Skessuhorn - 27.01.2021, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 202120
Þorrablót Skagamanna var hald-
ið síðastliðinn laugardag. Að þessu
sinni var það Sjötíu og níu menn-
ingarfélag, árgangur 1979, sem sá
um blótið en Club 71 hafði séð um
blótið frá upphafi. Vegna faraldurs-
ins var blótinu streymt í beinni út-
sendingu frá Bárunni Brugghúsi.
ÍATV sá um myndatöku og útsend-
ingu þorrablótsins til Skagamanna
hvar sem þeir voru staddir í heim-
inum. Sáu þeir einnig um tækniað-
stoð við þá sem mögulega þurftu á
aðstoð að halda til þess að tengjast
og geta notið blótsins. Veitingastað-
irnir Galito og Gamla kaupfélagið
voru með þorramat á boðstólnum
sem bæjarbúum bauðst að fá heims-
endan. Það voru aðildarfélög ÍA
sem sáu um heimsendinguna.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ráðherra og Skagamaður, ávarpaði
gesti og setti blótið. Karlakórinn
Pungarnir flutti lagið „Kveikjum
eldana,“ prestarnir; sérarnir jónína
Ólafsdóttir, Þóra Björg Sigurðar-
dóttir og Þráinn Haraldsson fluttu
sérsniðna útgáfu af laginu „Það
koma vonandi jól,“ eftir Baggalút.
Guðjón Davíð Karlsson var kynn-
ir kvöldsins. Hann er að vísu ekki
Skagamaður en Steinunn jóhann-
esdóttir leikkona og Skagakona var
eitt sinn nágranni Góa auk þess sem
Hallgrímur Ólafsson, leikari og
Skagamaður er besti vinur hans.
Fyrirtæki á Akranesi buðu upp
á eftirtektarverðar leiknar auglýs-
ingar. Ingi Björn Róbertsson, Iddi
Biddi, fór á kostum í sketchum og
í auglýsingagerð. Hann gerði meðal
annars grín að samskiptum bæjar-
búa á Facebook síðunni „Ég er íbúi
á Akranesi“ sem þótti hitta í mark.
Að venju var happdrætti þar sem
vinningar voru óvenju glæsilegir.
Mun verðmæti vinninga hafa numið
um einni og hálfri milljón en vinn-
ingar komu frá ýmsum fyrirtækjum
og einyrkjum í bænum.
Heilbrigðisstarfsfólk
heiðrað
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri,
kynnti Skagamenn ársins. Þeir eru
að þessu sinni heilbrigðisstarfsmenn
og veittu fulltrúar þeirra, þau Hulda
Gestsdóttir hjúkrunarfræðingur og
Sigurður Már Sigmarsson sjúkra-
flutningamaður, viðurkenningunni
viðtöku fyrir hönd þeirra. Í inn-
gangi sínum flutti Sævar í bundnu
máli ljóð eftir Heiðrúnar jónsdótt-
ur, hirðskáld á bæjarskrifstofunum,
en það hljóðar svo:
Skagamenn ársins 2020
Liðið ár var lítið gaman,
leika ekkert máttum saman.
Ekki hitta ömmu og afa,
aldrei partý geggjuð hafa.
Ekki faðmast, knúsa, kyssa
og kjarkinn vorum bara að missa.
Mörgu varð nú samt að sinna
og sumir alltaf þurftu að vinna.
Kúrt ei gátu á kodda að dreyma
og Covid beðið af sér heima.
Þau á vaktir meðan mættu
í minni aðrir voru hættu.
Covid setti á kerfin snúning,
kjarnafólk í grímubúning
önnuðust og vörðu veika
vörnum hvergi mátti skeika.
Veirufjanda dugleg drápu,
daglega með spritti og sápu.
Heilbrigðis- á starfsfólk stjörnum
stráum nú og færum kjörnum
fulltrúum úr flokki vænum
af fagmennsku sem vinna í bænum
heiður þann sem hetjum sönnum
hæfir, ársins Skagamönnum!
Þá var komið að Hlédísi Sveins-
dóttir fjölmiðlakonu og Theodór
Hervarssyni veðurfræðingi en þau
blindsmökkuðu ýmsan þorramat
og reyndu að geta sér til um hvaða
mat var um að ræða hverju sinni.
Það var Theodór sem rétt marði
sigur á lokametrunum. Næst flutti
Hallgrímur Ólafsson, Halli Melló
sérhannaða útgáfu af laginu um
það sem er bannað eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson.
Hápunktur þorrablótsins var
síðan Skagaskaupið sem er annáll
þar sem farið er yfir liðið ár með
léttu ívafi. Árgangur 1980 á heiður-
inn af skaupinu sem þótti afar vel
heppnað. Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra
flutti smá ávarp þar sem hann með-
al annars hvatti áhorfendur til þess
að spritta sig vel, bæði að innan
jafnt sem utan. Sigrún Ósk Krist-
jánsdóttir kynnti atriði skaupsins af
miklu öryggi. Þá var komið að Páli
Gísla jónssyni sem vann leiksigur í
hlutverki Palla sem var einn í heim-
inum. Svo einhverjir séu nefndir þá
áttu Ólafur Sævarsson fasteignasali
hjá fasteignasölunni Domusnova
og Hrefna Dan hjá fasteignasölunni
Hákot góða spretti, Guðmundur
Þór Pálsson hjá GP vélum sömu-
leiðis. Stefnir Örn Sigmarsson og
Heimir jónasson komu sterkir inn.
Hilmar Sigvaldason lék sjálfan sig
í nokkrum atriðum, Sindri Birgis-
son var frábær sem fréttamaður en
að öðrum ólöstuðum er mál manna
að Gunni Hó hafi verið stjarna
skaupsins en hann lék vin sinn Ísólf
Haraldsson á óaðfinnanlegan hátt.
Í lok þorrablótsins hóf Herra
Hnetusmjör upp raust sína og flutti
nokkur lög. Það voru síðan Ingó
veðurguð og Einar Örn jónsson
sem slúttuðu þorrablótinu í ár og
sungu og léku stuðlög inn í nótt-
ina. Samkvæmt heimildum Skessu-
horn voru gestir þorrablótsins í ár
almennt afar sáttir með blótið og
skemmtu sér mjög vel.
Hannibal Hauksson, Ásgeir Sæv-
arson og Karen Lind Ólafsdóttir
sendu blaðinu meðfylgjandi ljós-
myndir sem teknar voru baksviðs
við undirbúning og útsendingu
þorrablótsins.
frg
Vel heppnað Þorrablót Skagamanna
Heilbrigðisstarfsfólk eru Skagamenn ársins 2020
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri kynnti valið á Skagmönnum ársins 2020. Hulda Gests og Sigurður Már tóku við
verðlaunum fyrir hönd vinnufélaga sinna.
Fulltrúar úr árgangi 1979 við undirbúning.
IATV menn sáu um upptökur, tæknimál og útsendingu.
Setið á rökstólum.
Gói, Ísólfur og Karen Lind.
Tæknimál við stóra útsendingu sem þessa eru flókin en valinn maður var í hverju
rúmi.