þau eru notadrjúg og ég gæti þá gefið þau í Rauða krossinn. Hlutirnir æxluðust svo þannig að fólk vildi kaupa af mér teppin og síðan fóru konur, aðallega að senda mér afgangsefni sem þær áttu svo ég gat saumað fleiri. Þá ákvað ég að safna þessum pening- um inn á sér reikning. Í desember 2017 afhenti ég Velferðarsjóði V-Húnavatnssýslu, sem er kirkjan, Rauði krossinn og Félagsþjónustan, peninginn til gjafar. Ég bjó svo til Facebook-síðu um teppin, en síðan fékk nafnið „Velferðarteppi Ólafar“. Þetta vatt svo upp á sig, ég sauma og sauma, fæ sent fullt af efnum og sel alveg helling, ásamt því að gefa líka teppi m.a. á Landspítalann og á fleiri staði. Ég sauma líka dúka (löbera), töskur, púða, munnþurrkur og grímur. Núna er ég búin að gefa fjórum sinnum í þennan sjóð og upphæðin er komin í 2 milljónir og teppin orðin rúmlega 200,“ segir Ólöf, alsæl með árangurinn og vinnu sína, svo ekki sé minnst á að hafa gefið allan peninginn til góðgerðarmála. Maður ársins Ólöf var kjörinn maður ársins 2018 á Norðurlandi vestra af lesendum Feykis. Hún er stolt af viðurkenn- ingunni. „Já, ég varð mjög þakklát og hrærð yfir þessari viðurkenningu. Ég tel mig vera búna að fá mitt út úr saumaskapnum á teppunum. Gleðina yfir að skapa fallegan eigulegan hlut, ásamt þjálfuninni sem ég fæ út úr því. Það er svo stór bónus að einhver vill kaupa þetta, til að gleðja einhvern, borgar mér pening fyrir sem ég svo afhendi til að gleðja einhvern eða einhverja, þannig að allir vinna lotteríið.“ Heldur í gleðina Ólöf er því næst spurð um lífið, hvað það hafi kennt henni? „Já, þú segir nokkuð. Lífið hend- ir í okkur alls konar verkefnum, sumum erfiðari en öðrum. Maður heldur bara áfram og gerir það besta í stöðunni og dvelur ekki við það sem maður getur ekki, heldur það sem maður getur. Syngur eins og enginn sé að hlusta og dansar eins og enginn sé að horfa og heldur í gleðina. Það er heila málið að reyna að láta sér líða vel, bæði líkamlega og andlega, helst alla daga. Góð hreyfing er eitt af því mikilvæg- asta,“ segir hún brosandi. Á teppi á lager Ólöf segist alltaf eiga einhver bútasaumsteppi á lager vilji fólk kaupa af henni teppi og styrkja þannig góð málefni. Hún segir að langbest sé að hafa samband við sig í einkaskilaboðum í gegnum Facebook-síðuna, „Velferðarteppi Ólafar“. Við setjum punktinn hér og óskum Ólöfu velfarnaðar, hvort sem það er með teppin, fjölskylduna eða í baráttunni við sjúkdóminn og með lífið sjálft. /MHH Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka í Hrútafirði, sem lætur ekki deigan síga þrátt fyrir að vera með Parkinson- sjúkdóminn og saumar bútasaumsteppi á fullum krafti og gefur allan ágóða af sölu þeirra til góðgerðarmála. Mottó Ólafar er: „Lífið er stutt, njóttu þess.“ Myndir / Úr einkasafni Fjölskyldan á Tannstaðabakka, Skúli og Ólöf með börnum sínum, en þau heita, frá vinstri: Laufey Kristín, Eyrún Ösp, Guðrún Eik og Ólafur. Skúli og Ólöf ætla að ferðast um landið í sumar á hjólunum sínum en þau voru að fjárfesta í rafmagnshjólum. Ólöf með eitt af teppunum sínum. Guðrún Eik og maður hennar eru með kúabúið á Tannstaðabakka en þau eru með 46 árskýr. Nýlega fæddust þrír kálfar á bænum, tvíkelfingar og einkelfingur. Tvíkelfingarnir hafa fengið nöfnin Ponsa (var 23 kíló við fæðingu) og Stráksi (var 26 kíló við fæðingu) en þeir voru samtals 49 kíló við burð, en sú stóra heitir Bredda og var 52 kíló. Það munaði því 26 kílóum á Stráksa og Breddu og 29 kílóum á milli Ponsa og Breddu. Ólöf saumar ekki bara teppi, hér eru fallegir púðar eftir hana. Hluti af teppum, sem Ólöf hefur saumað af sinni alkunnu snilld þegar bútasaumsteppi eru annars vegar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.