Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 57
Mér þykir alltaf gott að eiga fal-
lega heimaprjónaða sokka að
skella á fæturna. Einfaldir sokkar
en pífan gefur þeim sparilegt útlit.
DROPS Design: Mynstur no-046
Stærðir: Skóstærð: 35/37 (38/40) 40/42
Lengd fótar: ca 22 (24) 27 cm.
Garn: DROPS NORD (fæst hjá Handverkskúnst)
100 gr í allar stærður
Prjónfesta: 26 lykkjur x 34 umferðir = 10x10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5.
HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 (8)
8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna
eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar
til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins
og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugð-
ið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var
prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til
6 (7) 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins
og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð,
snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur
þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju
eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju
brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna
sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því
að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1
lykkju er lyft af prjóni, þar til 14 (14) 16 lykkjur
eru eftir á prjóni.
STROFF: Fitjið upp 180 (198) 216 lykkjur með 2
þráðum Nord á sokkaprjóna 2,5. Takið frá annan
þráðinn, prjónið áfram með 1 þræði. Tengið í
hring og prjónið 1 umferð þannig: *lyftið yfir
1 lykkju á hægri prjón án þess að prjóna hana,
prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð*, prjónið frá *-*
umferðina hringinn = 90 (99) 108 lykkjur.
Prjónið mynsturteikningu A.1 (= 10 (11) 12
mynstureiningar).
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka
eru 60 (66) 72 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca
2½ cm. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna í síð-
ustu umferð sem var prjónuð, prjónamerkið er notað
síðar til að mæla frá. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt
og 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist 5 cm frá
prjónamerki. Nú á að gera kant fyrir uppábrot þannig:
Brjótið uppá byrjun á stykki að röngu á stykki, þannig
að lykkjur eru teknar upp í fyrstu umferð í stroffi eftir
A.1 (stykkið liggur nú uppábrotið að röngu á móti
röngu og bylgjukanturinn snýr upp yfir prjónana).
Prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem hver lykkja slétt
frá fyrstu umferð í stroffi er prjónuð slétt saman með
næstu lykkju í umferð (þ.e.a.s. 3. hver lykkja frá fyrstu
umferð í stroffi er fest við umferð sem nú er prjónuð).
Snúið stykkinu, þannig að bylgjukanturinn komi nú
utan á stykki, þetta verður núna réttan á sokknum.
Prjónið 1 umferð slétt (þar sem umferðin er nú snúin
getur myndast lítið gat í skiptingunni, þetta gat er
saumað saman í lokin).
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið janframt um 6
(8)10 lykkjur jafnt yfir = 54 (58) 62 lykkjur.
Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið mælt er frá.
Prjónið áfram í sléttprjóni (þ.e.a.s. sléttar lykkjur
frá þessari hlið á sokkum) þar til stykkið mælist
3 cm frá seinna prjónamerki (= prjónamerkið
sem var sett í eftir að stykkinu var snúið við).
HÆLL: Haldið nú eftir fyrstu 26 (28) 30 lykkjum
á prjóni fyrir hæl og síðustu 28 (30) 32 lykkjurnar
eru settar á þráð (= mitt ofan á fæti). Prjónið
sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í
5 (5½) 6 cm. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið
til að mæla lengdina á sokknum frá.
Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að
ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13 (14)
16 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 28 (30)
32 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn
= 68 (72) 80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru
megin við 28 (30) 32 lykkjur á fæti.
FÓTUR: Haldið áfram í sléttprjóni hringinn,
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið
þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra
prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið
2 fyrstu lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á fæti
slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri
umferð alls 8 (8) 10 sinnum = 52 (56) 60 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 18 (19) 21
cm frá prjónamerki sem var sett í hæl (= 4 (5)
6 cm eftir til loka máls). Setjið 1 prjónamerki
í hvora hlið, þannig að það verða 26 (28) 30
lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið
áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækk-
að fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin
þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt
saman. Á eftir prjónamerki: 2 lykkjur snúnar
slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í
annarri hverri umferð alls 4 (7) 9 sinnum og
síðan í hverri umferð 6 (3) 2 sinnum = 12 (16)
16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar
lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 6 (8) 8 lykkjur.
Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur
sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Prjónið annan sokk alveg eins.
FRÁGANGUR:
Saumið nokkur spor ef það hefur myndast gat í stroffi
þar sem stykkinu var snúið við.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Bænda
12. maí
Rosy Ruffles-sokkar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 1
2
1 6 8 4 7
2 5 4
8 3 9 7
1
8 3
6 2 1 4
5 9
Þyngst
9 6 7 1
2 3
3 8 1
7 9 8 1
8 1 7
1 6 2
3 6
5 9 3 2
5 2
4 2 6 5
8 2
8 6 9
8 5
3 1 4
9 7
9 2 7
7 5
7 1 8 6
1 9 2
8 3 1
9 8 5
6 8
9 1 7
1 9
6 8 2
7 4 3
2 7 5
Folaldakjöt og kartöflur
er í uppáhaldi hjá Aroni
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Aron Gabríel elskar að spila fót-
bolta og veiðiferðir.
Nafn: Aron Gabríel Samúelsson.
Aldur: 9 ára, bráðum 10 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Sauðárkrókur.
Skóli: Árskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Folaldakjöt og
kartöflur.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og
gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Raya og síð-
asti drekinn.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
2 ára og var að horfa á myndbandið
við Eurovision lagið Ég á líf og
Eyþór stökk í sjóinn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og frjálsar.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Atvinnufótboltamaður.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að skoða eldgosið í
Geldingadal.
Hvað gerðir þú skemmtilegt um
páskana? Ég spilaði, fór í páska-
eggjaleit og labbaði að eldgosinu.
Næst » Ég skora á Dagrúnu vinkonu
mína að svara næst.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR