Bændablaðið - 29.04.2021, Page 54

Bændablaðið - 29.04.2021, Page 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202154 Í rúm tíu ár hef ég mest verið að prófa bíla og skrifa um, en stöku sinnum hef ég tekið mótorhjól og önnur skemmtileg tæki til að prófa. Fyrir rúmri viku kom ég við í Ellingsen og fékk þrjú rafknúin reiðhjól og hlaupahjól til að prófa. Það passaði mátulega að þegar ég var lagður af stað í átt að Kleifarvatni, þar sem ég hugðist prófa hjólin á ýmsum mismunandi vegum og slóðum, gerði ausandi rigningu og ekkert nema pollar og drulla á malarslóðunum. Úr varð að ég notaði aksturssvæði Kvartmíluklúbbsins til að prófa hjólin, tiltölulega flatt sem hentaði vel mínum fúnu fótum sem knýja áttu mig áfram á hjólunum með hjálp frá rafmagnsmótorum. Fyrsta hjólið var MATE Mate-hjólið er rafmagns/fótstigið hjól sem bæði er fyrir malbik og torfærar slóðir, kostar 399.995 kr. Meðfærilegt hjól (29 kg) sem hægt er að brjóta saman með því að losa bara eina skrúfu, lækka stýrið og sætið og fyrirferðin er lítið meiri en varadekk í bíl. 250 watta BAFANG afturnafs-rafmótor með 5 hraðastig. Rafhlaðan er öflug17.5 Amph og dregur allt að 120 km við bestu aðstæður. Byrjaði að hjóla Mate- hjólinu á Kvartmílubrautinni sjálfri og fannst fínt að hjóla á malbikinu, en þegar ég fór á malarveg við hlið brautarinnar var of mikið loft í dekkjunum. Setti loftmagnið í 7 psi. að framan og 5 psi. að aftan og þá fannst mér fjöðrunin vera betri. Sandspyrnubraut Kvartmíluklúbbsins svipar til hefðbundinna malarvega (vantar samt holurnar), en þar var fínt að hjóla á hjólinu og meira að segja gat ég hjólað í lausum sandi við hlið brautarinnar. Þegar ég kom heim prófaði ég hjólið á grasi í nágrenni Réttarholtsskóla, en þar er hægt að finna mishæðir og stuttar brattar brekkur, var ekki mikið mál að hjóla þar á meðan maður hélt ferð, en var stundum erfitt að fara af stað í byrjun (fannst rafmótorinn koma of seint inn fyrir mína fúnu fætur sem áttu erfitt að koma mér af stað fyrstu metrana), en samkvæmt upplýsingum frá sölumanni hjólanna í Ellingsen er hægt að fá sem aukabúnað inngjöf á rafmagnsmótorinn sem auðveldar manni að fara af stað (sérstaklega þegar undirlag er torfært). Zero 10 X hlaupahjólið gífurlega öflugt Næst var það Zero-hlaupahjólið, létt (35 kg) og meðfærilegt sem hægt er að leggja saman, búið 2 x 1000W rafmótorum í fram- og afturhjóli og 19 Ah rafhlöðu sem dregur allt að 60 km. Kostar 219.995, hjólið sem ég prófaði var á grófum dekkjum sem ætluð eru fyrir grasakstur og malarundirlag. Virkaði fínt á malbiki og malarvegum, en þegar ég keyrði inn á öryggissvæðið við hlið Kvartmílubrautarinnar, sem er laus sandur, stakkst hjólið í sandinn og ég splundraðist á hausinn í mjúkan sandinn. Hjólið er innsiglað á 25 km hraða (en ég fór samt upp í 29, að vísu niður brekku). Þegar ég prófaði hjólið á grasi var ég aðeins of grófur á inngjöfinni og spólaði framdekkið fullmikið á blautu grasinu, en hjólið mokaðist áfram á grasinu og náði strax hámarkshraða, gróf dekkin voru að svara vel í beygjum og fjöðrunin var ótrúlega góð þarna á ósléttu grasinu (örugglega fínt hjól til að smala kindum á túni og reka upp óæskilegar gæsir úr túnum). Sniðugt hjól með farangurspalli Síðasta hjólið var Riese & Muller Load 75, sérstakt hjól sem hægt er að nota á ýmsa vegu vegna farangursrýmisins fyrir framan „hjólarann“, kostar 1.099.995. Að hjóla á þessu hjóli er afar auðvelt, það er vissulega langt og tekur smá stund að átta sig á lengdinni gagnvart beygjum, en þyngdarpunkturinn er mjög lágur, stillanlegt sæti og stýri, heildarhleðslugeta er 200 kg. Diskabremsur framan og aftan, fjöðrun bæði á framdekk og afturdekk, framljós með háum og lágum geisla og afturljós. Þó að hjólið sé ætlað sem malbikshjól fannst mér ekkert mál að hjóla á því á möl, tók aðeins meira á sjálfum mér á þessu hjóli miðað við hin og náði 35 km hraða í ausandi rigningu þegar ég keppti við sjálfan mig kvartmíluna. Daginn eftir var veðrið betra, hjólaði um hverfið með alsælan hundinn sem farþega (hægt að vera með allt að þrjú börn í farangurspallinum í einu). Það er um 2 km í Bónus heiman frá mér eftir gangbrautum og þangað fór ég. Með fjóra innkaupapoka á farangurspallinum var ekkert mál að hjóla enda eru gírarnir margir og eins og áður sagði auðvelt að hjóla heim. Fannst þetta hjól vera eigulegasta hjólið af þessum þrem sem ég prófaði og notkunarmöguleikarnir mestir, en fyrir þá sem vilja fræðast meira um rafmagnshjólin frá Ellingsen er mikill fróðleikur um hjólin á vefslóðinni www.ellingsen.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is rafmagnshjólin Hlaupahjólið var ekki í vandræðum að taka fram úr heflinum. Myndir / HLJ Hef farið kvartmíluna á betri tíma og meiri hraða en 35. Tíkin var eins og drottning í vagni, henni virtist alla vega líka vel þessi ferðamáti. Komin heim óþreyttur úr Bónus. Þessi þrjú valdi ég úr miklu úrvali til að prófa. MATE-hjólið var fínt á malarvegum. Hlaupahjólið var of kraftmikið fyrir blautt grasið.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.