Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 20212
Í heimsfaraldrinum hafa margir tek-
ið upp nýtt áhugamál, að ganga á
fjöll. Nú þegar kalt er í veðri er vert
að minna fólk á að vera rétt búið
áður en farið er af stað í slíkar ferðir,
vera með rétta brodda og vel klætt.
Og þó sólin sé að hækka á lofti er
þó komið myrkur um fyrir kvöldmat
og þá er nauðsynlegt að hafa alltaf
vasa- eða höfuðljós með sér í fjall-
göngur.
Á morgun, fimmtudag, er spáð aust-
an 8-15 m/s syðst, skýjuðu með köfl-
um og frostlaust verður með strönd-
inni. Annars verður hæg breytileg átt
og víða bjartviðri og frost 1-8 stig. Á
föstudag er útlit fyrir suðaustlæga átt
og lítilsháttar slyddu suðvestan- og
vestantil á landinu og hiti um frost-
mark. Annars hægur vindur, bjart-
viðri og talsvert frost. Gengur í norð-
austanátt með snjókomu norðvest-
anlands um kvöldið. Á laugardag er
spáð suðlægri átt og skýjuðu með
köflum, dálítil rigning eða slydda
hér og þar og hiti í kringum frost-
mark sunnan- og austantil. Norðan-
og norðaustanátt með snjókomu og
frosti um norðanvert landið. Á sunnu-
dag er spáð austan- og norðaustanátt
með slyddu og hita um frostmark
syðst en stöku él og frost norðantil á
landinu. Á mánudag verður norðaust-
læg átt og stöku él fyrir norðan og
austan en annars léttskýjað.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Borðar þú þorramat?“ Flest-
ir, eða 67% svarenda borðar all-
an þorramat. 22% segjast einungis
borða það ósúra en 11% borða alls
ekki þorramat.
Í næstu viku er spurt:
Ætti maður að alltaf að segja satt,
undantekningarlaust?
Í Fjölbrautskóla Vesturlands er mik-
il áhersla lögð á virkni ungmenna til
hreyfingar. Ekki síst á kóvidtímum
þegar fólki hættir til að loka sig af
og hætta hreyfingu. Rætt er við þær
Helenu Ólafsdóttur og Hildi Karen
Aðalsteinsdóttir íþróttakennara. Þær
eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Forval VG
í Norðvesturkjör-
dæmi
NV: Kjördæmisþing Vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi
samþykkti einróma á fundi í
síðustu viku að hafa forval til
að velja á framboðslista fyrir
alþingiskosningarnar 25. sept-
ember næstkomandi. Þar með
hefur hreyfingin samþykkt að
hafa forval í öllum kjördæmum.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
leiðir kjörstjórn í NV kjördæmi
sem mun annast framkvæmd
og skipulag forvalsins. Í forvali
verður kosið í fimm efstu sæti á
framboðslistanum, en þrjú efstu
sætin verða bindandi og í sam-
ræmi við forvalsreglur VG. Síð-
ustu tvö kjörtímabil hefur VG
átt einn þingmann í kjördæm-
inu; Lilju Rafneyju Magnús-
dóttur, en hún gegnir starfi for-
manns atvinnuveganefndar á
yfirstandandi kjörtímabili. -mm
Vilji verkafólks
komi fram
LANDIÐ: Nú eru framboðs-
mál til Alþingis komin á fulla
ferð og ólíkra flokksfélaga að
ákveða hvernig mannavali verð-
ur háttað á framboðslistum.
„Fjölbreytileiki kjörinna full-
trúa er falinn í fleiru en aldri og
kyni. Það þarf að horfa til fleiri
þátta eins og menntunar, starfs-
vettvangs og lífsreynslu,“ seg-
ir í ályktun sem Verkalýðsmála-
félag Samfylkingarinnar sendi
fjölmiðlum. „Samfylkingin á að
vera málsvari verkalýðshreyf-
ingarinnar og framboðslistar
flokksins eiga að endurspegla þá
stefnu. Það þarf að gæta þess að
raunverulegur vilji verkafólks
komi skýrt fram. Það er enginn
betur til þess fallinn að tala máli
verkafólks, en það sjálft. Verka-
lýðsmálaráð Samfylkingarinn-
ar skorar á uppstillingarnefndir
að hafa það til hliðsjónar þegar
stillt er upp á lista Samfylking-
arinnar um allt land.“ -mm
Nýtt tækifæri
Leita að áhugasömu fólki í tengslamarkaðsetningu
til að kynna og selja heimsklassa 100% hreinar
náttúruvörur sem standa fyrir sínu. Þær koma
frá virtu alþjóða fyrirtæki. Tekjumöguleikarnir eru
árangurstengdir og engin takmörk sett, einungis
viðleitni þín sker úr um það. Hafir þú áhuga hvort
sem er til eigin nota eða til kynningar vinsam-
legast hafið samband.
asta.synergyworldwide.com
Sími: 695-0452
Ásta Tómasdóttir
Nú á vorönn voru gerðar breytingar
á stundatöflu og kennslufyrirkomu-
lagi í Menntaskóla Borgarfjarðar í
Borgarnesi. Í stað þess að hafa tvær
40 mínútna kennslustundir sam-
liggjandi verður ein klukkustundar
kennslustund og tvisvar í viku fara
nemendur í vinnustofur. Við þessar
breytingar opnaðist möguleiki á að
hefja kennslu seinna að deginum eða
klukkan níu. Um er að ræða tíma-
bundið tilraunaverkefni til að sjá
hvaða áhrif þetta muni hafa á líðan
og námsárangur nemenda.
Að sögn Braga Þórs Svavarsson-
ar skólameistara kom þessi breyt-
ing upphaflega til vegna Covid-19.
„Vegna faraldursins urðum við að
bregðast við með því að innleiða
nýja kennsluhætti og þá byrjuðum
við með vinnustofur í lok haustannar
alla daga vikunnar. Nemendur gátu
þá mætt í 25 manna hópum í eigin
heimastofu og fengið aðstoð kenn-
ara við námið. Þetta kom mjög vel út
og kennararnir voru ekki aðeins að
hjálpa nemendum með námið held-
ur líka skipulag og námstækni. Þarna
náðu kennarar að einbeita sér betur
að hverjum og einum nemanda og
veita enn persónulegri þjónustu. Við
ákváðum því að halda áfram með
þessar vinnustofur,“ segir Bragi.
Almennt vel tekið
„Með þessum breytingum opnaðist
tækifæri að hliðra til og byrja dag-
inn seinna og við ákváðum að grípa
það. Við ætlum að prufukeyra þetta
þessa önn og sjá hvernig þetta fer í
nemendur og þeirra vinnulag áður
en ákvörðun verður tekin um fram-
haldið,“ segir Bragi og bætir við
að margar rannsóknir styðji þessa
breytingu. „Það hefur verið sýnt
fram á að líkamsklukka unglinga
passar ekki við klukkuna og það
getur haft áhrif á svefninn þeirra.
Samkvæmt rannsókn sem var gerð
hér á landi 2018 eru um 70% fram-
haldsskólanemenda að sofa of lít-
ið,“ segir Bragi. Það voru þó ekki
nemendur sem báðu um að skóla-
deginum yrði seinkað heldur kem-
ur tillagan alfarið frá stjórnendum
skólans. Í vor verður hugur nem-
enda til þessara breytinga kannað-
ur til að sjá hvort þetta fyrirkomu-
lag verður til langframa. Aðspurður
segir Bragi nemendur almennt hafa
tekið vel í þessar breytingar en að
sumir myndu samt kjósa fyrra fyr-
irkomulag. „Sumir nemendur vilja
byrja fyrr og hætta fyrr og það er
alveg skiljanlegt. Það er kannski
aldrei hægt að finna fyrirkomulag
sem hentar jafn vel fyrir alla,“ seg-
ir hann.
arg
Á morgun, fimmtudaginn 28. janú-
ar, verður kynning meðal íbúa í
Dalabyggð á valkostagreiningu
vegna sameiningar við önnur sveit-
arfélög. Sveitarfélagið samdi síð-
astliðið sumar við RR ráðgjöf um
greiningu valkosta sveitarfélags-
Íbúakynning um möguleika í sameiningu sveitarfélaga
ins vegna mögulegrar sameining-
ar. „RR ráðgjöf er ráðgjafafyrir-
tæki með sérþekkingu á stjórnsýslu,
rekstri og málefnum sveitarfé-
laga. Róbert Ragnarsson hefur leitt
greiningarvinnuna og mun flytja
kynninguna og stýra umræðum
ásamt Freyju Sigurgeirsdóttur,“
segir í frétt á vef Dalabyggðar. „Á
kynningunni verður farið yfir stöðu
sveitarfélagsins Dalabyggðar, rætt
hvort sveitarfélagið eigi að fara í
sameiningarviðræður og lagt mat
á hvaða sameiningarkostir séu til
staðar.“
Hægt verður að fylgjast með
íbúakynningunni á Youtube rás
Dalabyggðar undir nafninu „Dala-
byggð-TV“ þar sem hægt verður
að senda inn spurningar, ábend-
ingar og athugasemdir meðan á
kynningunni stendur og það efni
verður notað við frekari greiningu.
Nokkur sæti verða í boði fyrir þá
sem vilja mæta á kynninguna í eigin
persónu en þá þarf að skrá sig hjá
jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur
á netfangið johanna@dalir.is eða í
síma 430-4700. Grímuskylda fyrir
alla sem mæta.
arg/ Ljósm. sm
Seinka upphafi skóladags
í Borgarnesi