Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 33
segir Þorbjörg. Ekki leið langur tími
frá því geiturnar komu á bæinn þar
til þau fóru að hugleiða hvort ekki
mætti nýta eitthvað frá þeim.
„Það er mjög ríkt í okkur bænd-
um að finna möguleika til að nýta
alla hluti,“ segir hún.
Margir miðluðu þekkingu
Þorbjörg hafði samband við
Jóhönnu á Háfelli sem er manna
fróðust um geitur og fékk góð
ráð en einnig leitaði hún ráða
hjá gömlum skólabróður sínum,
Þorgrími á Erpsstöðum, sem var
meira en fús til að liðsinna henni
fyrstu skrefin. Úr varð að hún
brunaði vestur á Erpsstaði með
geitamjólk í farteskinu og þau hófu
tilraunastarfsemi sína þar.
„Ég fann strax þá að þetta átti vel
við mig, mér fannst þetta áhugavert
og skemmtilegt og þarna má segja
að boltinn hafi farið að rúlla,“ segir
hún.
Fleiri lögðu fram aðstoð
og miðluðu af þekkingu sinni,
m.a. Þórarinn Egill Sveinsson
mjólkurverkfræðingur en ekki
er komið að tómum kofunum hjá
honum þegar ostagerð er annars
vegar. Eftir að hafa aflað sér
þekkingar og prófað sig áfram varð
til fullunnin vara, salatostur sem
kallaður er Moli. Hann hefur verið
í framleiðslu á Lynghóli undanfarin
misseri og líkar vel.
Aukavinna við smökkun
Þorbjörg segir að Guðni hafi verið í
eins konar aukavinnu við að smakka
allan tilraunavarninginn sem hún
hefur framleitt undanfarin misseri.
„Hann hefur verið í því að borða
það sem ég bý til og segja hvað
honum finnst. Ég tek auðvitað
mark á hans ráðleggingum,“ segir
hún. Vinir og ættingjar hafa einnig
samviskusamlega verið notaðir
í smökkun og álitsgjöf og segir
Þorbjörg frábært hversu fúsir allir
hafi verið í að taka þátt í að bragða á
misgóðum tilraunum sínum.
„Það er svo skemmtilegt við
ostagerð að mistök verða oft til þess
að það fæðist ný afurð. Það var það
fyrsta sem Þorgrímur kenndi mér. Ef
eitthvað klúðrast, skoðaðu þá hvað
þú getur gert við það, sagði hann.
Langoftast verður til ný tegund af
osti, stundum ost sem verður bara
til í eitt skipti því oft áttar maður sig
ekki á hvað gerðist og nær ekki að
gera sama hlutinn á ný. En það sem
er langskemmtilegast í þessu öllu er
að fjölbreytnin er svo mikil,“ segir
Þorbjörg.
Nefnir hún að einmitt það hafi
gerst þegar hún var að prófa sig áfram
í skyrgerðinni.
„Ég stóð allt í einu uppi með afurð
sem var ansi lík grískri jógúrt og
smakkaðist rosalega vel. Mín heppni
í það skiptið var að ég vissi hvað ég
hafði gert og gat því gert það aftur.“
Koma sér upp aðstöðu heima
Síðastliðið haust fengust leyfi bæði frá
Matvælastofnun og heilbrigðiseftirliti
til að nýta geitamjólkina og
framleiða úr henni varning til sölu.
Þorbjörg hefur unnið vörur sínar í
vottuðu eldhúsi í félagsheimilinu
Arnhólsstöðum. Hún segir mjög gott
að komast þar að, en hefur nú hug á
að setja upp eigin aðstöðu heima á
bæ. Segir að líklegast sé að keyptir
verði tveir gámar og felldir saman
í eitt hús. Aðstöðu til að vinna ost,
skyr og jógúrt úr geitamjólk verði
komið fyrir þar.
„Við erum að leggja drög að þessu
núna og planið er að byrja á að vinna
við undirlagið, lagnir og þess háttar
núna á haustdögum og fram á vetur
og setja gámana upp þegar fer að
vora, í mars apríl á næsta ári. Mitt
markmið er að vinna við þetta sjálf og
skapa mér vinnu. Það er ekki stefnan
að vera með starfsfólk í þessu, ég
vil að þetta sé handverksvara sem
ég framleiði. Þannig að ég mun bara
framleiða það magn sem ég kemst
yfir sjálf,“ segir Þorbjörg.
Gaman að þróa eitthvað nýtt
Vel hefur gengið með ostinn þó hann
sé til þess að gera nýlega kominn í
sölu og kunna viðskiptavinir vel að
meta hann.
„Það selst alltaf allt upp á
augabragði,“ segir hún.
Síðustu mánuði hefur Þorbjörg
verið að þróa fleiri vörur, skyr og
gríska jógúrt, og segir að þegar hún
fær nýja mjólk í sumarbyrjun verði
hafist handa við framleiðsluna.
„Það er alltaf gaman að þróa
nýjungar, þetta hefur verið
skemmtilegt ferli og kennt mér m.a.
að það verður að nota nýja mjólk en
ekki frysta til að búa þessar vörur til,
þannig að nú er bara að bíða fram
í júní og bretta svo upp ermarnar.“
Þorbjörg er í samstarfi við
hótelhaldara á Hótel Blábjörg á
Borgarfirði eystra sem ætla að nota
vörur frá henni á sínum matseðli.
Ostinn m.a. á nýjung sem nefnist
kartöflupitsa svo dæmi sé nefnt.
„Þetta er mjög hugmyndaríkt fólk
og spennandi fyrir mig að komast í
samstarf við þau. Ég hlakka til að sjá
hver framvindan verður.“
Taka á móti gestum og brúa bil
milli dreifbýlis og þéttbýlis
Búið að Lynghóli er opið þeim
gestum og gangandi sem langar
að kynnast húsdýrunum og eftir
að geiturnar komu á bæinn hefur
töluverð ásókn verið í að koma
þangað og skoða kiðlingana. Enda
fátt fallegra og skemmtilegra en að
fylgjast með þeim, þeir eru gæfir og
fjörugir og Þorbjörg segir börn og
kiðlinga eiga einkar vel saman.
„Markmiðið með því að leyfa
fólki að koma og skoða er fyrst og
fremst til að leggja okkar af mörkum
í þá átt að brúa bilið sem virðist vera
milli sveitarinnar og kaupstaðarins.
Það er ekki lengur sjálfsagt að eiga
vini eða ættingja í sveit sem hægt er
að heimsækja og kynnast dýrum á
þann hátt,“ segir Þorbjörg.
Leikskólar og stakir bekkir í
grunnskólum hafa komið að Lynghóli
á sauðburði og fengið að fylgjast með
og fyrir marga er heimsókn í Lynghól
partur af vorkomunni.
„Við sjáum að foreldrar hafa ekki
síður gaman af þessu en börnin,“
segir Þorbjörg.
Kletthálsi 3 · 110 Reykjavík · Sími: 540 4900 · yamaha.is
ÁREIÐANLEIKI
KRAFTUR GÆÐI
YAMAHA utanborðsmótorar hafa
reynst afar vel við íslenskar
aðstæður bæði á sjó og vötnum.
Kraftur &
öryggi fleytir
þér langt
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hér er verið að búa til skyr úr geita-
mjólk en framleiðsla á því hefst af
krafti í sumar. Eins verður búin til
grísk jógúrt úr geitamjólkinni.
Salatosturinn Moli sem unninn
er úr geitamjólk líkar vel og nýtur
vinsælda.
Ostur í krukku. Vel hefur gengið
með ostinn þó hann sé til þess að
gera nýlega kominn í sölu og kunna
viðskiptavinir vel að meta hann.
Geitur er skemmtilegar, gæfar og fjörugar og gefa eigendum sínum mikið.
En afurðirnar má einnig nýta svo sem raunin er orðin á Lynghóli.