Skessuhorn - 27.01.2021, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 2021 27
Skallagrímskonur mættu Blikum
á miðvikudaginn og Fjölni á laug-
ardaginn í Domino‘s deild kvenna
í körfuknattleik. Liðið tapaði báð-
um leikjunum. Í leiknum gegn
Blikum í Kópavogi var mikið jafn-
ræði með liðunum og í hálfleik var
staðan 36-34 Skallagrímskonum í
vil. Í síðari hálfleik náðu Blikar að
sigla fram úr bikarmeisturunum og
komust mest 16 stigum yfir, 65-49.
Þá svöruðu gestirnir með ellefu
stigum gegn einu og staðan orðin
66-60 fyrir Blikum. Ekki komust
Skallagrímskonur þó nær og Blikar
sigruðu með sjö stigum, 71-64.
Súrt tap gegn Fjölni
Í leiknum gegn Fjölni á laugardag-
inn byrjuðu liðin hnífjöfn en Skalla-
grímskonur náðu svo yfirhönd-
inni í lok fyrsta leikhluta og leiddu
með sjö stigum, 21-14. Fjölniskon-
ur náðu að minnka muninn í öðr-
um leikhluta en náðu þó aldrei að
jafna. Þegar gengið var til hálfleiks
var Skallagrímur með 39 stig gegn
34. Eftir leikhlé héldu Skallagríms-
konur áfram að leiða en Fjölnis-
konur gáfu ekkert eftir og náðu að
jafna þegar 28 mínútur voru liðn-
ar af leiknum, 54-54. Skallagrím-
ur gaf þá allt í leikinn og náði að
komast stigi yfir áður en þriðji leik-
hluti rann út. Í lokaleikhlutan-
um héldu liðin uppteknum hætti.
Skallagrímskonur voru með yfir-
höndina allt þar til á lokamínútu
leiksins þegar Fjölniskonur náðu
að skora sex stig gegn engu og þar
með að komast tveimur stigum yfir
og landa sigri, 76-74.
Í liði Skallagríms var Nikita Te-
lesford stigahæst með 16 stig og
tólf fráköst. Keira Robinsson var
með 15 stig, níu fráköst og níu
stoðsendingar, Sanja Orozovic var
með 15 stig og átta fráköst en aðr-
ar skoruðu minna. Í liði Fjölnis var
Ariel Hearn stigahæst með 26 stig,
13 stoðsenindingar og átta fráköst.
Lina Pikciuté var með 24 stig og
12 fráköst. Sara Carina Vaz Djassi
átti tólf stig og tíu fráköst en aðrar
skoruðu minna.
Skallagrímur situr nú í fimmta
sæti deildarinnar með sex stig eftir
sex leiki. Næst mætir liðið Haukum
í Borgarnesi í kvöld kl. 19:15 arg
Stelpurnar í 5. flokki Snæfellsnes-
samstarfsins í knattspyrnu létu rok
og kulda ekki á sig fá sunnudaginn
24. janúar síðastliðinn. Þann dag
hófu þær keppni í Faxaflóamótinu
þetta árið með heimaleik sem spil-
aður var á Ólafsvíkurvelli. Stelp-
urnar spila í D-riðli A-liða og tóku
á móti HK-2. Stóðu heimastúlkur
sig vel og sigruðu 5 - 1 í leiknum.
Þær spila næst við Víking Reykja-
vík-2 laugardaginn 6. febrúar á
Víkingsvellinum í Reykjavík.
Áhorfendur eru ekki leyfðir á
leiki, en einhverjir áhugasamir for-
eldrar sátu í bílum sínum og fylgd-
ust með.
þa
Skallagrímur mætti Hrunamönn-
um á Flúðum á föstudaginn og tóku
svo á móti Selfyssingum í Borgar-
nesi á mánudaginn í 1. deild karla
í körfuknattleik. Skallagrímsmenn
töpuðu með tveimur stigum gegn
Hrunamönnum eftir harða bar-
áttu. Í upphafi leiks voru heima-
menn á Flúðum sterkari en Skalla-
grímur jafnaði áður en fyrsti leik-
hluti kláraðist. Hrunamenn náðu
að auka forystuna í tólf stig á síð-
ustu mínútum fyrri hálfleiks. Eftir
hlé skoruðu Skallagrímsmenn tólf
stig gegn engu og jöfnuðu leikinn
á fyrstu fimm mínútunum. Þá tóku
heimamenn við sér og juku forskot-
ið á ný. Skallagrímur náði að kom-
ast tveimur stigum yfir í skamma
stund í fjórða leikhluta en heima-
menn vor fljótir að snúa því við og
héldu naumri forystu út leikinn og
sigruðu með 88 stigum gegn 86.
Sigruðu Selfyssinga
Skallagrímur sigraði Selfoss örugg-
lega með 88 stigum gegn 64 þegar
liðin mættust í Borgarnesi á mánu-
dagskvöldið. Liðin byrjuðu bæði vel
en um miðjan fyrsta leikhluta náðu
Skallagrímsmenn að sigla fram úr
gestunum og voru ellefu stigum
yfir í lok leikhlutans, 27-16. Lít-
ið markvert gerðist í leiknum eft-
ir það. Skallagrímsmenn héldu al-
veg stjórninni á vellinum, juku for-
skotið hægt og örugglega og loka-
staðan 88-64.
Í liði Skallagríms var Nebojsa
Knezevic atkvæðamestur með 23
stig, átta fráköst og átta stoðsend-
ingar. Mustapha Traore skoraði
17 stig og tók tíu fráköst, Davíð
Guðmundsson og Benedikt Lárus-
son voru með ellefu stig hvor en
aðrir skoruðu minna.
Næsti leikur Skallagríms verður
gegn Sindra á útivelli á föstudag-
inn, 29. janúar, kl. 19:15.
arg/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fyrir-
liði meistaraflokks kvenna í körfu
hjá Skallagrími hefur verið valin í
A-landsliðshóp kvenna. Framund-
an er landsleikjagluggi sem er síð-
asta umferð í undankeppni EM
kvenna 2021. Leikirnir áttu að vera
leiknir heima og að heiman en því
hefur verið breytt og liðið mun
leika í Ljubljana í Slóveníu í „ör-
yggisbubblu“ sem FIBA mun setja
upp fyrir landsliðin í A-riðli und-
ankeppninnar. Íslenska liðið mætir
Grikkjum fimmtudaginn 4. febrúar
og Slóveníu laugardaginn 6. febrú-
ar. Sigrún er reynslumest í landslið-
inu með 55 A-landsleiki að baki.
arg/ Ljósm. úr safni
Snæfell mætti Valskonum á mið-
vikudaginn og Blikum á laugar-
daginn í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik. Valur reyndist of
stór biti fyrir Snæfellskonur og sigr-
uðu þær örugglega með 80 stigum
gegn 68. Hólmarar náðu að hanga
í Völsurum allan leikinn. Það var
ekki fyrr en á lokamínútum sem
Valskonur náðu að skilja sig bet-
ur frá gestunum og koma munin-
um í tveggja stafa tölu og lokastaða
leiksins 80-68 fyrir Valskonum.
Sigur eftir
hnífjafnan leik
Í leiknum gegn Blikum var jafnræði
með liðunum. Í fyrsta leikhluta
skiptust liðin á að vera yfir en í lok
fyrsta leikhluta var Breiðablik einu
stigi yfir, 18-17. Enn voru liðin
hnífjöfn í öðrum leikhluta og þeg-
ar gengið var til hálfleiks var Snæ-
fell komið stigi yfir, 30-29. Í byrjun
þriðja leikhluta náðu Snæfellskon-
ur að halda sér yfir allt þar til um
miðjan leikhluta þegar Blikar gáfu
aðeins meira í og voru fimm stig-
um yfir þegar lokaleikhlutinn hófst
51-46. Heimakonur gáfu allt í leik-
inn og jöfnuðu á 33. mínútu. Það
má segja að allt hafi verið í járnum
þar til á lokamínútu leiksins þegar
heimakonur skoruðu sjö stig á móti
engu og sigruðu með 68 stig gegn
61.
Í liði Snæfells var Haiden Denise
Palmer atkvæðamest með 23 stig,
ellefu fráköst og sex stoðsendingar.
Emese Vida skoraði 14 stig og tók
ellefu fráköst, Anna Soffía Lárus-
dóttir skoraði tíu stig og tók átta
fráköst og aðrar skorðu minna.
Snæfell er nú í sjötta sæti deil-
darinnar með fjögur stig, jafnmörg
og Breiðablik í sætinu fyrir neðan.
Næst mæta Snæfellskonur Fjölni í
Stykkishólmi í kvöld kl. 18:15.
arg
Í leik Skallagríms og Fjölnis á laugardaginn. Ljósm. Skallagrímur
Ekki góð vika hjá
Skallagrímskonum
Naumt tap Skallagríms á Flúðum
en öruggur sigur í Borgarnesi
Úr leik Snæfells og Breiðabliks á laugardaginn. Ljósm. sá
Valur of stór biti en Blikar ekki
Fótboltamót í frosti og roki
Sigrún fer með lands-
liðinu til Slóveníu