Skessuhorn - 27.01.2021, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 20216
Auka loðnukvóta
LANDIÐ: Hafrannsókna-
stofnun hefur endurútreikn-
að loðnuráðgjöf sína eftir
að loðna mældist austan við
landið í síðustu viku. Loðnu-
ráðgjöf um afla á vertíðinni
2020/21 verður því 61 þúsund
tonn í stað 22 þúsund tonna
eins og stofnunin hafði áður
mælt með. -mm
Afmæli handrit-
anna heim
LANDIÐ: Ríkisstjórnin
ákvað á fundi sínum í gær-
morgun að styrkja Stofnun
Árna Magnússonar í íslensk-
um fræðum um átta milljónir
króna vegna heimkomuafmæl-
is handritanna. 50 ár eru senn
liðin frá því fyrstu handritun-
um var skilað til Íslands frá
Danmörku en 21. apríl 1971
lagði herskipið Vædderen að
bryggju í Reykjavík með Kon-
ungsbók Eddukvæða og Flat-
eyjarbók í farteskinu. Mik-
ill mannfjöldi beið á bryggj-
unni og myndast þjóðhátíð-
arstemning í landinu við þessi
tímamót. -mm
Mikið um
hraðakstur
VESTURLAND: Að sögn
lögreglu hefur mikið verið
um hraðakstur í umdæminu
og of algengt að ökumenn séu
mældir á 120 til 130 kílómetra
hraða þar sem leyfilegur há-
markshraði eru 90 kílómetrar.
Sekt við slíku er á bilinu 80 til
120 þúsund auk þess sem einn
til tveir punktar færast í öku-
ferilsskrá ökumanns. -frg
Hraðakstur á
Innnesvegi
AKRANES: Talsvert hefur
borið á hraðakstri á Innnes-
vegi á Akranesi á kaflanum
á milli Ytri Hólms og bæjar-
marka Akraness. Á þessu svæði
er leyfður hámarkshraði tek-
inn fyrst niður í 70 kílómetra
og síðan 50 kílómetra. Lög-
reglu berast margar kvartan-
ir um hraðakstur á kaflanum,
nýtt hverfi í Krosslandi bygg-
ist hratt upp og vaxandi um-
ferð gangandi vegfarenda um
svæðið. -frg
Köttur í
rottugildru
MUNAÐARNES: Síðdegis á
miðvikudag barst Neyðarlínu
tilkynning um kött sem væri
fastur í rottugildru við sumar-
hús í Borgarfirði. Tilkynnandi
sem var á göngu og jafnframt í
sóttkví losaði köttinn úr gildr-
unni en kötturinn var bæði
laskaður og skelkaður. -frg
Lögreglumenn
fundu kannabis-
lykt
ÓLAFSVÍK: Á fimmtudag
átti lögregla erindi við aðila í
Ólafsvík. Lögreglumennirn-
ir fundu mikla kannabislykt.
Aðili heimilaði leit og fund-
ust fíkniefni í húsinu. Aðili var
kærður fyrir vörslu og með-
ferð ávana- og fíkniefna. -frg
Tvö þóttust vera
eftirlitsmenn
MAST
LANDIÐ: Matvælastofnun hef-
ur óskað eftir rannsókn lögreglu
á atburði þar sem tveir einstak-
lingar heimsóttu hundagæslu á
Norðurlandi undir því yfirskyni
að vera starfsmenn stofnunarinn-
ar. Sett var út á starfsemina og
hún stöðvuð. Ekkert eftirlit fór
fram þennan dag af hálfu Mat-
vælastofnunar, segir í tilkynn-
ingu. Í 116. gr. almennra hegn-
ingarlaga segir að hver sá sem
tekur sér opinbert vald sem hann
ekki hefur, skuli sæta sektum eða
fangelsi allt að einu ári eða, ef
miklar sakir eru, allt að tveimur
árum. Í kjölfar þessa atviks ítrek-
aði Matvælastofnun að eftirlits-
menn hennar bera auðkenniskort
og klæði stofnunarinnar í eftirliti.
„Þeir geta og skulu ávallt fram-
vísa skilríkjum ef þess er óskað.
Eftirlitsþegar eiga ávallt að geta
treyst því að um ósvikið eftirlit sé
að ræða.“ -mm
Hægt að sækja um
bólusetningarskír-
teini
LANDIÐ: Í liðinni viku fékk hóp-
ur einstaklinga síðari bólusetn-
ingarsprautuna gegn COVID-19
og telst þar með fullbólusettur.
Hjá embætti landlæknis var í síð-
ustu viku lögð lokahönd á raf-
ræna lausn sem gerir fólki kleift
að sækja sér bólusetningarvott-
orð á vefnum; heilsuvera.is. Vott-
orðið er að efni og útliti í sam-
ræmi við fyrirliggjandi evrópska
staðla og alþjóðlega bólusetning-
arskírteinið. „Markmiðið er að
greiða för fólks milli landa, þann-
ig að einstaklingar geti framvísað
bóluefnavottorði á landamærum
og séu þá undanþegnir sóttvarn-
aráðstöfunum vegna COVID-19
í samræmi við reglur hlutaðeig-
andi lands,“ segir í tilkynningu
frá heilbrigðisráðuneytinu. -mm
Fiskmarkaður Snæfellbæjar í Ólafs-
vík flutti starfsemi sína úr Banka-
stræti rétt fyrir áramót og í 1.600
fermetra húsnæði sem áður hýsti
Fiskiðjuna Bylgju. Andri Steinn
Benediktsson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins segir í samtali við
Skessuhorn að gamla húnæðið sem
þeir voru í hafi fyrir löngu verið
orðið sprungið utan af starfsem-
inni. „Nýja húsnæðið býður upp
á mikið betra flæði frá móttöku,
flokkun, vigtun, slægingu og af-
greiðslu í bíla,“ segir Andri og bæt-
ir við að mikill munur sé einnig á
aðstöðu starfsfólks. „Við erum auk
þess nær hafnarsvæðinu og helm-
ingi styttra er að keyra með aflann í
hús en áður var.“
Að sögn Andra seldi Fiskmark-
aður Snæfellsbæjar alls 19.442 tonn
árið 2020 en árið á undan voru það
tæplega 15.900 tonn. „Svo þetta
er ágætis aukning milli ára,“ seg-
ir Andri. „Starfsstöðvar okkar eru
auk Ólafsvíkur á Akranesi, Tálkna-
firði, Sauðárkróki, Skagaströnd og
Grundarfirði en þar seldum við
5400 tonn á síðasta ári. Hjá okkur
eru 17 starfsmenn auk lausafólks á
vertíð í löndun, vigtun, flokkun og
slægingu. Einnig fáum við verktaka
sem sjá m.a. um löndun á öðrum
höfnum. Magni jens Aðalsteins-
son er verkstjóri á markaðinum
og Daniel Wasiewicz sér um slæg-
inguna.“ af
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar
fluttur í nýtt húsnæði
Ísa á
aðgerða-
borðinu.
Ljósm. þa.
Slæging í gangi. Ljósm. af.
Andri Steinn á skrifstofu sinni. Ljósm. af.