Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 18

Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 202118 Nemendum í Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi stendur nú til boða að taka áfanga í floti og sjó- sundi en skólinn er fyrsti fram- haldsskóli landsins að bjóða upp á slíkan áfanga. „Flot í þyngdarleysi í heitri sundlaug er einstök leið til að losa spennu úr líkama og sál. Flot skapar aðstæður fyrir djúpslökun og getur m.a. minnkað streitu, auk- ið sköpun, bætt einbeitingu og auk- ið svefngæði,“ segir í áfangalýsing- unni. Áfanginn er hluti af íþrótta- kennslu við skólann en þær Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og Helena Ólafsdóttir eru nú að endurskipu- leggja íþróttakennsluna við skól- ann. Þær settust niður með blaða- manni og sögðu frá þeim breyting- um sem verða gerðar á íþróttastarfi í skólanum á næstu vikum. Slakasti áfanginn Tímarnir í floti eru á fimmtudags- kvöldum í Bjarnalaug og að sögn Hildar Karenar er aðsókn í tím- ana góð. „Við byrjum tímana á að gera teygjur og öndunaræfing- ar, róa hugann og ná góðri slökun. Ég kveiki á kertum á bakkanum og svo hlustum við á slökunartónlist á meðan nemendurnir halla sér aftur og fljóta um í lauginni, sem er um 35 gráður heit, í svona 50 mínútur. Ég fer á milli þeirra og beiti ákveð- inni vatnsmeðhöndlun til að hjálpa þeim að ná djúpslökun,“ útskýr- ir Hildur Karen. „Þetta er slakasti áfangi sem hægt er að finna,“ bæt- ir Helena við og hlær. Sjósund hef- ur notið mikilla vinsælda síðustu ár og í vor þegar hlýnar aðeins í veðri mun Hildur Karen fara með nem- endur niður á Langasand í sjósund. „Það eru margir að finna sig í sjó- sundi og áhrifum þess en áður en farið er í sjóinn þarf maður að vera meðvitaður um hætturnar þar. Við munum fara yfir þær og helstu ör- yggisatriði áður en við förum útí. Svo eftir smá sjósund förum við í Guðlaugu,“ segir Hildur Karen. Breytt áhersla Í anda heilsueflandi framhalds- skóla er nú unnið að því að nem- endur öðlist færni og áhuga á að stunda hreyfingu almennt og hafi um leið frelsi til að velja sína hreyf- ingu „Við höfum verið með hefð- bundna íþróttakennslu undanfar- in ár en ákveðið var að breyta til núna,“ segir Helena um nýtt fyr- irkomulag á íþróttakennslu við skólann. „Frekar en að vera alltaf í íþróttasalnum að kenna á hefð- bundinn hátt reynum við frekar að gera nemendur sjálfstæðari í hreyf- ingu almennt svo þau geti hald- ið áfram að stunda hana eftir að þau hætta hjá okkur,“ útskýrir hún. „Við viljum líka ná til þeirra sem ekki eru að finna sig í hefðbund- um íþróttatímum og vekja áhuga þeirra á hreyfingu sem þeim finnst skemmtileg og geta stundað áfram eftir að skólagöngu lýkur. Þau sem vilja t.d. vera í ræktinni geta þá lært undirstöðuatriðin hjá okkur, hvern- ig tækin virka og hvernig beita eigi líkamanum og hafa þá meiri þekk- ingu og sjálfstraust þegar þau fara sjálf í ræktina,“ bætir Hildur við. Mataræði og svefn Aðspurðar segjast þær einnig fræða nemendur um heilsusamlegan lífs- tíl. „Hugmyndin er að þegar þau koma í íþróttakennslu þá fái þau fræðslu um heilsu almennt. Vissu- lega eru þau lítið að pæla í ýmsum lífsstílssjúkdómum en það kem- ur að því að þau þurfi að hugsa um þannig hluti og við viljum vera búin að kveikja aðeins á þeim. Við mun- um fræða þau um næringu, svefn, hreyfingu og bara heilbrigði al- mennt,“ segir Helena. „Þetta er þó allt í mótun ennþá. Við mynd- um vilja geta kennt þeim enn meira en við höfum þau bara í svo stutta stund,“ bætir Hildur Karen við. Þær ætla að taka þessa önn til að móta íþróttakennsluna betur og vona að næsta haust geti FVA boðið upp á íþróttakennslu eftir þessum nýju hugmyndum. „Við erum að prófa okkur áfram núna og höfum meðal annars óskað eftir hugmyndum frá krökkunum, hvað þau vilji gera og fá þau til að hugsa aðeins út fyrir boxið með okkur,“ segja þær. Vilja hreyfa sig Þegar bókleg kennsla við FVA fór í fjarnám vegna Covid-19 síðasta haust var ákváðið að þær Hild- ur Karen og Helena myndu halda áfram að hitta krakkana utandyra, innan þeirra sóttvarnatakmarkana sem voru í gildi. „Við hittumst við íþróttahúsið á Vesturgötu og gátu nemendur ráðið hvort þeir færu að ganga, hlaupa eða hjóla. Við fund- um að þau voru rosalega ánægð að geta komið saman, hreyft sig og spjallað aðeins. Við fundum líka að þegar við gátum ekki hitt þau voru þau samt dugleg að fara út og hreyfa sig, þau langar flest til að hreyfa sig eitthvað,“ segja þær. „Við þurftum að endurhugsa alla íþróttakennsluna í haust og þá varð enn ljósara mikilvægi þess að leyfa krökkunum að velja sér hreyfingu. Við erum að vinna að því í samráði við ÍA og Akraneskaupstað að bjóða upp á að nemendur fari í sjálf- stæða þrektíma í ræktinni, komi í stöðvaþjálfun með okkur, fari út að hlaupa, hjóla, ganga eða bara eitt- hvað sem þau langar að gera, jafnvel að fara út að ganga með hundinn,“ segir Helena. „Þetta er viðkvæmur hópur sem á það til að detta alveg úr allri hreyfingu á þessum aldri og svo koma þau ekki inn aftur fyrr en kannski eftir 25 ára aldur. Við vil- jum koma í veg fyrir það. Við vil- jum fyrst og fremst að þau hreyfi sig og finni að hreyfing geri þeim gott, þá halda þau vonandi áfram að hreyfa sig út lífið,“ segja þær. arg/ Ljósm. aðsendar Þær segja mikilvægt að nemendur finni hreyfingu sem þeim þykir skemmtileg og geti séð fyrir sér að stunda áfram. Vilja kveikja áhuga nemenda á hreyfingu Helena Ólafsdóttir og Hildur Karen Aðalsteinsdóttir eru að endurskipuleggja íþróttakennslu við FVA. Ljósm. arg. FVA er fyrsti skólinn til að bjóða upp á áfanga í floti. Helena og Hildur Karen vilja geta boðið nemendum líka að nota ræktina í íþróttakennslu.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.