Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 34

Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202134 ULLARVINNSLA&NÝTING Mikil gróska í félagsstarfi ullarvinnsluhópa og ýmis tækifæri eru í nýtingu hráefnisins Á dögunum var haldinn fyrsti Evrópski ullardagurinn. Ísland tók þátt í viðburðinum og safnað- ist fólk saman í smærri og stærri hópum til að upplifa viðburðinn í beinu streymi frá Róm, þaðan sem útsendingunni var stjórnað. Allnokkrir aðilar, einstaklingar og hópar, vinna markvisst að ullarvinnslu í stórum og smáum stíl á Íslandi og gjarnan í félagsskap sem myndaður er utan um áhugamálið. Hér á eftir fer umfjöllun um nokkra þá sem tóku beinan þátt í Evrópska ullardeginum auk annarra sem héldu hann hátíðlegan og eru virkir í ullarvinnslu með einum eða öðrum hætti. Spunasystur – Rangárvallasýsla Spunasystur er hópur kvenna í Rangárvallasýslu. Saga þeirra hófst þegar nokkrar vinkonur tóku sig saman og fóru á námskeið til að læra að spinna. Þær hittust reglu- lega til að æfa sig og vinna saman að þessu nýja áhugamáli og fljótlega bættust fleiri í hópinn sem höfðu sama brennandi áhugann á spuna og gömlu handverki. Sextán Spunasystur Í dag eru Spunasystur 16 talsins og hittast hálfsmánaðarlega yfir veturinn og skiptir þá engu hvernig veðrið er, það stoppar þær ekkert við að koma saman. Hver og ein mætir með sinn rokk, kembivél eða bara prjóna ef þeim sýnist svo. Þær eiga flestar kindur og því eru þær mikið að vinna sína eigin ull. Það gefur spunanum annan blæ þegar verið er að vinna með eigin ull því þá er nákvæmlega vitað hvaðan hráefnið er og hvað þær eru með í höndunum, auk þess sem þekking á hráefninu eykst og hægt að færa hana yfir í ræktunarstarfið og þannig efla þá eiginleika sem hverjum og einum þykir eftirsóknarverður. Þær hafa farið á ýmiss konar námskeið í alls konar spuna bæði hér á landi og erlendis og fengið til sín kennara víðs vegar að úr heiminum. Það má því segja að í hópi Spunasystra sé orðin til margþætt þekking á margs konar spuna og meðferð ullar og öðru hráefni sem má spinna úr. En þær láta spunann ekki einan nægja, heldur eru þær líka að lita, bæði með jurtum og öðrum efnum. Þær gera sápur, vefa, þæfa, flétta úr hrosshárum og súta gærur og skinn. Áhrif af vinnu Spunasystra gætir orðið víða í Rangárvallasýslu og þá sérstaklega í Rangárþingi ytra og Ásahreppi. Þar má orðið finna þó nokkrar vinnustofur þar sem unnið er með ull, vefstofu, sútunarverkstæði og spunaverksmiðju. Og sauðfjárbændur horfa til þeirra í sinni ræktun og hafa bætt við litaflóruna í sínu fjárhúsi. Því má segja að ull og ræktun hennar hafi náð æði miklum fram- förum síðan þær byrjuðu með sitt starf, því þekking á ullargæðum eykst þegar unnið er með ullina alla leið frá ræktun lambsins til fullunn- innar peysu. Margar af Spunasystrum eru farn- ar að rækta feldfé og hafa unnið bæði ull og gærur af þeim, en þar á meðal er einnig lögð áhersla á að rækta ull í fjölbreyttum litum og með háragerð sem hentar í ólík verkefni. Handraðinn – Eyjafjörður Handraðinn er hópur fólks í Eyjafirði sem í upphafi kom saman til að að sauma eða gera upp þjóðbúninga undir leiðsögn. Það kveikti áhuga fyrir þjóðlegum hefðum og hópur- inn fór að sinna ýmsum tegundum handverks um leið og hópurinn stækkaði. Einkenni Handraðans eru að leita þekkingar um horfna starfs- hætti og miðla henni áfram, taka þátt í starfsdögum safna og menn- ingartengdum viðburðum, að halda fræðslufundi og vera með námskeið til dæmis í spuna, vefnaði, tólgar- sápugerð, útsaumi, skyrgerð, knipli og ýmislegt fleira að ógleymdum þjóðbúningasaumi sem er alltaf fullbókaður. Heimili Handraðans er í gamla Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði. Stofnfundur var haldinn fimmtudaginn 22. nóvember 2001 og hét félagsskapurinn þá Laufáshópurinn. Stofnfélagar árið 2001 voru tæp- lega 30, nokkrum árum seinna var nafni félagsins breytt í Handraðann með nokkra undirhópa. Það geta allir gerst félagar og eru þeir núna um 190, en ekki nema um 50 virkir. Tveir undirhópar Handraðans Handraðinn er með tvo fasta daga í mánuði fyrir fundi og undirhópar í félaginu eru líka með einn til tvo fasta fundardaga í mánuði Undirhópar, eða hópar innan félagsins, eru: • Laufáshópur, sem er með starfsdaga í Laufási nokkrum sinnum á ári í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Það fólk hefur saumað sér fatnað til að skarta þessa daga og eru það búningar frá um 1900-1930. • Gásahópur/miðaldahóp- ur hefur líka saumað sér búninga tengda tímabili Gásakaupstaðar og hafa verið í búðum þar eina helgi að sumri. Báðir þessir hópar eru líka með ýmsa muni tengda þessum tímum og hafa verið með sýningar á Handverkshátíðinni á Hrafnagili. Spunahópur hittist nokkrum sinnum í mánuði og spinnur saman og á Laugalandi er aðgangur að vefstól/ stólum til að vefa þjóðbúningasvuntur eða Brekán svo eitthvað sé nefnt. Þingborg – Árnessýsla Þingborgarullin er sérvalin úrvals lambsull. Ullarvinnslan Þingborg rekur sögu sína aftur til ársins 1990, er hópur kvenna á Suðurlandi sótti þar námskeið í ullariðn, undir stjórn Helgu Thoroddsen vefjarefnafræðings og Hildar Hákonardóttur veflistakonu. Kennd voru bæði gömul og ný vinnubrögð við ullarvinnslu og almenn fræðsla um eiginleika ullar og vinnslu hennar. Fljótlega kom upp hugmynd að verslun með ullarvörur og innan árs frá því fyrsta námskeiðið var haldið opnaði námskeiðshópurinn verslun í gamla samkomuhúsinu í Þingborg í gamla Hraungerðishreppi, nú Flóahreppi, og stofnað var samvinnufélag utan um hópinn og reksturinn og voru stofnfélagar 35. Fyrstu árin skiptu Þingborgar- konur með sér verkum í verslun- inni á sumrin, en hún var eingöngu opin yfir sumarmánuðina. Síðan hafa einstakar konur innan hópsins tekið að sér að reka verslunina og stundum tvær saman. Verslunin var lengi rekin á kennitölu samvinnufé- lagsins en frá 1. janúar 2019 hefur hún verið rekin sem einkahlutafé- lag einnar í hópnum. Auk þess er starfskraftur í 60 prósent hlutastarfi og því hefur ræst sú sýn sem lagt var upp með, að skapa atvinnu fyrir konur á svæðinu. Verslunin tekur ullarvörur í umboðssölu og eins er keypt inn nokkuð af vörum til að selja. Allar prjónavörurnar í versluninni eru úr Þingborgarlopa en hann er sér- unninn fyrir Þingborg af Ístex og svo hefur verið allt frá árinu 1992. Þingborgarkonur fara í Þvottastöð Ístex á Blönduósi einu sinni á ári og velja lambsull sem svo er þveg- in á Blönduósi og kembd hjá Ístex í Mosfellsbæ. Einnig er þvegin ull og kembd í kembivélinni okkar í Þingborg, bæði til sölu í versluninni og í verktöku. Lopapeysur eru aðal söluvaran í Þingborg. Konur í hópnum sem og þær sem leggja inn peysur hanna sín eigin mynstur og þannig verður til mjög fjölbreytt flóra af lopapeysum. Einnig er mikið úrval af lituðu bandi og lopa, Þingborgarlopinn er eftirsóttur af prjónafólki. Á fimmtudögum hittast Þing- borgarkonur og bera saman bækur sínar. Oft er gestkvæmt þessa daga, áhugafólk leitar í þekkingarsmiðjuna og öll förum við glöð heim. Spunasystur hittast hálfsmánaðarlega og láta ekki óblítt veður stoppa sig. Hópur úr Handraðanum prjónar saman á Evrópska ullardeginum. Lopapeysur eru aðalsöluvaran í Þingborg.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.