Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 35
ULLARVINNSLA &NÝTING
Hefðum haldið við
Ullarvinnslan hefur reynst
mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni
að halda við hefðum í ullarvinnslu
og ekki síður að skapa nýjar. Ullin
á mikla framtíð fyrir sér nú þegar
augu fólks eru að opnast fyrir því
að nota ull og önnur náttúruleg efni
til fatagerðar o.fl. í stað gerviefna.
Við leggjum einnig mikla áherslu á
gæðastjórnun, siðræna verslun og
sjálfbæra framleiðslu.
Sjá má vöruúrval á www.thing
borg.is
Ullarselið – Borgarfjörður
Í Halldórsfjósi á Hvanneyri er að finna
draumaheim ullarfíkilsins. Veröld sem
umvefur þig hlýju og fegurð íslensku
ullarinnar. Hvert sem litið er, er ull
í einhvers konar formi. Peysur af
öllum toga, húfur bæði hefðbundnar
og óhefðbundnar, jurtalitað einband
í öllum regnbogans litum, flókaskór,
íleppar, púðar, teppi, sjöl, band og
mynd af kindinni sem það kom af,
og svo er það handspunna bandið.
Handspunnið band, hvað er það?
Margir Íslendingar eiga minningar
af því þegar móðir þeirra eða amma
sátu við rokk og spunnu ull í band.
Taktfastur sláttur rokksins og liprar
hendur sem teygðu lopann og mötuðu
inn á snældu rokksins. Verk sem gekk
kynslóða á milli lengur en búið hefur
verið á Ísafold, fyrst var spunnið á
spunatein, svo halasnældu og loks
gamla góða rokkinn.
Gömul tóvinnuhefð
En það er þessi gamla hefð fyrir
tóvinnu sem varð að stórum hluta til
þess að Ullarselið var stofnað árið
1992. Ári áður hafði kennsla í tóvinnu
hafist í Bændaskólanum og strax varð
ljóst að vantaði vinnustofu eða gallerí
fyrir handverksfólk á Vesturlandi.
Farið var að leggja grunn að því
sem síðar varð Ullarselið. Lykilfólk
í stofnun Ullarselsins voru Sveinn
Hallgrímsson, þáverandi skólastjóri
Bændaskólans, og Jóhanna Erla
Pálmadóttir, en hún hefur kennt
tóvinnu frá 1991 til dagsins í dag.
Ullarselið var stofnað með það
að leiðarljósi að halda lífi í gömlum
handverkshefðum, vera staður fyrir
handverksfólk til að starfa saman
og skapa frjósaman jarðveg. Einnig
stuðla að því að handverk kvenna sé
metið að verðleikum. Frá upphafi
hefur verið lögð gífurleg áhersla á
gæði og vandað handverk, engin vara
fer í sölu án þess að fara í gegnum
strangt gæðaeftirlit.
Ullarselir eru um 30 talsins,
handverksfólk víðs vegar af
Vesturlandi, nánast allt konur en
með hópnum starfa tveir karlmenn.
Reynt er að hittast reglulega yfir
vetrartímann á spunakvöldum. Þau eru
oftast haldin í kringum þann tíma er
tóvinnan er kennd í Bændaskólanum
og þá býðst nemendum að mæta og
vinna í sinni handavinnu og fá aðstoð
frá þeim viskubrunnum sem mæta.
Spunakvöldin hafa undanfarin ár
verið opin þeim sem langar að fá
örnámskeið í spuna og fólk innan og
utan héraðs hefur komið og lært. Þetta
hefur vakið mikla lukku enda er alltaf
gaman að fá inn nýtt fólk.
Allt sem Ullarselið lætur frá sér
er handgert úr íslensku hráefni og
þar fer mest fyrir ullinni. Sú ull sem
er notuð er ýmist gamli góði lopinn,
handspunnið band, kembd eða ókemd
ull í þæfðar vörur og ofnar. Svo með
tilkomu smáspunaverksmiðjunnar
Uppspuna eru konur farnar að senda
ull úr eigin ræktun og fá til baka full
unnið band eða lyppur til að spinna
úr. Einnig er hægt að fá handspunnið
band úr kanínufiðu og geitafiðu.
Íslenska geitin gefur af sér dásam
lega mjúka ull sem loksins er hægt
að nýta til hins ýtrasta með tilkomu
Uppspuna. Í Ullarselinu er eitt besta
úrval landsins af handspunnu bandi
og vörum úr því. Einnig er gott úrval
af skartgripum og tölum og alls lags
góssi úr hornum og beinum.
Ullarselið er til húsa í Halldórs
fjósi á Hvanneyri, það er opið allt árið
um kring og tekið er vel á móti öllum
sem vilja leggja leið sína til þangað.
Uppspuni – Rangárvallasýsla
Uppspuni er fjölskyldurekin
smáspunaverksmiðja, staðsett rétt
austan við Þjórsárbrú. Uppspuni tók
til starfa 1. júlí 2017 og var opnað
formlega 18. mars 2018.
Í dag vinna tveir starfsmenn fulla
vinnu við Uppspuna og 4 aðilar eru
í hlutastarfi, enda verkefnin næg og
fjölbreytt.
Uppspuni vinnur alla ull sem til
fellur á búi eigendanna, auk þess sem
ull er keypt í nágrenninu til vinnslu
og sölu í lítilli verslun sem er fyrir
ofan vinnsluna.
Þá er hægt að koma með ull af
eigin kindum í Uppspuna og fá
hana unna í band eftir óskum hvers
og eins.
Sérstök áhersla er lögð á að vinna
með sauðalitina eins og hver kind
gefur. Þannig verður hver vinnslulota
einstök og ekki alltaf mögulegt að fá
nákvæmlega sama lit að ári. Það er
misjafn litur milli kinda og það er
einnig misjafn litur á kindum milli
ára og þar spilar margt inn í ferlið.
Nokkrir áhrifaþættir eru veðurfar
og fóður, en miklar rigningar hafa
önnur áhrif á ull, bæði hvað varðar
lit og gæði, heldur en mikið sólskin
gerir. Eins er töluverður munur á
ull af sauðfé sem gengur á hálendi
Íslands yfir sumarið eða nýtir beit
niðri við fjöruborðið.
Flekkótt reyfi með því mýksta
sem kemur í hús
Vinna með ull eins og kindin
gefur hefur einnig sýnt okkur
að mismunandi litir geta gefið
mismunandi áferð eða mýkt og hefur
vakið sér staka athygli að flekkótt reyfi
eru oft með því mýksta sem kemur
í hús.
Aldur kindarinnar getur sömuleiðis
haft áhrif á garnið sem kemur úr
vinnslusalnum og þótti sérstaklega
áhugavert að elstu kindurnar voru
stundum með allra mýkstu útkomuna.
Það er áhugavert og spennandi
verkefni að fást við ull af íslensku fé
alla daga og búið að vera afskaplega
gefandi. Uppspuni er með nokkrar
ólíkar tegundir af garni í reglulegri
vinnslu, en auk þess ýmsar
hliðarafurðir úr ull eða hluti sem má
nota til að vinna ull með.
Fram undan eru spennandi tímar
þar sem enn frekari vinnsla með ull
og aðferðir við vinnslu munu líta
dagsins ljós.
Feldfjárbændur á Íslandi
Feldfjárrækt er nokkuð nýleg
hliðargrein í ræktun sauðfjár á Íslandi.
Upp úr miðri síðustu öld var skoðað
að rækta feldfé hér, en það náði ekki
fótfestu.
Um 1980 var farið að rækta það
markvisst og þá helst í Meðallandi
og fyrir vestan, m.a. á Vestfjörðum.
Á Bakkakoti í Skaftafellssýslu
hjá Guðna Runólfssyni og Ingunni
Hilmarsdóttur, varð til eitt öflugasta
feldfjárræktarbúið. Rétt fyrir síðustu
aldamót varð hrun í feldfjárrækt og
henni einungis haldið áfram að litlu
leyti í Meðallandinu.
Upp á síðkastið þegar fólk hefur
uppgötvað að nýju hve ull er frábær,
er ekkert skilið eftir og feldfjárrækt
in fór að fá áhugasama ræktendur til
liðs við sig sem töluðu máli hennar
og óskuðu eftir að geta tekið þátt í
þessari ræktun.
Sauðfjárveikivarnir hömluðu
dreifingu erfðaefnis, en þegar
sæðingarstöðvar Íslands tóku inn
hrúta með feldfjárgenum fór boltinn
að rúlla og í dag eru til kindur með
feldfjárblóði víða um land og áhuginn
er mikill.
Félag hefur verið stofnað um
ræktunina og mikill metnaður lagður
í að fylgja þeim markmiðum sem
sett hafa verið til að kind geti talist
til feldfjár.
Eitt aðalmarkmið feldfjárræktar
er að rækta gráar kindur með langa
hrokkna lokka sem hafa mýkt og
gljáa. Mesta áherslan er lögð á áferð
og útlit ullarinnar og gefin einkunn
fyrir hvern þátt hennar, lit og þéttleika.
En holdfylling skiptir litlu sem engu
máli.
Fyrst og fremst er það gæran
af feldfé sem er verðmæt, en ullin
er sömuleiðis áhugaverð og hafa
feldfjárbændur prófað sig áfram
við nýtingu hennar. Uppspuni hefur
spunnið ull fyrir feldfjárbændur,
en einnig hefur verið sent til
spunaverksmiðja erlendis til að fá
fjölbreyttari útgáfur af garni.
– Framhald á næstu opnu.
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
LAmb - ær - Hrútur
www.gilhagi.is
Nýull að norðan
Ullarselið á Hvanneyri í Halldórsfjósi.
Hannyrðir í Uppspuna, á efri hæðinni fyrir ofan vinnsluna.
Gærur af feldfé.