Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 20214
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Út í veður og vind
Á miðvikudaginn í síðustu viku fór gámaflutningabíll útaf veginum neðst í
Skorholtsbrekkunni í Hvalfjarðarsveit og hafnaði á hliðinni. Ökumaðurinn
klemmdist fastur og þurfti öflugan bílkrana til að lyfta stýrishúsinu svo færa
mætti manninn undir læknishendur. Ástæða óhappsins var öflugur, en stað-
bundinn, vindstrendur sem barst ofan úr Skarðsheiði. Við slík slys setur að
manni óhug. Ekki eru mörg ár síðan rúta með stórum hópi franskra ungmenna
fauk útaf vegi og hafnaði á hliðinni á þekktum sviptivindastað nærri bænum
Kvígsstöðum í Andakíl. Blessunarlega slasaðist enginn alvarlega, en aðkoman á
slysstað var ljót og erfitt fyrir björgunarfólk að athafna sig vegna vindhraða en
ekki síst vindsveipa sem einhvern veginn skrúfa sig niður þannig að fólk á vett-
vangi fauk út í móa.
Það eru nokkrir staðir hér um vestanvert landið sem eru einkar varhugaverð-
ir í ákveðnum vindáttum. Á fæstum þessara staða hefur verið komið upp vind-
hraðamælum til að vara ökumenn við aðsteðjandi vá. Þó nefni ég sem dæmi að
á Kjalarnesi eru tveir vindhraðamælar, en enginn er þó staðsettur þar sem ekið
er niður að Kollafirði. Í ákveðinni norðanátt er einmitt þar hættulegast að fara
um í sviptingasömu veðri. Við Hafnarfjall er einungis einn vindhraðamælir en
þyrftu að vera fleiri. Vindátt þarf ekki að snúast nema um nokkrar gráður til að
þeir fáu mælar sem þó eru til staðar gefi réttar upplýsingar. Í rauninni mætti
halda því fram að stundum gefi þeir því ranga mynd af raunverulegri hættu.
Hæglega gæti ég nefnt nokkra staði þar sem enga vindhraðamæla er að finna og
algjörlega óskiljangt að ekki sé búið að koma þeim upp fyrir löngu. Nefni Berja-
dalsá skammt frá Akranesi, Grjóteyrarhæð í Andakíl og svo fyrrnefndan stað
við Kvígsstaði þar sem rútan fauk útaf. Bílstjórar sem aka þessar leiðir reglu-
lega og oftast með börn, hafa margsinnis bent á hættuna, en talað fyrir daufum
eyrum. Vindhraðamælar heyra undir Vegagerðina sem hverju sinni á að tryggja
öryggi vegfarenda með mælingum og upplýsingamiðlun. Þá eru sveitarfélög
hagsmunaaðilar í ljósi þess að börnum er ekið reglulega um þessa viðsjárverðu
staði til skóla eða tómstunda.
Ábúandinn á Leirá í Leirársveit setti fyrir nokkru upp vindmæli á tveimur
stöðum á og við hús sitt. Mest er það honum til gagns og fróðleiks, en einnig til
upplýsingar fyrir þá sem vita af þessum mælingum og þekkja vefslóðina. Bún-
aðurinn sem hann keypti kostaði fimmtíu þúsund krónur. Þrátt fyrir lágt verð
gera þessir mælar nákvæmlega það sama og opinberir vindhraðamælar Vega-
gerðarinnar og annarra sem búa yfir slíkum búnaði. Tækninni hefur nefnilega
fleygt fram og nákvæmur vindhraðamælir kostar því ekki meira en ein hræri-
vél. Síðastliðinn miðvikudag mældist vindhraði á mælinum á Leirá 50 metrar
á sekúndu í hviðum. Svo vill til að þetta er sami vindstrengur og náði að feykja
flutningabílnum neðst í Skorholtsbrekkunni útaf veginum. Vindhraðamælirinn
á Leirá er tengdur við rafmagn á bænum. Hins vegar ef honum væri komið upp
úti við þjóðveg, neðst í Skorholtsbrekkunni, þyrfti að tengja við hann sólar-
sellu til að knýja hann áfram, setja á mastur og svo væntanlega einhvers konar
viðvörun til ökumanna. Mætti ímynda sér að blikkandi ljós gætu dugað til að
vara menn við hættunni. Búast má við að kostnaður við slíkan búnað gæti far-
ið í örfáar milljónir króna með öllu. Smáaurar í samanburði við að gera ekki
neitt og áfram fjúki útaf vegum bílar sem taka á sig mikinn vind á þekktum
sviptivindastöðum. Örkuml svo ég tali nú ekki um mannslát kosta nefnilega svo
margfalt meira en réttlætanlegt sé að gera ekki neitt.
Öfgar í veðráttu geta verið miklar og kannski eru þær vaxandi. Þegar ekin
er til dæmis sú stutta vegalengd frá Akranesi og í Borgarnes er jafnvel farið í
gegnum nokkrar gerðir af veðri. Fer eftir vindátt hverju sinni, hita, úrkomu
og fleiru. En það væri vel hægt að koma í veg fyrir fjölmörg tjón og slys. Með
bættri upplýsingagjöf til ökumanna og vegna tækniframfara kostar slík vind-
hraðamæling og miðlun upplýsinga sáralítið. Ég hendi boltanum því yfir til
sveitarfélaga á þessum svæðum og jafnvel lögreglu, sem hverju sinni kemur að
erfiðum vettvangi í kjölfar óhappa og slysa og þekkir því vel til. Þetta snýst um
að einhverjir taki frumkvæðið og veki yfirvöld samgöngumála til vitundar um
að hægt er að gera betur. Magnús Magnússon
Undirbúningsnefnd að Fjórðungs-
móti Vesturlands í hestaíþrótt-
um hefur gengið frá ráðningu við
hinn landsþekkta Magnús Bene-
diktsson sem framkvæmdastjóra
fyrir mótið. Hann hefur m.a. verið
framkvæmdastjóri Spretts í Kópa-
vogi en á nú og stýrir útgáfu Eið-
faxa. Fjórðungsmótið verður hald-
ið í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí í
sumar. Hestamenn á Vesturlandi
eru nú komnir á fullt við undir-
búning mótsins, segir í tilkynningu
frá undirbúningsnefnd. Þess má til
gamans geta að Maggi Ben vann
allar stökk-kappreiðarnar á FV
1988, þ.e. 250, 350 og 800 metr-
ana, á Kaldármelum.
mm
Kristján Þór júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
gerði á fundi ríkisstjórnarinn-
ar í gærmorgun grein fyrir því að
hann hefði í samræmi við ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar undirrit-
að reglugerð um veiðar á loðnu.
Eftir mælingar á loðnustofninum
í síðustu viku veitti Hafrannsókna-
stofnun ráðgjöf um veiðar á allt að
61.000 tonnum af loðnu á vertíð-
inni 2020/2021. Er það aukning
um 39.200 frá fyrri ráðgjöf.
Þá gerði ráðherra einnig grein
fyrir því að rannsóknaskipið Árni
Friðriksson hefði farið af stað til
mælinga síðastliðinn sunnudag.
Í gær fóru þrjú skip frá útgerðum
loðnuskipa til loðnuleitar og því
munu samtals fjögur skip sinna
mælingunum næstu daga. Auk þess
eru tvö loðnuskip til viðbótar til-
búin að koma að verkefninu ef þörf
verður á.
Veðurspá næstu daga, auk spár
um dreifingu hafíss úti fyrir Vest-
fjörðum, gefur vonir um að það
takist að fara yfir rannsóknasvæð-
ið og að mæla stofninn að nýju á
næstu dögum. Verður áhersla lögð
á svæðið úti fyrir norðanverðum
Austfjörðum, fyrir Norðurlandi og
Vestfjörðum en ekki hefur tekist að
kanna þau svæði síðustu vikur sök-
um óveðurs og hafíss úti fyrir Vest-
fjörðum.mm
Þverun Þorskafjarðar hefur nú ver-
ið boðin út en nýverið náðist sam-
komulag við landeigendur í Þorska-
firði, samkvæmt upplýsingum á vef
Vegagerðarinnar. Verkið ber heit-
ið Vestfjarðavegur (60) um Gufu-
dalssveit, Kinnarstaðir-Þórustað-
ir. Í því felst nýbygging Vestfjarða-
vegar á um 2,7 km kafla við aust-
anverðan Þorskafjörð. Meðal verk-
efna er bygging 260 metra langrar
steyptrar brúar yfir fjörðinn. Veg-
urinn verður alfarið byggður í nýju
vegstæði en tengist núverandi Vest-
fjarðavegi í báða enda. útboðið er
auglýst á Evrópska efnahagssvæð-
inu (EES).
mm
Þverun Þorskafjarðar boðin út
Á FV á Kaldármelum
1988 sigraði Maggi
Ben í öllum stökk-
greinum á mótinu.
Hér situr hann hestinn
Elías frá Hjallanesi.
Maggi Ben ráðinn
framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts
Maggi Ben.
Reglugerð undirrituð
um veiðar á loðnu
Á loðnuveiðum. Ljósm. úr safni/ Friðþjófur Helgason.
Merki mótsins.