Skessuhorn - 27.01.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 20218
Brúarvinnuhópur frá Vegagerðinni
vinnur þessa dagana við lagfær-
ingar á brúnni yfir Geirsá í Borg-
arfirði, en hún er hluti tengiveg-
ar neðst í Reykholtsdal, bæjanna
Kletts og Runna. Brúarbitar sem
hvíldu á trébúkkum gáfu sig síðasta
sumar þegar steypudælubíl var ekið
yfir hana. Hefur brúin verið lokuð
fyrir umferð síðan. Brúargólfinu er
lyft af meðan settar eru nýjar und-
irstöður.
mm/ Ljósm. est.
Séra jón Ragnarsson hefur ver-
ið settur prestur til bráðabirgða í
sameinað Reykholts- og Hvann-
eyrarprestakall í Borgarfirði. Eins
og kunnugt er lét séra Geir Waage
sóknarprestur af störfum fyrir ald-
urs sakir um nýliðin áramót, en
hann varð sjötugur í desember.
Vegna sameiningar prestakallanna
hefur nú verið boðað til safnaðar-
funda til að kjósa ellefu manns í
valnefnd. Eftir að kjörnefnd hefur
verið valin mun Biskupsstofa aug-
lýsa starf sóknarprests laust til um-
sóknar og valnefnd kýs að svo búnu
um hver væntanlegra umsækjenda
verður skipaður sóknarprestur. Séra
jón er settur prestur frá 1. janúar til
1. mars 2021.
mm
Séra jónína Ólafsdóttir, einn þriggja
presta á Akranesi, var síðastliðinn
fimmtudag ráðin sóknarprestur í
Hafnarfjarðarprestakalli og er því á
förum frá Akranesi. Sr. jónína var
settur prestur í Dalvíkurprestakalli
um hálfs árs skeið áður en hún var
ráðin prestur í Garða- og Saurbæj-
arprestakalli 1. apríl á síðasta ári.
mm
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir
framkvæmdir við heilsugæslustöð
HVE í Ólafsvík. Verið er skipta um
og lengja þak ásamt því að þakkanti
er breytt þannig að hann er lengd-
ur og klæddur með áli. Settar verða
nýjar rennur og skipt um þá glugga
sem þarf ásamt því að húsið sjálft
verður málað. Undanfarin ár hefur
orðið vart við leka í gegnum stein-
steyptan þakkant á húsinu en aldrei
eins mikinn og á síðasta ári og því
nauðsynlegt að koma fyrir lekann.
Það er byggingaverktakinn K16
ehf sem sér um verkið en sama fyr-
irtæki er einnig með verkefni fyrir
HVE á Akranesi. þa
Ok fullur frá
Reykjavík
AKRANES: Aðfararnótt
þriðjudags barst Neyðarlínu
tilkynning um ökumann sem
lagt hefði af stað frá Reykja-
vík skömmu eftir miðnætti.
Ökumaður var stöðvaður í
Borgarnesi og endaði ferða-
lagið í fangaklefa á Akranesi.
Hann var látinn laus að lok-
inni hefðbundinni meðferð.
-frg
Aflatölur fyrir
Vesturland
16. - 22. janúar
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu
Akranes: 1 bátur.
Heildarlöndun: 3.905 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF-80:
3.905 kg. í einni löndun.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 22.043 kg.
Mestur afli: Kristinn
HU-812: 11.156 kg. í einni
löndun.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 653.291
kg.
Mestur afli: Kap II VE-7:
110.107 kg. í fjórum lönd-
unum.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 297.997
kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarna-
son SH-137: 48.280 kg. í
fjórum löndunum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 569.994
kg.
Mestur afli: Tjaldur
SH-270: 94.909 kg. í einni
löndun.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 12.575 kg.
Mestur afli: Sjöfn SH-707:
4.350 kg. í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Tjaldur SH-270 - RIF:
94.909 kg. 17. jan.
2. Farsæll SH-30 - GRU:
74.693 19. jan.
3. Rifsnes SH-44 - RIF:
74.209 18. jan.
4. Harðbakur EA-3 - GRU:
74.104 19. jan.
5. Sigurborg SH-12 -
GRU: 72.639 18. jan.
-frg
Lögregla
stöðvaði grill
HELLISSANDUR: Á
fimmtudag barst Neyðarlínu
tilkynning um að krakkar væru
að leika sér með eld á túni við
Hellisbraut á Hellissandi. Þeg-
ar lögreglu bar að voru krakk-
ar að grilla pylsur yfir eldi sem
þau höfðu kveikt á grasinu og
umlukið með múrsteinshell-
um. Rætt var við krakkana og
í framhaldi við foreldra eins
og ávalt er gert þegar lögregla
hefur afskipti af ólögráða ein-
staklingum. -frg
Sjúkrabíll í
forgangi fyrir
sofandi mann
BORGARNES: Ökumaður
nokkur sem var á leið norður
í land í liðinni viku taldi veg-
inn vera ófæran. Hann lagði
sig því í bílnum á bílastæði í
Borgarnesi. Vegfarendur tóku
eftir honum þar sem hann svaf
í bílnum og töldu hann þurfa á
endurlífgun að halda. Var því
sjúkrabíll sendur á staðinn í
forgangsakstri. Ekki þurfti þó
að grípa til slíkra örþrifaráða
þar sem ökumaður vaknaði
við atganginn, var brugðið. Að
sögn lögreglu er þó betra að
hringja í Neyðarlínuna ef fólk
er í vafa því það getur skilið
milli lífs og dauða. -frg
Ók út af við
Skorholt
VESTURLAND: Bíl var ekið
út af Vesturlandsvegi við Skor-
holt í Melasveit sl. mánudag.
Ökumaður hringdi sjálfur eft-
ir aðstoð og kenndi hann sér
einhverra eymsla. Aðeins var
tæp vika síðan flutningabíll ók
útaf á svipuðum slóðum. Eng-
inn vindmælir er á þessu svæði
en hins vegar geta vindhviður
verið afar varasamar. -frg
Ók undir áhrif-
um kannabisefna
AKRANES: Á mánudag
stöðvuðu lögreglumenn för
ökumanns sem við athugun
reyndist undir áhrifum kanna-
bis. Ökumaður var handtekinn
og fór mál hans hefðbundna
leið. -frg
Bílvelta við
Hvalfjarðargöng
VESTURLAND: Aðfarar-
nótt þriðjudags varð bílvelta
við hringtorgið norðan meg-
in við Hvalfjarðargöng. Öku-
maður og farþegi voru fluttir
á sjúkrahúsið á Akranesi. Ann-
ar aðilinn var síðan fluttur til
Reykjavíkur. Grunur er um
akstur undir áhrifum áfeng-
is og fíkniefna og er málið til
rannsóknar. -frg
Viðgerðir á heilsugæslustöð
HVE í Ólafsvík
Séra Jón Ragnarsson. Mynd úr safni frá því hann þjónaði í afleysingum á
Akranesi.
Sóknarprestur settur til bráðabirgða
Séra Jónína á leið í Hafnarfjörð
Prestarnir þrír á Akranesi; f.v.
Jónína Ólafsdóttir, Þráinn
Haraldsson og Þóra Björg
Sigurðardóttir slógu eftir-
minnilega í gegn í verkefninu
Skaginn syngur inn jólin, þegar
þau sungu „Beðið eftir Jesúsi“
eftir Baggalút. Ljósm. úr safni.
Lagfæra brúna yfir
Geirsá í Borgarfirði