Bændablaðið - 29.04.2021, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 45
Ylplast / Gróðurhúsaplast eru margra laga
plastplötur úr polycarbonate, með gott
einangrunargildi. Plöturnar henta mjög vel
fyrir stórar og smáar byggingar.
Þykktir á lager eru 6, 10 og 16 mm, í glæru og
hvítlituðu (opallitað). Hægt að útvega aðrar þykktir og liti.
Selt í heilum plötum, og einnig niðurskorið að þínum þörfum.
Að auki bjóðum upp á alla fylgihluti fyrir uppsetningu,
svo sem gúmílista állista, dropalista, öndunartape og áltape.
Þekking, reynsla, þjónusta.
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Fást í síma 587 6677.
Gróðurhúsaplast
fyrir íslenskar aðstæður
Fást ehf Köllunarklettsvegi 4,104 Reykjavík Sími:587 6677 Netfang:fast@fast.is www.fast.is
LÍF&STARF
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
SAMFÉLAGSRÝNI
Vaxandi atvinnugrein
í landbúnaði
Nýlega fékk ég boð um að kynna
mér starfsemi líftæknifyrirtæk-
isins Ísteka, sem hefur aðsetur
í Reykjavík. Þingmenn fengu
margir sambærilegt boð og var
ástæða þess nýlegt frumvarp um
að banna alla blóðtöku úr merum
sem gerð er í þeim tilgangi að
vinnu úr því vöru til útflutnings.
Alvarlegt er að komið sé fram
á þingi frumvarp um að banna til-
tekna atvinnustarfsemi, sem hefur
verið starfrækt hér á landi í yfir 40
ár. Ríka kröfu verður að gera um
vönduð vinnubrögð og ítarlegan
rökstuðning þegar gengið er fram
með slíkum hætti. Með boði sínu
vildi fyrirtækið kynna þingmönnum
starfsemi sína og svara spurningum,
sem ég nýtti mér.
Verðmætt hormón
Hjá fyrirtækinu starfa yfir
40 manns, helmingur þeirra
háskólamenntað starfsfólk svo sem
líf-, lífeinda-, lífefna-, efna-, lyfja-
og matvælafræðingar. Í fyrirtækinu
er unnið verðmætt hormón úr
merarblóði (ECG) sem nýtt er til
að samstilla gangmál dýra. Arnþór
Guðlaugsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, sýndi mér vinnsluferlið
og kynnti fyrir mér starfsemina.
Hundrað bændur
Á bak við framleiðsluna eru um 100
bændur um allt land sem halda nálægt
5.000 hryssur. Það er því óhætt að
segja að hér sé um mikilvæga og
stækkandi landbúnaðargrein að ræða.
Afurðaverð til bænda hefur haldist
stöðugt undanfarin ár og hækkað
töluvert umfram verðlagsþróun.
Verðið er fyrirsjáanlegt og fyrirtækið
gefur út verðskrá fram í tímann.
Það var því ánægjulegt að kynnast
vaxandi atvinnugrein í landbúnaði.
Dýravelferðarsamningar
Fyrirtækið tók að eigin frumkvæði
að gera sérstaka velferðarsamninga
við þá bændur, sem þeir eru í við-
skipum við og halda hryssurnar og
er slíkt líklega einsdæmi hér á landi.
Samningarnir hafa það að markmiði
að tryggja velferð meranna. Vel er
fylgst með hryssunum og í öllum til-
vikum er það dýralæknir sem sér um
blóðtökuna einu sinni í viku og hann
fylgist jafnframt með ástandi dýr-
anna og aðbúnaði. Tímabil blóðtöku
er frá 2-3 vikum upp í átta hjá hverri
einstakri hryssu, en hryssuhóparnir
eru frjálsir úti í náttúrunni, en ekki
í húsum. Á vegum Ísteka er að auki
dýralæknir sem fylgist með að vel-
ferðarsamningarnir séu haldnir.
Aðspurður sagði framkvæmdastjór-
inn að afföll í hópi meranna væru
ekki meiri en almennt gerist í hrossa-
hópum, en sérstaklega væri fylgst
með líðan þeirra. Matvælastofnun
og Lyfjastofnun hafa eftirlit með
viðeigandi hlutum framleiðslunnar,
sem undir þeirra verksvið heyrir.
Afurðin ekki mikil að vöxtum
Afurðin sjálf er ekki mikil að vöxtum
eftir að hafa farið í gegnum langt og
strangt vinnsluferli í fyrirtækinu, því
einungis 2-3 kílógrömm af hormón
eru flutt er úr landi. Þá er búið að
skilja að allan blóðvökva og prótein
úr hráefninu, sem telur tugþúsundir
lítra. Fyrirtækið vinnur nú að því að
þróa aðferð til að nýta það sem fellur
út í vinnsluferlinu til uppgræðslu.
Brýnt að kynna sér málin
Kom ég af fundi fyrirtækisins margs
vísari og upplýstur um að fyrirtækið
nýtur viðurkenningar og vinnur í
samræmi við ítrustu kröfur á grunni
alþjóðlegra staðla og eftirlits. Atlaga
þingmanna að starfsemi fyrirtækisins
geigar af þeirri ástæðu að hún
styðst ekki við rök eða vísindalega
þekkingu. Slík framganga gagnvart
innlendri atvinnustarfsemi sem
framleiðir fyrir erlendan markað
undir ströngum kröfum dæmir sig
sjálf. Í sumar mun ég að sjálfsögðu
taka boði um að vera viðstaddur
blóðtökuna sjálfa.
Karl Gauti Hjaltason
kgauti@althingi.is
þingmaður Miðflokksins í
Suðurkjördæmi
Karl Gauti Hjaltason.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
Bænda bbl.is Facebook
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan