Skessuhorn - 27.01.2021, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 202124
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar 7. janúar síðastliðinn var lögð
fram til kynningar skýrsla KPMG
um skoðun á innra eftirliti og fjár-
hagskerfi sveitarfélagsins 2020.
Í skýrslunni eru gerðar fimm at-
hugasemdir við eftirlit og fjárhags-
kerfi Borgarbyggðar eins og fram
kemur í bókun byggðarráðs. Und-
irrituð taldi eðlilegt að í bókun yrði
gert grein fyrir því í hverjar þessar
ábendingar fælust. Mér var mein-
að að leggja fram slíka bókun með
þeim rökum að um trúnaðarupp-
lýsingar væri að ræða. Ákveðið var á
fundinum að umræðum um skýrsl-
una skildi frestað fram á næsta fund
og frekari upplýsinga yrði aflað
um réttmæti þess að um skýrsluna
skyldi ríkja trúnaður.
Skýrslan sem breyttist
í vinnuskjal
Á fundi byggðarráðs 21. janúar síð-
astliðinn var málið tekið upp aft-
ur nema skýrslan var ekki lengur
skýrsla heldur bar nú heitið „vinnu-
skjal“ og trúnaður um skjalið stað-
festur við fulltrúa í byggðarráði sem
var rökstuddur með því að upplýs-
ingarnar sem þar koma fram gætu
verið persónugreinanlegar. Þessum
sömu áhyggjum er varðar persónu-
greinanlegar upplýsingar var ekki
fyrir að fara hjá fulltrúum meiri-
hlutans þegar opinberuð var úttekt
Verkís á starfsemi slökkviliðs Borg-
arbyggðar í lok árs 2018, þegar sama
fólk lagði gríðarlega mikla áherslu
á að sú skýrsla yrði gerð opinber
þrátt fyrir að hún fjallaði í stórum
dráttum um ákveðna starfsmenn.
Ekki er of mikils til þess mælst að
umhverfið sé heilbrigt og sömu
leikreglur gildi fyrir alla. Ljóst er
að ef vilji meirihlutans stæði til þess
að veita íbúum þessar upplýsingar
væri vissulega hægt að fá heimild til
þess hjá skýrsluhöfundi.
Í bókun lagði ég áherslu á það sem
ég tel óásættanlegt, að ekki sé hægt
að greina frá helstu veikleikum og
ábendingum sem sveitarfélaginu
hafa borist í meginþáttum ásamt til-
lögum að úrbótum. Ég tel að hér sé
um að ræða upplýsingar sem íbúar
Borgarbyggðar eiga heimtingu á að
fá að vita. Fram kom í bókun meiri-
hlutans að alvarlegustu athuga-
semdunum yrðu gerð skil í skýrslu
endurskoðenda með ársreikningi.
Verða það þá ritskoðaðar og valdar
ábendingar?
Hvernig getum við auk-
ið gagnsæi og traust?
Vantraust á stjórnmálum birt-
ist reglulega í formi kvartana um
að fá ekki upplýsingar sem ósk-
að er eftir. Algengt er að kvart-
anir beinist að töfum sem verða á
því að upplýsingar séu veittar og
ekki eru alltaf öll gögn veitt. Þetta
viðmót og tregða til að bregðast
við leiða af sér tortryggni og efa-
semdir í garð stjórnsýslunnar og
stjórnmálamanna. Vantraust get-
ur haft afdrifaríkar afleiðingar og
leitt af sér viðvarandi neikvæða af-
stöðu til samskipta við kjörna full-
trúa.
Bætt samskipti við almenn-
ing er undirstaða trausts. Með-
vitund fólks og næmni gagnvart
því sem er eðlilegt í samskiptum
við stjórnmál og stjórnsýslu hef-
ur breyst mikið síðust áratugi.
Traust til stofnana og fyrirtækja
hvort heldur það er hér á landi
eða á alþjóðlegum vettvangi fer
dvínandi. Mikilvæg er meðvit-
und um það að traust verður fyrst
og fremst byggt upp með því að
viðhafa gegnsæi. Kjörnir fulltrú-
ar þurfa að tileinka sér heilbrigð
vinnubrögð og viðhorf og bregð-
ast hratt og örugglega við mistök-
um með því að taka ábyrgð.
Guðveig Lind Eyglóardóttir
Höf. er oddviti Framsóknarflokks í
sveitarstjórn Borgarbyggðar.
Ég er fæddur og uppalinn á Stað,
Súgandafirði. Barnæskan á Suð-
ureyri var yndisleg, ég get ekki
ímyndað mér betri stað til að alast
upp á. Við notuðum allt þorpið sem
leikvöll, hvort sem það var í byssó,
fallin spýta eða að reyna að svindla
pening upp úr þorpsbúum með því
að mála steina gulllitaða og selja þá
sem alvöru gull. Svo varð ég eldri,
byrjaði að vinna í fiski og hlusta á
karlana tala um pólitík. Það var allt-
af neikvætt. „Hvað eru þessi börn
inn á Alþingi eiginlega að hugsa?“
Þá byrjaði ég að taka eftir því að það
var ákveðið vonleysi yfir fullorðna
fólkinu. Þegar bankahrunið kom
og fréttirnar sögðu; „Nú er komin
kreppa,“ þá heyri ég: „Kreppan var
löngu komin vestur, enda erum við
alltaf á undan í tískunni.“
Ég bjó við þann veruleika að
bærinn sem ég ólst upp í og elsk-
aði gæti verið farinn í eyði þegar
ég yrði fullorðinn. Þetta varð ekki
raunin. Þrautaseigja, þol og hug-
vit varð til þess að núna er bjart yfir
stórum hluta Vestfjarða. Það er að
vísu ennþá kvartað yfir börnunum á
Alþingi en aðallega um að þau ættu
að færa sig frá. Þessu blómaskeiði er
samt ekki deilt jafnt meðal hrepp-
anna á Vestfjörðum. Sem dæmi má
þar nefna Árneshrepp sem að heyj-
ar baráttu á ögurstundu, ríkisvaldið
sem og aðrir Vestfirðingar þurfa að
styðja við heimafólk í hreppnum.
Á þessum björtu tímum er skuggi,
hvað ef þetta fer í sama horf? Hvað
ef þetta fer eins og kvótinn? Hvað
ef börnin á Alþingi klúðra öllu aft-
ur?
Sumir telja lausnina við þetta vera
að senda inn sinn fulltrúa, einhvern
sem getur siðað þessi börn. Aftur
og aftur er sent efnilegt fólk inn á
Alþingi sem á að redda hlutunum,
sem gengur oftast hægt á meðan
fólk lærir hvernig Alþingi virkar og
það virðist ekki vera hægt að vera
lengi inn á Alþingi og halda teng-
ingu við daglegt líf fólks. Hérna er
ég búinn að skrifa tvær málsgrein-
ar um Vestfirði en ég er í framboði
fyrir allt Norðvesturkjördæmi. Það
er allt annar raunveruleiki fyrir fólk
á Akranesi og fólk á Suðureyri. Ég
get lagt mig fram um að skilja þann
raunveruleika og mun gera það en
ég mun aldrei skilja hann að fullu.
Hver er ég að ákveða hvernig sam-
félag er byggt á Akranesi?
Það sem ég vil gera er þetta:
Ég vil berjast fyrir valddreifingu,
frá ráðherrum til Alþingis, frá Al-
þingi til sveitarfélaga og frá sveit-
arfélögum til íbúa. Með þessu valdi
myndi fylgja fjármagn og ábyrgð.
Við eigum að geta haft áhrif á þau
málefni sem snerta okkur, ekki
bara á fjögurra ára fresti. Hver bær
myndi skipuleggja sitt samfélag,
bæjarstjórn gæti gert mistök, tekið
slæmar ákvarðanir og látið frænd-
hygli ráða för en það eru nákvæm-
lega sömu áhætturnar og í núver-
andi kerfi. Er það verra að það sé
smákóngur á Tálknafirði í staðinn
fyrir inni í ráðuneyti? Það væri svo
fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig að
uppræta spillingu, stunda vönduð
vinnubrögð og dreifa valdinu en
frekar í gegnum íbúalýðræði ef það
hentar þeim.
Ég laðaðist að hugsýn Pírata. Þau
eru frumkvöðlar í sinni sýn að vald-
dreifingu. Valddreifing er svo mik-
ilvæg. Þá þegar karlarnir fussa og
sveija yfir heimskulegum ákvörð-
unum þá geta þeir mætt á bæjar-
stjórnarfund og spurt: Af hverju
er þetta svona? Kannski mun þeim
ekki líka við svarið en beint sam-
band við ákvarðanatköku lætur flest
fólk taka þá ákvörðun meira í sátt
jafnvel þótt að þau hefðu valið aðra
leið. Svo tel ég líka að ef þetta er
gert rétt, með fræðslu fyrir sveita-
stjórnarfulltrúa, fagleg vinnubrögð,
opið bókhald og gagnsæja stjórn-
sýslu. Þá mun þetta leiða til betri
ákvarðana og farsællar framtíðar.
Pétur Óli Þorvaldsson,
Stað í Súgandafirði.
Höf. er frambjóðendi í pröfkjöri
Pírata í Norðvesturkjördæmi.
Þó að enn sé hávetur þá
flykkist tjaldurinn nú í
Borgarvoginn í hundr-
uðatali. Á flóði safnast
fuglinn saman á skerinu
við Litlu Brákarey við
Borgarnes og er þar
þröng á þingi, eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd
sem Þorleifur Geirsson
tók 20. janúar síðastlið-
inn. Hluti af stofni tjalda
er staðfugl og heldur hér
til allt árið. Nærist þá
gjarnan á því sem sjór-
inn færir upp á grynning-
ar og situr um ætið þegar
fjarar út.
mm
Þrautaseiga,
þol og hugvit
Pennagrein
Uss.. enginn má vita
Tjaldurinn heldur fund í Litlu-Brákarey