Skessuhorn - 03.02.2021, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 20212
Nú er fyrsta mánuði ársins lokið og
hvarf hann hratt og örugglega. Þá
eru aðeins ellefu mánuðir eftir og
ekki seinna vænna en að hefjast
handa við að ná þeim markmiðum
sem sett voru fyrir árið. Tíminn líð-
ur nefnilega hratt og áður en við
vitum af verður komið haust og
þá er ekki gott að eiga öll mark-
miðin eftir.
Á morgun og föstudag er spáð
suðaustan 10-18 m/s en hægari
vindi austanlands. Víða er spáð lít-
ilsháttar éljum og líkur eru á snjó-
komu á Vesturlandi en yfirleitt
bjart veður á Norður- og Norð-
austurlandi. Frost 0-8 stig en frost-
laust syðst. Á laugardag og sunnu-
dag er útlit fyrir austlæga átt og
dálítil él sunnan- og austantil en
léttskýjað fyrir vestan. Hiti breytist
lítið. Á mánudag er spáð norðaust-
anátt með dálitlum éljum og kóln-
andi veðri.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hvort alltaf
ætti að segja satt, undantekning-
arlaust. Hvít lygi getur verið nauð-
synleg að mati 43% svarenda, 29%
segja að alltaf skuli segja satt, 18%
segja að betra sé að þegja en að
segja ósatt og 10% segja enga
þörf á því að segja alltaf satt. Þar
höfum við það
Í næstu viku er spurt:
Ertu háður einhverju?
Leifur Finnbogason umsjónarmað-
ur háskólagáttar á ensku er með-
al viðmælenda í Skessuhorni í dag.
Hann ásamt samstarfsfólki sínu
tókst á skömmum tíma að sann-
færa fjörutíu manns, útlendinga
búsetta hér á landi, um kosti þess
að skrá sig til náms á tímum sem
atvinnuleysi í þeim hópi er mikið.
Leifur er Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Samþykkja fær-
anlegar leikskóla-
stofur
BORGARNES: Á fundi
byggðarráðs borgarbyggðar
síðastliðinn fimmtudag var m.a.
rætt um viðbrögð við biðlistum
eftir leikskólaplássum í borg-
arnesi. Tillaga sviðsstjóra fjöl-
skyldusviðs felur í sér að keypt-
ar verði færanlegar kennslustof-
ur við Ugluklett til að bregð-
ast við ástandinu. „byggðarráð
felur sveitarstjóra að ganga til
samninga um kaup á færanleg-
um kennslustofum. Málið verði
lagt fyrir byggðarráð að nýju
á næsta fundi þess, þegar fyrir
liggja tölulegar forsendur vegna
kaupa og uppsetningu kennslu-
stofa,“ segir í bókun frá fundi
byggðarráðs. -mm
Hrossahólf víða
orðin vatnslaus
LANDIÐ: Vegna viðvarandi
frostatíðar eru hólf þar sem úti-
gangshross ganga nú víða orðin
vatnslaus og ekki breytinga að
vænta á næstu dögum. Matvæla-
stofnun vekur athygli á skyld-
um eigenda og umráðamanna
hrossa að sjá til þess að útigangi
sé séð fyrir aðgangi að vatni eða
snjó til að tryggja heilsu þeirra
og velferð. -mm
Nokkur brot í
sömu andrá
AKRANES: Ökumaður sem
lögregla stöðvaði við eftirlit í
vikunni sem leið reyndist und-
ir áhrifum áfengis og fíkni-
efna, sviptur ökuréttindum og á
stolnum bíl. Ökumaðurinn var
handtekinn og þegar komið var
á lögreglustöð reyndist bíllinn
vera á stolnum númerum. Þá
fundust einnig númeraplötur
af öðrum bíl í umræddum bíl.
Við athugun reyndist ökumað-
ur ekki hafa stolið bílnum held-
ur fengið hann lánaðan hjá öðr-
um aðila en sá hafði hinsvegar
stolið bílnum og skipt um núm-
eraplötur á honum. -frg
Nýtt tækifæri
Leita að áhugasömu fólki í tengslamarkaðsetningu
til að kynna og selja heimsklassa 100% hreinar
náttúruvörur sem standa fyrir sínu. Þær koma
frá virtu alþjóða fyrirtæki. Tekjumöguleikarnir eru
árangurstengdir og engin takmörk sett, einungis
viðleitni þín sker úr um það. Hafir þú áhuga hvort
sem er til eigin nota eða til kynningar vinsam-
legast hafið samband.
asta.synergyworldwide.com
Sími: 695-0452
Ásta Tómasdóttir
Netöryggiskeppni Íslands hófst
á mánudaginn með forkeppni á
netinu sem stendur til 15. febrú-
ar. Keppnin er nú haldin í annað
sinn en sú fyrsta fór fram í Hörpu
Í fréttatilkynningu breiðafjarðar-
nefndar, frá 26. janúar síðastliðn-
um og birtist í Skessuhorni í síð-
ustu viku, kemur fram að af um-
sögn Stykkishólmsbæjar við skýrslu
nefndarinnar um framtíð breiða-
fjarðar megi ráða að sveitarfélagið
„sé ekki tilbúið í samstarf um frek-
ari verndun,“ eins og það er orð-
að. Stykkishólmsbær sendi sama
dag frá sér tilkynningu þar sem
þetta orðalag breiðafjarðarnefnd-
ar er leiðrétt og útskýrt af hverju:
„Framangreind fullyrðing breiða-
fjarðarnefndar, um að Stykkis-
hólmsbær sé ekki tilbúinn í samstarf
um verndun, er túlkun breiðafjarð-
arnefndar á umsögn Stykkishólms-
bæjar. Ekki er um að ræða afstöðu
Stykkishólmsbæjar, enda kemur það
ekki fram í umsögn Stykkishólms-
bæjar að sveitarfélagið sé ekki til-
búið í samstarf um verndun. Hvað
þá að sveitarfélagið sé ekki tilbúið í
samstarf um hina fjölbreyttu vernd-
un breiðafjarðar, hvort sem litið er
til verndar á landslagi, einstökum
jarðmyndunum og lífríki eða varð-
veislu menningarsögulegra minja.
Umrædd umsögn Stykkishólms-
bæjar snýr einungis að fyrirliggj-
andi tillögum nefndarinnar og rök-
um nefndarinnar fyrir þeim,“ seg-
ir í tilkynningu sem Jakob björg-
vin Jakobsson bæjarstjóri Stykkis-
hólmsbæjar undirritar.
mm
Keppni hafin í netöryggi
í febrúar 2020. Netöryggiskeppn-
inni lýkur með landskeppni í mars
en þar verður keppt um þátttöku-
rétt í Netöryggiskeppni Evrópu,
European Cyber Security Chal-
lenge (ESCS), sem fer fram í Prag í
lok september á þessu ári.
Markmið keppninnar er að vekja
áhuga ungs fólks á netöryggi og
hvetja það til að mennta sig á því
sviði og gera netöryggi að atvinnu
sinni. Þrátt fyrir mikilvægi netör-
yggis skortir enn fleira hæfileikaríkt
fólk til að takast á við þær áskoran-
ir sem því fylgja. Þess vegna setti
Netöryggisstofnun Evrópu, EN-
ISA, á laggirnar Netöryggiskeppni
Evrópu og Evrópuþjóðir halda síð-
an eigin landskeppnir.
Í keppninni leysa keppendur
gagnvirk verkefni, sem öll tengjast
netöryggi, og mörg hver líkja eftir
raunverulegum öryggisgöllum sem
upp hafa komið í gegnum tíðina.
Verkefnin reyna jafnt á skapandi
hugsun sem og rökhugsun, en lögð
er sérstök áhersla á að framsetning
efnisins sé skemmtileg.
Netöryggiskeppni Íslands fer
fram í tveimur hlutum. Tveggja
vikna forkeppni fer fram á netinu
1.-15. febrúar og er opin öllum.
Þeir keppendur sem standa sig best
í forkeppninni, öðlast þátttökurétt
í landskeppni, sem haldin verður í
mars. Markmið landskeppninnar
er að velja tíu manna lið til að taka
þátt í Netöryggiskeppni Evrópu
(ESCS) fyrir hönd Íslands. Sam-
kvæmt reglum ESCS verða kepp-
endur að vera á bilinu 14-25 ára
(fædd á árunum 1996 til og með
2007). Landskeppnin verður haldin
helgina 20.-21. mars. Unnið er að
því að velja heppilegt húsnæði til að
halda keppnina þar sem hægt verð-
ur að tryggja sóttvarnir og viðeig-
andi fjarlægð á milli keppenda.
Netöryggiskeppnin er haldin að
frumkvæði samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytisins og í sam-
vinnu við Menntamálastofnun og
fyrirtækið Syndis, sem hefur um-
sjón með framkvæmd keppninnar.
mm
Stykkishólmsbær leiðréttir frétta-
tilkynningu Breiðafjarðarnefndar