Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202138
Slow Food Foundation eru
alþjóðasamtök með aðsetur í Bra
á Norður-Ítalíu, stofnuð 1989,
og eru starfrækt í 160 löndum.
Þau hafa ætíð lagt áherslu á rétt
allra jarðarbúa til aðgengis að
nægum og hollum matvælum á
sanngjörnu verði. Þau styðja sjálf-
bæra, og sem mest staðbundna
matvælaframleiðslu og neyslu,
vilja að fiskimönnum og bænd-
um, svo og fjölskyldum þeirra séu
tryggðar lífvænlegar tekjur og
staðinn sé vörður um bæði fæðu-
og matvælaöryggi landsvæða og
þjóða. Því er aðgengi að land-
búnaðarlandi og búseta í sveit-
um á meðal grundvallarþátta til
að viðhalda stöðugri framleiðslu
matvæla. Þannig verði best tryggð
full stjórn yfir henni, og þar með
fæðuöryggi, sem er veigamikill
þáttur í fullveldi hverrar þjóðar
(food sovereignty).
Frá aldamótunum 2000 hefur
borið í vaxandi mæli á uppkaupum
fjárfesta á landi í sveitum víða um
heim, gjarnan í mjög stórum stíl, svo
sem landakaup Kínverja í Afríku.
Einstaklingar og félög hafa hremmt
til sín bújarðir í stórum stíl, nú á seinni
árum í vaxandi mæli í Evrópu, sér
staklega í henni austanverðri. Í stað
bænda á litlum eða meðalstórum fjöl
skyldubúum, sem hafa jafnvel verið
hraktir burt af leigujörðum, hafa fyrir
tæki auðmanna komið upp einhæfum
stórbúum með efnavæddri ræktun
nytjajurta, eða, reist verksmiðjubú
þar sem velferð búfjár er iðulega
ábótavant. Í Evrópusambandinu
eru slík stórbýli að taka til sín veru
legan hluta stuðningsgreiðslnanna.
Þá er vitað að í sumum tilvikum hafa
ríkisstjórnir í viðkomandi löndum,
t.d. í Ungverjalandi, stuðlað að slíkri
óheillaþróun.
Síðan 2010 hafa Slow Food
samtökin beitt sér gegn jarðasöfnun
(land grabbing) sem þau telja ósjálf
bæra, bæði efnahagslega og félags
lega, stuðla að auknum ójöfnuði og
fátækt, og alls ekki til þess fallna að
létta sótspor matvælaframleiðslunn
ar í heiminum. Þau vara við þessari
þróun sem veikir fjölskyldubúskap
inn og þar með sveitabyggðirnar í
hverju landi.
Hér á landi hefur mest verið fjall
að um stórfelld jarðakaup erlendra
aðila, nú í seinni tíð einkum á
Norðausturlandi þar sem breskur
auðmaður og félög hans eiga nær
40 jarðir. Nýlegar lagabreytingar
hafa ekki reynst nægilega traustar
til að koma í veg fyrir slík stórfelld
jarðakaup sem hér á landi tengist
oft fremur ásókn í náttúruauðlindir
á borð við laxveiði en not af landinu
sjálfu. Ljóst er að búsetu á jörðum
sem hafa tapað arði af laxveiði og
öðrum hlunnindum er stefnt í hættu
því að bændur sem fá að búa áfram
á jörðunum, þá sem leiguliðar, verða
fyrir verulegum tekjumissi eftir að
hlunnindaarðurinn rennur í vasa auð
mannsins eða fjárfestingafélagsins.
En það eru ekki aðeins erlendir
aðilar sem sækjast eftir jörðum hér
á landi og vill Slow Food Reykjavík
vekja athygli á því að Íslendingar
hafa verið býsna stórtækir við
jarðasöfnun síðan um aldamót. Svo
sem fram kom í vandaðri umfjöll
un í Bændablaðinu 28. janúar sl.,
um stórfelld kaup á jörðum víða
um land, liggja ekki fyrir hversu
umfangsmikil þau eru orðin. Í
sögulegu samhengi er nærtæk
ast að minnast þess að fjársterkur
Íslendingur keypti flestallar jarðir
í Hnappadal 1909, vel á annan tug,
en seldi aftur bændum í sveitinni
nokkrar þeirra 1915 eftir að þeir
leituðu eftir því. Tilgangur athafna
mannsins með jarðakaupunum var
að ná yfirráðum yfir öllum veiðirétti
í Haffjarðará og Oddsstaðavatni og
það tókst honum. Sá réttur er nú
metinn á a.m.k. fjóra milljarða en
flestar jarðirnar eru komnar í eyði,
sumar fyrir löngu. Sami Íslendingur
eignaðist einnig verðmætar jarðir
í Helgafellssveit, Mosfellssveit og
víðar snemma á 20. öld og var um
skeið með umfangsmikinn búrekstur
á a.m.k. tveim þeirra. Fátítt er að
nútíma jarðasafnarar stundi búskap
og matvælaframleiðslu á jörðum
sínum og því síður að þeir búi í
viðkomandi sveitum.
Slow Food Reykjavík skorar á
stjórnvöld að endurskoða lög og
reglur um jarðakaup, bæði erlendra
og innlendra aðila, og stöðva þá
óviðunandi jarðasöfnun auðmanna
og fjárfestingafélaga sem viðgeng
ist hefur. Viðbótin við jarðalögin
sem samþykkt var 2020 gengur
ekki nægjanlega langt og mál sem
komið hafa upp t.d. í Húnaþingi
vestra sýna fram á galla í löggjöf
inni og ekki hafa verið myndaðir
verkferlar í kringum hana. Hætt er
við að jarðasöfnun skaði búsetu í
sveitum landsins, komi í veg fyrir
eðlileg kynslóðaskipti og veiki
alla viðleitni til að halda uppi inn
lendri matvælaframleiðslu í sátt
við land og þjóð. Þá hvetur Slow
Food Reykjavík til umræðna í
þjóðfélaginu um þessa varasömu
þróun og þar með verði málið tekið
fyrir innan allra stjórnmálaflokka í
landinu. Þess er vænst að nefnd sem
nú vinnur að mótun nýrrar landbún
aðarstefnu leggi mat á þá ógn sem
stafar af jarðasöfnun og geri tillögur
um mótvægisaðgerðir.
Reykjavík mars 2021
Ólafur Rúnar Dýrmundsson
stjórnarmaður í Slow Food
Reykjavík
oldyrm@gmail.com
Um er að ræða breytingu vegna nýs afþreyingar- og ferða-
mannasvæðis fyrir gangnamannaskála við Gedduhöfða á
Grímstunguheiði og vatnsvernd. Á sama tíma er auglýst
deiliskipulag fyrir sama svæði.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst
tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
Deiliskipulag við Gedduhöfða á Grímstunguheiði.
Á nýju svæði er ætlunin að reisa nýjan gangnamannaskála,
allt að 500m2 með gistipláss fyrir 60 manns. 300m2 hesthús
og aðrar byggingar 200m2. Nýr skáli mun þjóna gangna-
mönnum en gæti nýst breiðari hópi svo sem ferðamönnum.
Á sama tíma er auglýst breyting á aðalskipulagi Húnavatns-
hrepps 2010-2022.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Skipulagsfulltrúi Húnavatnshrepps,
Þorgils Magnússon
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
Skipulagsauglýsing
Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu
Húnavatnshrepps að Húnavöllum og á
skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð
33, frá 23. apríl 2021 til 04. júní 2021 og er
einnig til sýnis á heimasíðu Húnavatns-
hrepps, www.hunavatnshreppur.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta er hér með gefinn kostur á að gera
athugasemdir til 04. júní 2021.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu
skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð 33, 540
Blönduósi eða á netfangið
byggingarfulltrui@hunavatnshreppur.is.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga
að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022:
Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna nýs afþreyingar-
og ferðamannasvæðis fyrir gangnamannaskála við Gedduhöfða á Grímstungu-
heiði og vatnsvernd.
Yfirlýsing og áskorun frá Slow Food Reykjavík:
Jarðasöfnun auðmanna og
fjárfestingafélaga á Íslandi
Ólafur Rúnar Dýrmundsson.
SAMFÉLAGSRÝNI
LÍF&STARF
Slysavarnafélagið Landsbjörg:
MS er nýr aðalstyrktaraðili
Slysavarnafélagið Landsbjörg
hefur átt í góðu samstarfi við
Mjólkursamsöluna undanfarin ár
og notið stuðnings í formi vöruút-
tekta þegar sjálfboðaliðar félags-
ins sinna tímafrekum útköllum
og fjáröflunum. Nú hafa félögin
stigið skrefinu lengra og undirritað
samstarfssamning. Þar með bætist
Mjólkursamsalan við öflugan hóp
aðalstyrktaraðila og styður með
myndarlegum hætti starf mörg
þúsund sjálfboðaliða.
„Sá stuðningur sem við finnum
fyrir í samfélaginu er okkur ómet
anlegur. Við gætum ekki leyst ver
kefni okkar án stuðnings sem við
fáum frá almenningi og fyrirtækjun
um í landinu. Þess vegna er framtak
Mjólkursamsölunnar til fyrirmynd
ar og við hlökkum til að eiga áfram
gott samstarf við MS í framtíðinni,“
sagði Kristján Þór Harðarson, fram
kvæmdastjóri félagsins.
Undir það tekur Guðný Steins
dóttir, markaðsstjóri Mjólkur sam
sölunnar.
„Já, Mjólkursamsalan legg
ur mikla áherslu á stuðning við
fjölda samfélagsverkefna og er
fyrirtækið stoltur styrktaraðili
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Við hvetjum bæði starfsfólk okkar
og aðra landsmenn til að styðja við
starf Landsbjargar með því að gerast
„Bakverðir“ björgunarsveitanna enda
starf þeirra bæði einstakt og nauðsyn
legt,“ segir Guðný. /MHH
Þessi mynd var tekin við undirskrift samningsins. Á henni eru Pálmi Vil-
hjálmsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og Kristján Þór Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Mynd / MHH