Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 36

Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 2021 ULLARVINNSLA&NÝTING Fræðasetur um forystufé – Þingeyjarsýsla Daníel Hansen forstöðumaður greinir hér frá starfseminni: „Þegar ég flutti í Þistilfjörð fyrir all- nokkrum árum sá ég fyrst hvernig forystufé vinnur og varð alveg heill- aður. Ég fór að kynna mér þetta fé betur og sá fljótlega að þetta eru einstakar skepnur með hæfileika sem annað sauðfé er ekki með. Mér fannst sérstaklega merkilegt að það er hvergi til í heiminum nema hér á landi og er allt ættað úr Norður- Þingeyjarsýslu. Á Svalbarði er gam- alt samkomuhús og fékk ég hugmynd að því að stofna setur um forystufé og fá afnot af húsinu. Húsið hafði staðið autt í mörg ár og eftir að Fræðafélag um forystufé var stofnað 1. apríl 2000 fór allt af stað. Mestur tími fór í að safna styrkjum til að gera við húsið og byggja upp Fræðasetur um for- ystufé. Allt tókst að lokum með mik- illi sjálfboðavinnu og aðstoð margra sérfræðinga. Setrið á hvergi betur heima en á því svæði þar sem allt forystufé á uppruna sinn. Fræðasetur um forystufé var formlega opnað í júní 2000. Upplýsingasetur Í Fræðasetri um forystufé er búið að safna saman óhemju miklum upplýsingum um forystufé, greinum, frásögnum, myndum og öllu því sem þessu fé tengist. Þar geta allir sem áhuga hafa sótt upplýsingar og höfum við talsvert aðstoðað nemendur og vísindamenn sem eru að vinna að verkefnum bæði innanlands og erlendis. Þá hefur talsvert verið leitað til okkar, sérstaklega erlendis frá að fá okkur til að flytja fyrirlestra um forystufé en mikill áhugi á því er víða í nágrannalöndum okkar. Rannsóknir Ekki eru miklar rannsóknir til um forystufé en þær sem gerðar hafa verið eru aðgengilegar í setrinu. Við höfum stuðlað að rannsóknum, m.a. samanburði á ull af forystufé og öðru fé og kom þar í ljós að forystufé er með öðruvísi ull. Allstór rannsókn fór fram á erfðum forystufjár með tilliti til viðkvæmni gagnvart riðu. Voru tekin sýni úr nánast öllu forystufé í Norðausturhólfi. Þar kom í ljós að stór hluti forystufjár á svæðinu er með áhættuarfgerð gagnvart riðusmiti. Í kjölfar rannsóknarinnar hafa ræktendur reynt að nota þær upplýsingar sem þeir hafa til þess að eyða út forystukindum með áhættuarfgerð og nýta hinar til undaneldis. Nú er að ljúka verkefni þar sem gagnagrunninum Fjárvís er breytt aðeins með tilliti til áherslna í ræktun forystufjár og forystufé er skilið frá hinum fjárstofni landsins í gagna- grunninum. Í kjölfar þess að forystu- fé verður í sér gagnagrunni er hægt að fara að sækja um hjá UNESCO að fá forystufé viðurkennt sem stofn í útrýmingarhættu en stofninn upp- fyllir flest það sem þarf til þess. Aðeins eru um 1.400 hreinræktaðar forystukindur til í landinu og allar ættaðar af Norðausturlandi. Ull Fljótlega fórum við að kaupa ull af forystufé hjá bændum. Þá hófst þrautaganga. Engin spunaverksmiðja var í landinu sem gat unnið svo lítið magn sem við látum vinna, eða um 100 kíló á ári. Mest létum við spinna fyrstu árin í Noregi en einnig svolítið í Svíþjóð og Litháen. Þegar spunaverksmiðjan Uppspuni var opnuð var það eins og himnasending fyrir okkur og var öll okkar ull unnin þar í nokkur ár þar til Spunaverksmiðjan í Gilhaga í Öxarfirði var stofnuð. Hún er í nágrenninu og minnkar það sendingarkostnað fyrir okkur og kolefnissporið minnkar mikið. Svolítill hluti ullarinnar er handspunninn og er hægt að fá allt hjá okkur, óþvegna ull, þvegna ull, lyppur, handspunnið band og vélspunnið. Þá höfum við látið sérspinna band í tweed-vinnslu. Það er ofið á Suðureyjum fyrir Kormák og Skjöld og er þar í gangi hönnun á vörum úr forystu-tweedi. Ull af forystufé er mýkri en ull af öðru fé og allt öðruvísi viðkomu. Þetta gerir ullina eftirsóknarverða og að auki er meðhöndlun hennar þannig að bandið er feitara viðkomu. Í dag er unnið úr um 100 kílóum af ull og er mestöll ullin mislit og verðlítil fyrir bændur nema við kaupum kílóið á 500 krónur. Við getum ekki keypt mikla ull utan norðaustursvæðisins vegna sauðfjársjúkdóma. Gaman er að geta þess að gamlar sagnir segja: „Ef þú klæðist fatnaði unnum úr ull af forystufé þá ratar þú alltaf heim.“ Það er ekki ónýtt að fá það í kaupbæti. Gilhagi – Öxarfirði Í tilefni fyrsta evrópska ullardagsins sýndu þau Brynjar Þór og Guðrún Lilja í Gilhaga, Öxarfirði, úr Ullarvinnslunni Gilhaga á sínum samfélagsmiðlum vinnsluferlið í máli og myndum, frá ullarreyfi yfir í tilbúna hespu sem er tilbúin á prjónana. Farið var yfir hvert þrep í vinnsluferlinu og handtökin þar á bakvið útskýrð. Þar sem ullin kemur algerlega ómeðhöndluð til vinnslu hefst ferlið á því að ullin er þvegin. Síðan tekur við vinnsluferli þar sem ullarþræðirnir eru opnaðir, skilið í sundur tog og þel og ullin síðan kembd í lyppur sem fara síðast í gegnum spunavélina. Eftir það er bandið tvinnað eða þrinnað, gufað og að lokum hespað í rétta lengd. Dagurinn byrjaði á því að þrír góðir bændur frá nágrannabæjum komu við með rúningsgræjur og tóku léttan rúning. Eftir það tók við hefðbundinn vinnudagur í ullarvinnslunni en í hjáverkum var tekið upp vinnsluferlið til að deila á samfélagsmiðlum. Í tilefni dagsins var ákveðið að setja kynningarpakka í sölu en hann inniheldur 5 hespur í þeim spunagerðum sem þau bjóða upp á. Hann er til sölu í vefverslun þeirra á www.gilhagi.is. Ullarvinnslan Gilhagi hefur núna í sumar verið starfrækt í ár, við vinnsluna er einn starfsmaður í fullu starfi. Vinnur hún einungis ull af sínu sóttvarnarsvæði. Stórhóll – Skagafirði Á Stórhól í Skagafirði býr Sigrún Helga Indriðadóttir, handverkskona, bóndi og garðyrkjufræðingur. Stórhóll er við veg 752 tæpa 20 km frá Varmahlíð. Þar rekur hún Rúnalist Gallerí, litla Beint frá Býli verslun og vinnustofu þar sem seldar eru vörur beint frá býlinu, Sauðaband, Lambaband, Bekraband, Geitaband, ull og Stökur. Undir merkjum BændaBita eru einnig í boði kjötvörur unnar úr sauðfjár- og geitaafurðum, ásamt fleiru. Sauðaband, Lambaband, Bekraband og Geitaband er unnið fyrir okkur af Uppspuna smáspunaverksmiðju. Ullin kemur öll af okkar kindum, og er rekjanleg til viðkomandi kindar. Sauðaband REBBA 2020 – er unnið úr ull af Rebbu, spunnið árið 2020. Sauða- og Lambabandið er rekjanlegt til einstaklinga en Bekraband og Geitaband er rakið til hjarðar. Regnbogalitað Sauðaband er handlitað á býlinu. Mikil vinna liggur að baki Geitabandinu. Geitur eru ekki rúnar eins og kindur, heldur kembdar með til þess gerðum kömbum. Að kemba eina geit tekur drjúgan tíma og svo þarf að hreinsa strý og óhreinindi frá fiðunni áður en hægt er að spinna. En að þessu ferli loknu verður útkoman dásamlega létt og mjúkt Geitaband, kasmír frá landnámsgeitunum okkar. Í Rúnalist Gallerí býðst gestum einnig að sjá tóvinnubrögð og fræðast um ullina og geitafiðuna. Tekið er ofan af, sýndur munur á togi og þeli, kembt með ullarkömbum, spunnið á rokk og halasnældu, sýndir þráðaleggir og margt fleira er hægt að skoða. Flestar vörurnar eru unnar út hráefni frá býlinu eða hráefni úr héraði (local) svo sem myndverk og smámunir úr roði og skinnum. Geiturnar eru einnig til sýnis og einhverjar þiggja brauðmola og klapp. Við getum tekið á móti litlum hópum í „kynnisferð“ um geiturnar og galleríið, sem einnig geymir gamla muni tengda búskap. Einnig er hægt að panta smakk af afurðum BændaBita. Textílmiðstöðin á Blönduósi Í gamla kvennaskólahúsinu á Blönduósi fer fram merkilegt starf sem snýst að öllu leyti um textíl. Þangað er hægt að koma og sækja sér þekkingu á ýmsum sviðum og dvelja þar við handverk undir leiðsögn í lengri eða skemmri tíma. Haldin eru námskeið reglu- lega, en einnig getur fólk komið og nýtt sér þann tækjabúnað sem er á staðnum og fengið leiðsögn ef þess gerist þörf. Á Blönduósi er til dæmis eini stafræni vefstóllinn á landinu, en fleiri stafræn tæki eru á leiðinni til staðarins í gegnum verkefni sem heitir Centrinno og er þverevrópskt samstarfsverkefni, þar sem áherslan er fyrst og fremst að tengja textíl við stafræna þekkingu og ná í hráefni til að vinna með úr nágrenni hvers staðar. Blönduós er staðsett í Austur- Húnavatnssýslu og er því á Norð- Vesturlandi. Þar eru flest bú sem starfrækja sauðfjárrækt staðsett og því sterk og öflug tengsl við sauðfjárbændur í nágrenninu. Í Textílmiðstöðinni er að byggjast upp víðtæk þekking og færni sem mun nýtast vel í framtíðinni og þar að auki hefur verið unnið stórt verkefni í að skrásetja gamlar og nýjar uppskriftir og munstur tengd vefnaði í stafrænan gagnagrunn. Námskeiðshald er opið öllum, Uppstoppaðir hausar af forystufé uppi á vegg. Mynd / úr einkasafni Sigrún Helga Indriðadóttir, handverkskona, bóndi og garðyrkjufræðingur, býr á Stórhóli í Skagafirði. Mynd / úr einkasafni Jóhanna Erla Pálmadóttir er verkefnastjóri hjá Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Hún er hér með prjónana á garðabandinu á Ullardeginum. Mynd / Svanhildur Pálsdóttir

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.