Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 51
Opnað verður á skráningar á
kynbótasýningar nú í byrjun
maí og verður það kynnt á næstu
dögum á heimasíðu RML. Nýtt
skráningarkerfi var tekið upp
í fyrra og verður það í notkun
áfram, þannig notendur eiga að
þekkja það viðmót. Skráning
og greiðsla fer fram í gegnum
heimasíðu RML www.rml.is en
á forsíðunni er flýtihnappur sem
skráð er í gegnum. Á forsíðu
WorldFengs er einnig hægt að
skrá hross til sýningar. Nánari
leiðbeiningar varðandi skráningar
er að finna á heimasíðu RML.
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða
sýningarstaðir eru í boði og loka-
skráningardag á hverja sýningu en
skráningu þarf að vera lokið á mið-
nætti þess dags. Ef sýning fyllist
lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo
skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Eigandi/umráðamaður hrossins
verður þá að velja aðra sýningu.
Til að fá aðstoð er hægt að hringja í
síma 516-5000, eða senda tölvupóst
á netföngin halla@rml og hross@
rml.is. Við bendum á að utan dag-
vinnutíma eru starfsmenn RML ekki
til staðar til að svara síma eða tölvu-
pósti og því hvetjum við eigendur/
umráðamenn til að skrá tímalega.
RML áskilur sér rétt til að fækka
dögum á sýningum ef skráningar
eru færri en búist er við og sameina
sýningar ef þess gerist þörf.
Sýning verður ekki haldin nema
lágmarksfjöldi skráninga náist sem
eru 30 hross.
Allar upplýsingar um röðun niður
á daga munu birtast á heimasíðunni
www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar
sem verður nokkrum dögum fyrir
sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 29.900 kr.
en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm
22.900 kr. Ganga þarf frá greiðslu
um leið og hrossið er skráð.
Hægt er að greiða með debet- eða
kreditkortum, ekki er hægt að
greiða með millifærslu. Um leið
og hrossið hefur verið skráð birtist
það strax inni á viðkomandi sýningu.
Ef það gerist ekki er rétt að kanna
hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa
fullnaðardóm á sama sýningarári er
hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum
koma því aðeins til greina ef forföll
eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta
virka dag fyrir upphaf sýningarviku
í síma 516-5000 en einnig er hægt
að senda tölvupóst á netfangið
hross@rml.is. Endurgreitt er 15.000
kr. fyrir hross sem skráð hefur
verið í fullnaðardóm og 12.000 kr.
fyrir hross sem hefur verið skráð
í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst
er sama hlutfall endurgreitt gegn
læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa
vegna slasaðra hrossa þarf að hafa
borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út
hrossi í sýningu og velji að sýna
annað hross en það sem skráð er, ber
sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart
þeim sem greiddi fyrir plássið.
Greiðsla fyrir það hross sem skipt
var út verður notuð til greiðslu
á hrossinu sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur
eða geldinga til sýningar
nema búið sé að taka úr þeim
stroksýni til DNA-greiningar
og staðfesting á því liggi fyrir
í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA greindir svo og foreldrar
þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja
fyrir í WF að búið sé að taka
blóðsýni og röntgenmynda
vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross
á kynbótasýningu nema þau
séu örmerkt.
• Ef örmerki finnst ekki í
hrossi sem mætir til dóms
ber að örmerkja það á staðn-
um og taka stroksýni úr nös
til DNA-greiningar á ætterni,
með þeim kostnaði sem af því
hlýst fyrir eiganda/forráða-
mann. Örmerki og DNA-sýni
þurfa ávallt að fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til sýn-
ingar nema ofantaldar kröfur séu
uppfylltar. Hross sem koma inn á
sýningu í stað annarra skráðra
hrossa og uppfylla ekki þessi
skilyrði verður vísað frá sýn-
ingu strax hjá mælingarmanni
án undantekninga. Nánari upp-
lýsingar um reglur og annað sem
viðkemur kynbótasýningum má
finna á heimasíðunni www.rml.is
eða hringja í síma 516-5000 hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
á netfangið hross@rml.is.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
ÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol
jardir.is
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur, búfjárræktar-
og þjónustusvið
halla@rml.is
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Af heimasíðu RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.Pétur Halldórsson við mælingar á hryssu fyrir kynbótadóm á Gaddstaðaflötum.
Hross undirbúin fyrir mælingar og dóma.
Skráningar á kynbótasýningar vorsins
Sýningar vorsins og síðasti skráningar- og greiðsludagur
Dags. Staður Loka skráningar- og greiðsludagur
25.5- 28.5 Sprettur, Kópavogi föstudagur 14. maí
31.5- 04.6 Sörlastaðir Hafnarfirði I föstudagur 21. maí
31.5- 04.6 Gaddstaðaflatir, Hella I föstudagur 21. maí
31.5- 04.6 Hólar, Hjaltadal I föstudagur 21. maí
07.6- 11.6 Sörlastaðir Hafnarfirði II föstudagur 21. maí
07.6- 11.6 Gaddstaðaflatir, Hellu II föstudagur 21. maí
07.6- 11.6 Akureyri föstudagur 21. maí
07.6- 11.6 Borgarnes föstudagur 21. maí
14.6- 18.6 Hólar, Hjaltadal II föstudagur 21. maí
14.6- 18.6 Sörlastaðir Hafnarfirði III föstudagur 21 maí
14.6- 18.6 Gaddstaðaflatir, Hellu III föstudagur 21. maí
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni
www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar nokkrum dögum fyrir sýningu.
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300