Skessuhorn - 27.01.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 4. tbl. 24. árg. 27. janúar 2021 - kr. 950 í lausasölu
Elsa María
hjá RUV
Skagakonan Elsa María Guðlaugs
Drífudóttir, sem nú er búsett í
Borgarnesi, fer víða um Vestur-
land og Vestfirði í starfi sínu sem
fréttamaður fyrir RUV. Á rúmu
ári þykir hún hafa staðið sig vel í
starfi. Í viðtali í Skessuhorni í dag
segist hún ekki hafa gengið með
fréttamanninn í maganum áður en
hún sótti um starfið, en fréttaskrif
og -vinnsla sé ákveðið listform
sem hún kunni sífellt betur við.
Sjá bls. 16-17
Breiðafjarð-
arnefnd skil-
ar tillögum
Í tilkynningu frá Breiðafjarðar-
nefnd, sem birt er í Skessuhorni
í dag, kemur fram að nefndin
hefur nú sent umhverfis- og
auðlindaráðherra erindi með til-
lögum sínum um framtíð verndar,
nýtingar og stjórnunar verndar-
svæðis Breiðafjarðar. Markmið
nefndarinnar með tillögunum er
að varðveita náttúru og menningu
svæðisins samhliða því að styrkja
enn frekar samfélögin umhverfis
fjörðinn, þar á meðal atvinnulíf.
Sjá bls. 22
Heilbrigðis-
starfsfólk
heiðrað
Þorrablót Skagamanna fór fram
í streymi síðastliðið laugardags-
kvöld og þótti dagskráin hafa tek-
ist vel. Meðal fastra dagskrárliða
er tilnefning Skagmanns/manna
ársins. Sævar Freyr Þráinsson
bæjarstjóri kynnti valið, sem að
þessu sinni eru heilbrigðisstarfs-
menn. Veittu þau Hulda Gests-
dóttir hjúkrunarfræðingur og
Sigurður Már Sigmarsson sjúkra-
flutningamaður viðurkenningunni
viðtöku fyrir sína hönd og annarra
starfsmanna. Sjá bls. 20
Slökun og
íþróttir
Nemendum í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi stendur nú
til boða að taka áfanga í floti og
sjósundi en skólinn er fyrsti fram-
haldsskóli landsins að bjóða upp á
slíkan áfanga. „Flot í þyngdarleysi
í heitri sundlaug er einstök leið til
að losa spennu úr líkama og sál,“
segja þær Helena Ólafsdóttir og
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir
íþróttakennarar hjá FVA í samtali
við Skessuhorn. Þær eru nú að
endurskipuleggja íþróttakennsl-
una við skólann.
Sjá bls. 18
Tilboð gildir út
* 330 ml. af Coca Cola
eða Coca Cola
án sykurs fylgir með
Hot dog & Coca cola
5 9 kr.
& coke
Í dós
Á gamlársdag var starfsemi Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar flutt í stærra og hentugra húsnæði í Ólafsvík, þar sem Fiskiðjan Bylgja var áður til húsa. Á meðfylgjandi mynd
er slæging í gangi. Sjá nánar á bls. 6. Ljósm. af.
MATSTOFA
GAMLA
KAUPFÉLAGSINS
HÆGT AÐ BORÐA HJÁ
OKKUR OG TAKA MEÐ
Opið alla virka
daga frá 11:30 - 14:00
Sími: 431 4343
Kirkjubraut 11
www.vogv.is
KÍKTU VIÐ
Í HJARTA BÆJARINS
arionbanki.is
t