Bændablaðið - 29.04.2021, Side 38

Bændablaðið - 29.04.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202138 Slow Food Foundation eru alþjóðasamtök með aðsetur í Bra á Norður-Ítalíu, stofnuð 1989, og eru starfrækt í 160 löndum. Þau hafa ætíð lagt áherslu á rétt allra jarðarbúa til aðgengis að nægum og hollum matvælum á sanngjörnu verði. Þau styðja sjálf- bæra, og sem mest staðbundna matvælaframleiðslu og neyslu, vilja að fiskimönnum og bænd- um, svo og fjölskyldum þeirra séu tryggðar lífvænlegar tekjur og staðinn sé vörður um bæði fæðu- og matvælaöryggi landsvæða og þjóða. Því er aðgengi að land- búnaðarlandi og búseta í sveit- um á meðal grundvallarþátta til að viðhalda stöðugri framleiðslu matvæla. Þannig verði best tryggð full stjórn yfir henni, og þar með fæðuöryggi, sem er veigamikill þáttur í fullveldi hverrar þjóðar (food sovereignty). Frá aldamótunum 2000 hefur borið í vaxandi mæli á uppkaupum fjárfesta á landi í sveitum víða um heim, gjarnan í mjög stórum stíl, svo sem landakaup Kínverja í Afríku. Einstaklingar og félög hafa hremmt til sín bújarðir í stórum stíl, nú á seinni árum í vaxandi mæli í Evrópu, sér­ staklega í henni austanverðri. Í stað bænda á litlum eða meðalstórum fjöl­ skyldubúum, sem hafa jafnvel verið hraktir burt af leigujörðum, hafa fyrir­ tæki auðmanna komið upp einhæfum stórbúum með efnavæddri ræktun nytjajurta, eða, reist verksmiðjubú þar sem velferð búfjár er iðulega ábótavant. Í Evrópusambandinu eru slík stórbýli að taka til sín veru­ legan hluta stuðningsgreiðslnanna. Þá er vitað að í sumum tilvikum hafa ríkisstjórnir í viðkomandi löndum, t.d. í Ungverjalandi, stuðlað að slíkri óheillaþróun. Síðan 2010 hafa Slow Food samtökin beitt sér gegn jarðasöfnun (land grabbing) sem þau telja ósjálf­ bæra, bæði efnahagslega og félags­ lega, stuðla að auknum ójöfnuði og fátækt, og alls ekki til þess fallna að létta sótspor matvælaframleiðslunn­ ar í heiminum. Þau vara við þessari þróun sem veikir fjölskyldubúskap­ inn og þar með sveitabyggðirnar í hverju landi. Hér á landi hefur mest verið fjall­ að um stórfelld jarðakaup erlendra aðila, nú í seinni tíð einkum á Norðausturlandi þar sem breskur auðmaður og félög hans eiga nær 40 jarðir. Nýlegar lagabreytingar hafa ekki reynst nægilega traustar til að koma í veg fyrir slík stórfelld jarðakaup sem hér á landi tengist oft fremur ásókn í náttúruauðlindir á borð við laxveiði en not af landinu sjálfu. Ljóst er að búsetu á jörðum sem hafa tapað arði af laxveiði og öðrum hlunnindum er stefnt í hættu því að bændur sem fá að búa áfram á jörðunum, þá sem leiguliðar, verða fyrir verulegum tekjumissi eftir að hlunnindaarðurinn rennur í vasa auð­ mannsins eða fjárfestingafélagsins. En það eru ekki aðeins erlendir aðilar sem sækjast eftir jörðum hér á landi og vill Slow Food Reykjavík vekja athygli á því að Íslendingar hafa verið býsna stórtækir við jarðasöfnun síðan um aldamót. Svo sem fram kom í vandaðri umfjöll­ un í Bændablaðinu 28. janúar sl., um stórfelld kaup á jörðum víða um land, liggja ekki fyrir hversu umfangsmikil þau eru orðin. Í sögulegu samhengi er nærtæk­ ast að minnast þess að fjársterkur Íslendingur keypti flestallar jarðir í Hnappadal 1909, vel á annan tug, en seldi aftur bændum í sveitinni nokkrar þeirra 1915 eftir að þeir leituðu eftir því. Tilgangur athafna­ mannsins með jarðakaupunum var að ná yfirráðum yfir öllum veiðirétti í Haffjarðará og Oddsstaðavatni og það tókst honum. Sá réttur er nú metinn á a.m.k. fjóra milljarða en flestar jarðirnar eru komnar í eyði, sumar fyrir löngu. Sami Íslendingur eignaðist einnig verðmætar jarðir í Helgafellssveit, Mosfellssveit og víðar snemma á 20. öld og var um skeið með umfangsmikinn búrekstur á a.m.k. tveim þeirra. Fátítt er að nútíma jarðasafnarar stundi búskap og matvælaframleiðslu á jörðum sínum og því síður að þeir búi í viðkomandi sveitum. Slow Food Reykjavík skorar á stjórnvöld að endurskoða lög og reglur um jarðakaup, bæði erlendra og innlendra aðila, og stöðva þá óviðunandi jarðasöfnun auðmanna og fjárfestingafélaga sem viðgeng­ ist hefur. Viðbótin við jarðalögin sem samþykkt var 2020 gengur ekki nægjanlega langt og mál sem komið hafa upp t.d. í Húnaþingi vestra sýna fram á galla í löggjöf­ inni og ekki hafa verið myndaðir verkferlar í kringum hana. Hætt er við að jarðasöfnun skaði búsetu í sveitum landsins, komi í veg fyrir eðlileg kynslóðaskipti og veiki alla viðleitni til að halda uppi inn­ lendri matvælaframleiðslu í sátt við land og þjóð. Þá hvetur Slow Food Reykjavík til umræðna í þjóðfélaginu um þessa varasömu þróun og þar með verði málið tekið fyrir innan allra stjórnmálaflokka í landinu. Þess er vænst að nefnd sem nú vinnur að mótun nýrrar landbún­ aðarstefnu leggi mat á þá ógn sem stafar af jarðasöfnun og geri tillögur um mótvægisaðgerðir. Reykjavík mars 2021 Ólafur Rúnar Dýrmundsson stjórnarmaður í Slow Food Reykjavík oldyrm@gmail.com Um er að ræða breytingu vegna nýs afþreyingar- og ferða- mannasvæðis fyrir gangnamannaskála við Gedduhöfða á Grímstunguheiði og vatnsvernd. Á sama tíma er auglýst deiliskipulag fyrir sama svæði. Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi: Deiliskipulag við Gedduhöfða á Grímstunguheiði. Á nýju svæði er ætlunin að reisa nýjan gangnamannaskála, allt að 500m2 með gistipláss fyrir 60 manns. 300m2 hesthús og aðrar byggingar 200m2. Nýr skáli mun þjóna gangna- mönnum en gæti nýst breiðari hópi svo sem ferðamönnum. Á sama tíma er auglýst breyting á aðalskipulagi Húnavatns- hrepps 2010-2022. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Skipulagsfulltrúi Húnavatnshrepps, Þorgils Magnússon Húnavatnshreppur hunavatnshreppur.is Skipulagsauglýsing Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Húnavatnshrepps að Húnavöllum og á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð 33, frá 23. apríl 2021 til 04. júní 2021 og er einnig til sýnis á heimasíðu Húnavatns- hrepps, www.hunavatnshreppur.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 04. júní 2021. Skila skal athugasemdum á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi eða á netfangið byggingarfulltrui@hunavatnshreppur.is. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022: Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna nýs afþreyingar- og ferðamannasvæðis fyrir gangnamannaskála við Gedduhöfða á Grímstungu- heiði og vatnsvernd. Yfirlýsing og áskorun frá Slow Food Reykjavík: Jarðasöfnun auðmanna og fjárfestingafélaga á Íslandi Ólafur Rúnar Dýrmundsson. SAMFÉLAGSRÝNI LÍF&STARF Slysavarnafélagið Landsbjörg: MS er nýr aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur átt í góðu samstarfi við Mjólkursamsöluna undanfarin ár og notið stuðnings í formi vöruút- tekta þegar sjálfboðaliðar félags- ins sinna tímafrekum útköllum og fjáröflunum. Nú hafa félögin stigið skrefinu lengra og undirritað samstarfssamning. Þar með bætist Mjólkursamsalan við öflugan hóp aðalstyrktaraðila og styður með myndarlegum hætti starf mörg þúsund sjálfboðaliða. „Sá stuðningur sem við finnum fyrir í samfélaginu er okkur ómet­ anlegur. Við gætum ekki leyst ver­ kefni okkar án stuðnings sem við fáum frá almenningi og fyrirtækjun­ um í landinu. Þess vegna er framtak Mjólkursamsölunnar til fyrirmynd­ ar og við hlökkum til að eiga áfram gott samstarf við MS í framtíðinni,“ sagði Kristján Þór Harðarson, fram­ kvæmdastjóri félagsins. Undir það tekur Guðný Steins­ dóttir, markaðsstjóri Mjólkur sam­ sölunnar. „Já, Mjólkursamsalan legg­ ur mikla áherslu á stuðning við fjölda samfélagsverkefna og er fyrirtækið stoltur styrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Við hvetjum bæði starfsfólk okkar og aðra landsmenn til að styðja við starf Landsbjargar með því að gerast „Bakverðir“ björgunarsveitanna enda starf þeirra bæði einstakt og nauðsyn­ legt,“ segir Guðný. /MHH Þessi mynd var tekin við undirskrift samningsins. Á henni eru Pálmi Vil- hjálmsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og Kristján Þór Harðarson, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.