Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202126
Ferðamálafélag Eyjafjarðar
sveitar hefur sett af stað
söfnun til að standa straum
af kostnaði við smíði á risakú
sem Beate Stormo, eldsmiður
í Kristnesi, ætlar að smíða á
næstu mánuðum. Markmiðið er
að safna 5 milljónum króna, en
ýmislegt fleira þarf að borga en
bara smíðina, frágang og fleira.
María Pálsdóttir, sem sæti
á í stjórn Ferðamálafélags
Eyjafjarðarsveitar, segir að innan
félagsins gæli menn einnig við
að gera heimildamynd samhliða
smíði og uppsetningu listaverksins,
sem á að vera nýtt kennileiti í
Eyjafjarðarsveit. Kýrin hefur
hlotið nafnið Edda og verður engin
smásmíði, 3 metra há og 5 metrar
á lengd.
Krafthamar frá Kína
Hönnun er að fullu lokið og fram
undan krefjandi smíði. Beate bíður
nú eftir krafthamri sem hún pantaði
frá Kína sem nauðsynlegur er til
að smíða svo stórt listaverk. Kýrin
verður að mestu leyti hol að innan,
en 13 járnborðar eru eftir henni og
á þeim textabrot héðan og þaðan
sem tengjast kúm. Blóm sem prýða
hliðar hennar vísa í víravirkið á
íslenska upphlutnum.
María segir tilvalið að hvetja
kúabændur til að leggja söfnuninni
lið, „og bara alla sem vettlingi geta
valdið og vilja eiga hlut í Eddu að
taka þátt í þessu með okkur,“ segir
hún. „Kýrin verður minnisvarði
um allar gæðakýr þessa lands.“
Um fimmtungur allrar mjólkur
sem framleidd er hér á landi er
framleidd í Eyjafirði, rúmlega 30
milljón lítrar á ári. /MÞÞ
Viltu aðstoð frá
góðum granna?
samfélagsverkefni
Unga fólkið í verkefninu Margar hendur vinna létt verk
vill aðstoða ykkur í sumar.
Við hjá Landsvirkjun höfum árum saman starfrækt sumar
vinnu flokka sem sinna uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
fyrirtækisins og nágrennis. Jafnframt taka flokkarnir að
sér ýmis samstarfsverkefni með nágrönnum okkar vítt
og breitt um landið.
Við bjóðum fram vinnu sumarvinnuhópa og verkstjórn
í verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum
umhverfisbótum, ásamt ýmsum samfélagsverkefnum.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí og má nálgast
umsókn og allar nánari upplýsingar á landsvirkjun.is.
Hafðu samband ef þú ert nágranni okkar og vilt fá
vinnuhóp í heimsókn í sumar.
LÍF&STARF
Hacking Norðurland – veflægt lausnamót:
Grænlamb úr Kelduhverfi hlutskarpast
– Vörumerki fyrir kolefnishlutlausa sauðfjárrækt á sjálfbæru landi
Svokallað lausnamót, Hacking
Norðurland, var haldið dagana
15.–18. apríl. Um hugmynda
samkeppni var að ræða þar sem
lagt var upp með að virkja sköp
unarkraftana til sjálfbærrar nýt
ingar auðlinda út frá „orku, vatni
og mat“. Vinningshugmyndin
heitir Grænlamb – Keldhverfskt
kjöt af algrónu landi, sem þær
Salbjörg Matthíasdóttir, Guðríður
Baldvinsdóttir og Berglind Ýr
Ingvarsdóttir standa á bak við.
Hugmyndin snýst um að búa til
vörumerki fyrir sauðfjárbændur
úr Kelduhverfi í Norðurþingi sem
er með vottun um að féð gangi á
vel grónu og sjálfbæru landi.
Með vottun um slíka sjálfbærni
er ætlunin að auka verðmæti
sauðfjárafurða Kelduhverfis og
um leið gefa neytendum tækifæri
til að kaupa kolefnishlutlausan
próteingjafa. Allar stunda þær
Salbjörg, Guðríður og Berglind
sauðfjárbúskap í Kelduhverfi.
Frumlegasta verkefnið var valið
Geothermal Ginger, sem hefur það að
markmiði að rækta engifer á Íslandi
með hitaveituvatni og raflýsingu.
Veflægt mót í gegnum
Hugmyndaþorp
Lausnamótið var veflægt, haldið
í gegnum samsköpunarlausnina
Hugmyndaþorp sem þróuð er
af sprotafyrirtækinu Austan
mána í samstarfi við Hacking
Hekla. Þátttaka var því ekki háð
staðsetningu.
Í kynningu á verkefninu
Grænlamb kom fram að markmiðið
sé að stækka lambakjötsmarkað-
inn, ná til nýrra viðskiptavina sem
hafa hætt að kaupa lambakjöt vegna
þess að ekki hefur verið í boði að
kaupa kjöt eftir ástandi beitilanda
eða kolefnisspori búskaparins.
Í kynningunni kom einnig fram
að Kelduhverfi er talið henta vel
til slíks verkefnis þar sem tæplega
90 prósent af beitilandinu er vel
gróið og aðeins þrjú til fimm pró-
sent af beitilandi í heimalöndum
er framræst.
Stefnt að sambærilegum mótum
í öðrum landshlutum
Tæplega 70 þátttakendur skráðu sig
til leiks og sjö þátttakendur kynntu
verkefni sín fyrir dómnefnd. Um
helmingur þátttakenda voru af
Norðurlandi og þar af átta búsettir
á Norðurlandi vestra. Alls komu
um 50 manns að lausnamótinu á
einn eða annan hátt sem fyrirles-
arar, mentorar eða dómarar.
Markmið lausnamótsins var að
efla frumkvöðlastarf og sköpunar-
kraft á svæðinu og þannig stuðla að
nýjum viðskiptatækifærum og ver-
kefnum, ásamt því að vekja athygli
á því öfluga frumkvöðlasamfélagi
sem er á Norðurlandi.
Áður hefur sams konar lausn-
amót verið haldið á Suðurlandi,
Hacking Suðurland, þar sem ver-
kefni um frumuræktun ávaxta bar
sigur úr býtum.
Stefnan er sett á fleiri sambæri-
leg lausnamót í öðrum landshlut-
um.
/smh
Guðríður Baldvinsdóttir, Salbjörg Matthíasdóttir og Berglind Ýr Ingvarsdóttir.
Sauðfé í Kelduhverfi.
Smíði að hefjast á risakúnni
Eddu í Eyjafjarðarsveit
– Stefnt að því að safna 5 milljónum króna til að standa straum af kostnaði
Beate Stormo, eldsmiður í Kristnesi, hefst senn handa við að smíða kú sem
verður 3 metrar á hæð og 5 metrar á lengd. Hér heldur hún á módeli af kúnni.
Mynd / MÞÞ