Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 2021 17
Þrjár verslanir í strjálbýli hlutu ný-
verið styrki úr byggðaáætlun rík-
isstjórnarinnar. Það voru Hrís-
eyjarbúðin, Kauptún Vopnafirði
og verslun að Reykhólum sem fær
hæsta styrkinn, eða 5,8 milljónir
króna. Engin verslun hefur verið á
Reykhólum síðan í október þegar
Hólabúðinni var lokað. Hafa íbú-
ar þurft að aka um langan veg til
að komast í verslun en næstu versl-
anir eru á Hólmavík og í Búðardal.
Sveitarfélagið auglýsti í haust versl-
unarhúsnæðið til leigu. Helga Guð-
mundsdóttir og Arnþór Sigurðs-
son voru þau einu sem sóttu um og
fengu. Hafa þau síðan verið að und-
irbúa opnun verslunarinnar.
Blaðamaður Skessuhorns náði
tali af Helgu og spurði hvernig
hugmyndin hefði komið til. „Við
vorum stödd á Reykhólum í októ-
ber og fréttum þá að búðin væri
lokuð og hætt rekstri. Okkur fannst
það ótækt því staðurinn og nátt-
úran í kring er ægifögur. Ég spyr
manninn minn hvort við ættum
ekki bara að opna búðina. Hann
veðraðist allur upp en okkur langar
bæði að búa í sveit. Okkur langaði
líka til þess að gera gagn og fannst
ótækt að fólk þyrfti að keyra í eina
og hálfa klukkustund eftir mjólk.
Það búa hér á staðnum um 150
manns og fleiri í nágrenninu og
mikið er af barnafólki. Svo er leið-
in til Hólmavíkur stundum lokuð
og færð þung,“ sagði Helga. Hún
heldur áfram: „Ég var að vinna á
Landakoti og kunni mjög vel við
mig á þeim vinnustað en ég hef líka
mjög gaman af því að takast á við ný
verkefni. Ég sagði þetta við mann-
inn minn í hálfkæringi en svo æxl-
uðust hlutirnir svona. Hann er for-
ritari og getur því unnið í fjarvinnu
eftir að við verðum flutt.“
Húsnæðið fyrir reksturinn rúmar
bæði verslun og veitingastað. „Veit-
ingastaðurinn er flottur og í mjög
fínu ástandi en verslunina þurfti
aðeins að laga og sér sveitarfélagið
um þær framkvæmdir enda eig-
andi hússins. Þrátt fyrir það þarf að
leggja í nokkra fjárfestingu og þó
að hægt hefði verið að fá lán til að
hefja reksturinn erum við komin á
þeim aldri að við viljum ekki hafa
peningaáhyggjur. Við skoðuðum
vef Byggðastofnunar í nóvember en
þá var ekki búið að auglýsa styrk-
inn sem við síðan fengum. Þeg-
ar við fréttum svo að búið væri að
auglýsa eftir umsóknum um styrk-
inn höfðum við aðeins eina viku til
þess að semja rekstraráætlun og út-
búa umsókn. Við sóttum um í lok
nóvember og fengum svo loks svar
á þriðjudaginn,“ segir Helga.
„Okkur finnst svo skemmtilegt
hvað allir eru tilbúnir að taka á
móti þessu. Það er hægt að gera svo
margt og okkur langar að gera svo
margt. Okkur langar að byrja á að
gera svona kósý-horn með kaffivél.
Fólk geti þá komið og sest niður,
kíkt í búðina ef það vill og annars
bara spjallað. Það er svolítið hjart-
að í litlu samfélagi þegar fólk getur
hist svona.“
Fyrirhugað er að verslunin verði
opnuð í byrjun apríl. Lítið sem
ekkert er um laust íbúðarhúsnæði
á Reykhólum en Helga segist ekki
hafa áhyggjur af því. „Við erum
svolítið forlagatrúar og trúum því
að rétta húsnæðið komi til okkar á
réttum tíma.“ frg
Helga og Arnþór reikna með að opna verslunina í byrjun apríl.
Verslun opnuð á ný
á Reykhólum í vor
Horft í gegnum verkið Í blóma.
Ljósm. emgd.
hlutir eru að gerast og maður er
jafnvel í beinni útsendingu í frétta-
tíma.“
Spurning um listform
Elsa María segir að hún hafi alls ekki
gengið með blaðamann í maganum
áður en hún sótti um starf frétta-
manns hjá RUV. „Starf fréttmanns
byggir hins vegar á því að maður
hafi áhuga fyrir málefnum líðandi
stundar og vissulega gekk ég með
sögumanninn í maganum, hef alla
tíð skrifað mikið. Í listnámi mínu
lagði ég áherslu á rýmisverk og það
sem ég hef gert sem listamaður er
að túlka á myndrænu formi, einkum
í skúlptúr og keramik. Svo er allt-
af spurning hver lokaafurðin verð-
ur. Hún getur hvort heldur sem er
verið listaverkið Síbería, úr reka-
viði úr Árneshreppi sem staðsett er
á Breiðinni á Akranesi, eða frétt í
sjónvarpinu um litlu jólasveinana
hennar Möggu dagmömmu. Allur
sá grunnur sem ég hafði síðan úr
námi og listinni hjálpaði mér fljótt
að finna mig í starfi fréttamanns.
Þá einhvern veginn small þetta vel
saman.“
Staðalbúnaður í bílnum
Þá nefnir Elsa María að ófyrirsjá-
anleikinn í starfinu sé alltaf mik-
ill, þrátt fyrir góða skipulagningu.
„Maður getur sjaldnast vitað fyr-
irfram hvað dagurinn ber í skauti
sér. Til dæmis hvernig maður á
að klæða sig að morgni til að föt-
in henti tilefninu. Það er til dæmis
langt síðan ég gaf það upp á bátinn
að mæta í pylsi í vinnuna, það hent-
ar einfaldlega ekki. Hef því í bíln-
um snyrtibudduna til taks en ekki
síður allan þann hlífðarfatnað sem
þarf til að mæta óveðri eða ófærð
á fjallvegum, eða ferð milli lands-
hluta sem tekur lengri tíma en áætl-
að var í fyrstu.“ Elsa María ekur um
á Dacia Duster, bíl sem er fjórhjóla-
drifinn og kemur henni því áleiðis
þótt færð sé ekki upp á það besta.
Hún nefnir að einna helsti ókost-
ur bílsins sé að eldsneytistankurinn
mætti vera stærri, því löng leið er
milli byggða á Vesturlandi og Vest-
fjörðum.
Skóli í sjálfsaga
Nú er Elsa María spurð hvað hafi
reynst henni erfiðast við nýtt starf
í stórum landshluta? Eftir umhugs-
un svarar hún að það sé sú áskorun
að starfa sem einyrki. „Það krefst
sjálfsaga að læra að vinna bara með
sjálfum sér og því nauðsynlegt að
skipuleggja sig vel. Auðvitað get ég
alltaf hringt og spurt ráða á frétta-
stofunni. En ég sakna þess að geta
ekki átt reglulegan debat með koll-
egum. Þá þarf ég sömuleiðis að vera
sanngjörn við sjálfa mig. Það er svo
auðvelt að ásaka sjálfa sig fyrir eitt-
hvað sem hefði mátt betur fara, eða
vinna öðruvísi, og láta þannig smá-
atriðin skemma fyrir heildarmynd-
inni.“
Elsa María flutti í Borgarnes á
síðasta ári en hefur enn sem kom-
ið er kynnst fáum Borgnesingum.
„Það er sérstakt að flytja í nýtt bæj-
arfélag í miðjum heimsfaraldri þar
sem samgangur fólks er mjög tak-
markaður. Ég á því eftir að kynnast
fólkinu í Borgarnesi og Borgarfirði
betur og hlakka til þess þegar sam-
komutakmörkunum linnir.“
Það sem ekki
drepur mann..
„Ég hef fundið fyrir mikilli vænt-
umþykju frá íbúum á starfssvæði
mínu og finnst gleðilegt hversu
áhugasamt það er um að við séum
að flytja fréttir af svæðinu. Ég hef
oft undrað mig á hvað fólk er já-
kvætt og yfirleitt að ég fái að sinna
þessu gefandi starfi. Vissulega hafa
margir stappað í mig stálinu og
stundum þarf maður að bíta á jaxl-
inn þegar fjallað er um erfið mál og
viðkvæm, eins og málið með togar-
ann sem haldið var á sjó þótt nánast
allir skipverjarnir væru veikir. En
það sem ekki drepur mann, styrk-
ir mann, segir í máltækinu. Mér
finnst ég klárlega vera að finna mig
í þessu starfi og því er ég þakklát
fyrir að hafa verið boðið að halda
því áfram,“ segir Elsa María Guð-
laugs Drífudóttir að endingu.
mm
Elsa María ásamt Óskari Torfasyni úr Slökkviliðinu á Drangsnesi en þarna var hún
að vinna frétt um brunavarnir fyrir jólin 2019. Ljósm. Jóhannes Jónsson.
Um síðustu verslunarmannahelgi vann
Elsa María postulínsverk sem hún
sýndi á Ísafirði. Verkið hét „Í blóma“
og var sýnt á hópsýningunni Fokhelt.
Ljósm. emgd.
Fríform ehf.
Askalind 3,
2�1 Kópavogur.
562–15��
Friform.is.
2
�
�
�
—
2
�
2
�
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–��
Mán. – Föst. 1�–1�
Laugardaga 11�15