Bændablaðið - 29.04.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202146
LÍF&STARF
Af viðbrögðum Þrastar Ólafssonar,
stjórarformanns Votlendissjóðs,
að dæma við greinarkornum
höfundar hér í Bændablaðinu
upp á síðkastið, er eins og hann
sjái ekkert nema hvítt og svart.
Annars vegar rígheldur hann
sér í hvítþvegnar kerfistölur um
kolefnislosun, flestar af erlendum
toga, sem eiga að túlka hinn eina,
heilaga sannleika um losun kolefnis
við framræslu mýrlendis hér á
landi, þar sem eina raunhæfa ráðið
til mótvægis sé að molda yfir sem
allra mest af framræsluskurðum
fortíðarinnar; – sökkva framræstu
landi í bleytu og órækt, eins og ekkert
annað geti verið í spilunum.
Hins vegar er svo svartnættið og
hrokinn gagnvart tölum af innlendum
toga, sem undirritaður hefur vitnað
til, að ekki sé nú minnst á þau ráð til
kolefnisbindingar til mótvægis við
moldun skurðanna, sem nefnd hafa
verið, sem hvergi eru þó tæmandi.
Innlendar rannsóknir og
umfjöllun um þær
Varðandi barning Þrastar við að
níða niður málflutning þeirra
Þorsteins Guðmundssonar og Guðna
Þorvaldssonar, sem undirritaður
vitnaði til í Bændablaðinu 25. mars,
þykist höfundur vita að Guðni mun
ekki láta því ósvarað í þessu blaði og
vísar hér með á þá grein.
Þröstur fjallar nokkuð um
umsögn höfundar varðandi rann-
sókn Brynhildar Bjarnadóttur og
félaga um kolefnisbindingu aspar-
skógar í svonefndri Sandlækjarmýri
á Suðurlandi og stóð yfir í tvö ár,
2015- 16. Þar gætir verulegrar
ónákvæmni hjá Þresti, svo ekki sé
meira sagt, varðandi framræslu til-
raunalandsins ásamt leiðinda vand-
lætingu af aðstæðum, sem vissulega
eru nokkuð óvenjulegar, en alls ekki
óeðlilegar, enda ber greinin öll með
sér mjög faglegt og trúverðugt verk-
lag. Það sem hins vegar virðist fara
mjög í taugarnar á Þresti, er hvesu
mikilli nettóbindingu á kolefni til-
raunasvæðið skilar eða 7,14 tonnum
kolefnis á ha á ári, þar af batt öspin
91% og botngróður, jarðvegur,
svörður og fínrætur samanlagt 9%
af bindingunni.
Um framræsluna fullyrðir
Þröstur að jarðvegurinn hafi verið
,,haugblautur, sem jafngildir því
eins og um óframræsta mýri sé
að ræða“. Sannleikurinn er sá,
sem glöggt má lesa af línuriti með
niðurstöðum rannsóknarinnar, að
þótt grunnvatn sé vissulega æði
hátt yfir vetrarmánuðina (ca 0-40
sm), snarlækkar það yfir sumartím-
ann, allt frá 50 sm og niður í 80 sm
bæði árin frá byrjun júni og fram í
september, þegar haustrigninga fór
að gæta að ráði. Annars ættu gæði
framræslunnar varla að skipta neinu
höfuðmáli varðandi nettó kolefn-
isbindinguna. Þó má almennt telja
að há grunnvatnsstaða yfir vetur-
inn sé kostur í því að minnka C-
útblástur og varðveita áburðaefni.
Á einum stað í greininni grípur
Þröstur fegins hendi það hálmstrá
að ætla að áhrif fallinna laufblaða
til öndunar og C útblásturs hafi ekki
verið tekin með í reikninginn í tilraun
Brynhildar og meðhöfunda. Þetta er
á misskilningi byggt, þar sem losun
frá öndun og niðurbroti (5,71 t C/
ha/ári) var
innifalin og dregin frá heildarupp-
töku C (12,85 t C/ha/ári) . Gott dæmi
um þau hálmstrá, sem Þresti virðist
tamt að grípa til, veikum málflutn-
ingi sínum ti stuðnings.
Nettó kolefnis(C) bindingin upp
á 7,14 t C/ha/ár, gerir mun meira en
að vinna upp þau 5,5 t C/ha/ár (sam-
svarandi 20 tonnum af koltvísýringi,
CO2), sem Votlendissjóður notar sem
meðaltal hjá sér vegna C-losunar frá
framræstu landi. Má vera að þessi
mikla C-binding sé í efri kanti þess,
sem almennt gerist í gróðri hérlendis,
en af þessu má einmitt læra í barátt-
unni við að ná sem mestri C-bindingu
í framræstu landi um ókomin ár.
Varðandi C-losun er fróðlegt að
vitna til tveggja nýlegra masters-
ritgerða frá LBHÍ, aðra frá 2015
eftir Rannveigu Ólafsdóttur og
hina frá 2017 eftir Gunnhildi Evu
Gunnarsdóttur. Báðar fjalla þær
um mælingu á útblæstri kolefnis
vegna framræslu, sú fyrri gerð á
Vesturlandi, en hin á Suðurlandi.
Losunartölur fyrir t C á ha á ári
hjá Rannveigu reyndust 4,1 ± 0,9,
en 0,7 – 3,1 hjá Gunnhildi. Þótt tölur
þessar séu kannski ekki að öllu leyti
sambærilegar, telst varla ofmat að
miða við meðal C-losun upp á u.þ.b.
3 t C/ha/ár, sem yrði þá rétt rúmlega
hálfdrættingur samanborið við magn-
ið sem Þröstur og þeir votlendismenn
miða við, eða um 11 tonna útblástur
á CO2 á ha á ári, en ekki 20.
Misvísandi tölur
Þessar tölur og aðrar, eins og yfir
raunverulega stærð á framræstu
landi, hversu virkt er það í losun
o.s.frv. er vel skýrt í greinum þeirra
Hvanneyringa og trúlegt að Guðni
Þorvaldsson komi inn á þetta í grein
sinni hér í blaðinu í dag. Það væri
strax ljós punktur ef C-losunin hér
á landi væri nær þeim tölum, sem
undirritaður og fleiri, hafa nefnt en
þær, sem útlandar eru að mestu og
helst eru notaðar í opinberri umræðu
hér.
Það er alla vega him-
inn og haf á milli útkom-
unnar, þæði á losun
á framræstu landi og
bindingu vegna annarrar
mögulegrar nýtingar á
framræstu landi til hvers
konar ræktunar, ásamt
meðferð og úrvinnslu úr
uppskerunni.
Þetta leiðir hugann
að viðtali við umhverfis-
ráðherra í Silfri Egils sl.
sunnudag, 18. apríl, þar
sem loftslagmál bar eðli-
lega mjög á góma. Þar var
einkum fjallað um orku-
skipti og fyrirhugaðan
hálendisþjóðgarð, en ekki
minnst einu orði á hinar
himinháu opinberu tölur
um endurheimt votlend-
is, samsvarandi þeim, sem
Votlendissjóður hampar
og reiknar með að 60%
alls útblásturs í landinu, að
alþjóðlegu flugi yfir Íslandi
slepptu, sé vegna framræslu.
Þetta verður að teljast mjög
skynsamlegt af ráðherranum,
enda veit hann vafalítið sem
er, að þessum tölum er engan
veginn treystandi að svo komnu.
Neikvæðni um humyndir til
kolefnisbindingar og stóra
bomban
Undirrritaður hefur pælt töluvert
í leiðum til að nota framræst land
til þess að binda kolefni, helst í
meira mæli en kerfið losar og hug-
myndir varðandi ýmsa ræktun og
þar á meðal skógrækt, sem Þröstur
hefur alveg umsvifalaust slegið út af
borðinu. Honum er algjörlega fyr-
irmunað að finna eitthvað jákvætt
í þessu efni, enda nær lausnamiðun
hans ekki lengra en ofan í næsta
skurð, – því miður.
Kannski er þessi geldhugsun það
sem formaður Votlendissjóðs ber
skylda til að halda sig við, til að
auka enn við þrá sjóðsmanna til að
vinna verkin af hugsjón fyrir lítið
sem ekki neitt í samræmi við það,
sem Þröstur hefur sjálfur haldið
fram (Bbl 11.03.2021).
Það er dálítið umhugsunarvert að
Þröstur skuli finna stóru bombuna í
grein sinni út frá eftirfarandi kafla í
tilvitnaðri grein höfundar, sem hann
feitletrar það sem vitnað var í orð-
rétt og kemur hér fram:
,,Tek undir eftirfarandi, sem
Brynhildur Bjarnadóttir nefndi í
bréfskrifum við undirritaðan:
„Versta sviðsmyndin er að láta
framræsta landið standa óhreyft.
Þessum orðum geta flestir verið
sammála“. ,,Mikilvægt er (....) [hins
vegar] að finna metnaðarfyllri og
búmannlegri leiðir til að hemja allt
skurðayfirklór“.
Með þessari bombu, sem nú átti
greinilega að vera eins og stökk-
pallur sendur af himni ofan til að
slökkva, í eitt skipti fyrir öll, í
hugmyndum um ráðstafanir sem
gætu, að hans mati, kastað skugga
á hina einu og sönnu mótvægisað-
ferð Votlendissjóðs og jarða slíkar
hugmyndir og hindurvitni til kolefn-
isbindingar ofan í skurðum.
Þegar menn hafa áttað sig á
þessu og ræktunarmenn hafa komið
fram með ráðstafanir til kolefn-
isbindingar á traustum grunni til
mótvægis við slíka jarðarför munu
allir sjá að þetta er ekkert annað en
óskhyggja hjá stjórnarformannin-
um, sem gæti borið upphefðartit-
ilinn útfararstjóri í þessu sambandi.
Og vel á minnst; – í stuttum
kafla, kömmu eftir feitletruðu
bombunnar hans Þrastar, eru eftir-
farandi vandlætingarorð látin falla
í þessari röð:
,,Óskhyggja ... draumsýnir ...
afneitun ... glapskyggni (og aftur)
...óskhyggja“
Þetta segir meira en mörg orð og
geta lesendur spáð í þau og ástæð-
una fyrir þeim að vild, en í huga
undirritaðs eru þetta allt bara bros-
leg vindhögg, slegin í örvæntingu.
Málafylgja, þakkir og lokaorð
Auðvitað er annars fullkomlega
eðlilegt að molda vita gagnslausa
skurði og þá, sem nýtast illa hvort
eð er til ræktunarverkefna, allt
eftir því, sem landeigendur kjósa.
Notum hugmyndaflugið til arð-
bærrar ræktunar, sem í leiðinni
bindur mikið kolvetni. Nefna enn
öspina, annaðhvort sem skóg eða
sem öflug skjólbelti til vaxtarauka
fyrir verðmætan gróður í leiðinni.
Gert af kunnáttu er alveg óþarfi af
Þresti að halda því fram að öspin
geti ekki nýst til annars en elds-
neytis eða enda sem fúaspýtur til
bölvunar út í mýri. Vel þekkt er að
asparviður sé óbrotgjarnastur allra
viðartegunda innlendra og þótt víða
væri leitað, ekki síst sem efniviður
í límtré, svo eitthvað sé nefnt.
Nýting á t.d. hampi, sem fær
að vaxa umlukinn skjólbeltum úr
ösp og þess vegna fleiri trjátegund-
um, gæti náð sér á strik t.d. út frá
frumkvöðlastarfi, sem nú þegar er
hafið hér eystra og fjölmargt fleira
mætti nefna, sem þó verður að bíða
betri tíma.
Þessar línur verða að nægja að
sinni, enda tímabært að gera hlé á
þessum skrifum í þeirri vona að
eitthvað geti slegið á þráhyggju
Þrastar og jábræðra hans, en þökk
sé þeim sem lesið hafa og veitt
hvatningu í þessari málafylgju.
Í þessu sambandi og hér
undir lokin skal þess þó getið að
undirritaður forvitnaðist nýlega
um stjórnarfólk Votlendissjóðs
á heimasíðu hans. Í þessari tíu
manna stjórn þekkir hann, af
góðu einu, þá Svein Runólfsson,
fv. landgræðslustjóra og Ólaf
Eggertsson, góðbónda og frægan
ræktunarmann á Þorvaldseyri.
Þetta kom í fyrstu nokkuð á óvart,
en hugleitt um leið að forsjónin
hafi leitt þessa ágætu og framsýnu
menn í þessa stjórn til að breikka
sjóndeildarhring sjóðsins í lausn á
loftslagvandanum með fjölbreytt-
ari og búsældarlegri aðferðum
en einhæft markmið hans bend-
ir til. Er þeim og öðru stjórnar-
fólki óskað góðs árangurs og
farsældar í nafni fjölbreytninnar
á þessum vettvang, sem öðrum. –
Formaðurinn er ekki undanskilinn
þessum óskum þótt einhver þung
orð og ávirðingar hafi fallið á báða
bóga í hita leiksins.
Vonandi tekst hugmyndaríku
og öflugu fólki að koma sem fyrst
fram með og þróa ræktunar- og
úrvinnsluaðferðir með þekkingu
sinni, reynslu og fagmennsku og
forða þannig ofanískurðamokstri að
sem mestu leyti. Þetta er stórt ver-
kefni og vissulega flókið á köflum,
en fátt eins spennandi og gefandi.
Gleymum heldur ekki upp-
græðslu örfoka lands í þessu sam-
bandi. – Gleðilegt sumar ...
Þórarinn Lárusson
toti1940@gmail.com
RAFBYLGJUMÆLINGAR
OG VARNIR!
Kem á staðinn og framkvæmi
fyrstu mælingu ókeypis.
Uppl. gefa Garðar Bergendal
í síma 892-3341 og
Rósa Björk Árnadóttir í síma 776-7605.
Leitið upplýsinga á www.gardar.info
Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur sem kom úr
tenglum, tölvum, farsímum og ljósum. Allar þessar
bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur og geta valdið
ýmsum kvillum, svo sem:
Lamba- og ærdauði gæti verið út af rafmagni
‒ Mígreni
‒ Höfuðverk
‒ Svefntruflunum
‒ Vöðvabólgu
‒ Exemi
‒ Þurrk í húð vegna
tölvu
‒ Fótverkjum
‒ Júgurbólgu
‒ Myglusvepp
‒ Skepnudauða
‒ Fósturskaða í dýrum
SAMFÉLAGSRÝNI
Þórarinn Lárusson.
Af viðbrögðum Þrastar Ólafssonar, stjórnarformanns Votlendissjóðs, við greinar kornum höfundar hér í Bænda blaðinu upp á síðkastið að dæma, er eins og ekkert komist að hjá honum nema hvítt og svart.
Þröstur kvakar enn ...
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGHRÆRUR