Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 20216 Tekinn á 131 km hraða VESTURLAND: Lög- reglumenn í vegaeftirliti stöðvuðu för ökumanns síð- astliðinn miðvikudag. Hann mældist á 131 kílómetra hraða og var sektaður um 120 þúsund krónur. -frg Hestakona féll á bíl AKRANES: Á föstudag barst lögreglu tilkynning um konu um sjötugt sem fallið hefði af hestbaki á bíl í hesthúsahverfinu Æðar- odda á Akranesi. Ökumaður sem var á leið að sínu hest- húsi heyrði dynk og fann síð- an liggjandi konu við bílinn. Konan var með áverka á fæti og var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi. bíllinn var nokkuð dældaður en ekki er grunur um ógætilegan akstur. -frg Margir með slökkt afturljós VESTURLAND: Að sögn lögreglu á Vesturlandi er mjög algengt að ökumenn gæti ekki að því að afturljós bifreiða séu kveikt heldur aki aðeins með dagljósabúnað. Í mörgum nýlegum bifreið- um er búnaði þannig hátt- að að ekki kviknar sjálfkrafa á afturljósunum. Þetta get- ur verið stórvarasamt þegar skyggni er lélegt og skapað hættu á aftanáakstri. Sektin fyrir slíkt brot nemur um 20 þúsund krónum. -frg Veittist að öðr- um með exi AKRANES: Aðfararnótt laugardags barst Neyðarlínu tilkynning um mann sem hefði veist að öðrum manni með exi. Lögregla hóf leit að manninum og fann hann við hús þar sem búið var að brjóta rúðu í útidyrahurð. Ekki þótti ástæða til þess að handtaka manninn en hann var fluttur til aðhlynning- ar á sjúkrahúsið á Akranesi. Í framhaldinu var honum boðin gisting á lögreglustöð sem hann þáði. -frg Á öðru hundr- aðinu með kerru AKRANES: Að morgni sunnudags stöðvuðu lög- reglumenn för ökumanns með kerru í eftirdragi. Reyndist hann hafa ekið á 117 kílómetra hraða auk þess sem kerran var óskráð. Hann var sektaður m 96 þúsund krónur fyrir brotið. -frg Fiskeldi 5% af vöruútflutningi LANDIÐ: Þrátt fyrir að fisk- eldi hafi ekki farið varhluta af því ástandi sem uppi var í heimsbú- skapnum í fyrra, náði atvinnu- greinin að framleiða meira og afla meiri gjaldeyristekna en hún hefur nokkurn tímann áður gert. Í samantekt Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi kemur fram að fiskeldi var ein fárra útflutn- ingsgreina sem var í vexti á árinu 2020 og hefur vægi greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbús- ins aldrei verið meira. útflutn- ingsverðmæti eldisafurða var um 11% af útflutningsverðmætum sjávarafurða á árinu og tæp 5% sé tekið mið af verðmæti vöru- útflutnings í heild. „Er ljóst að hér er orðinn til öflugur grunn- atvinnuvegur, þó fiskeldi eigi sér vissulega lengri sögu en aðeins nokkur ár aftur í tímann,“ segir í frétt SFS. -mm Frumvarp til stuðnings litlum brugghúsum LANDIÐ: Þórarinn Ingi Péturs- son og fleiri þingmenn Framsókn- arflokks hafa lagt fram frumvarp á þingi er snertir smásölu og afslátt af áfengisgjöldum til stuðnings smærri innlendum áfengisfram- leiðendum. Helsta nýjungin sem kemur fram í frumvarpinu snertir heimild til smásölu á framleiðslu- stað smærri áfengisframleiðenda, þ.e. framleiðendur á öli og sterku áfengi, sem og afslættur af áfeng- isgjöldum. „Markmið frumvarps- ins er að auka stuðning til smærri innlenda áfengisframleiðenda og auka samkeppnishæfni þeirra, en mikil gróska hefur verið í grein- inni undanfarin ár. Þá sérstak- lega á landsbyggðinni. Einnig er frumvarpinu ætlað að stuðla að frekari atvinnutækifærum t.a.m. innan ferðaþjónustunnar,“ segir í tilkynningu frá málshefjendum. -mm Línuskipið Jóhanna Gísladóttir GK hafði stutt stopp í Ólafsvík síð- astliðinn miðvikudag þar sem skip- ið hafði fengið veiðarfæri í skrúf- una. Komu kafarar að sunnan með búnað til að skera úr skrúfunni. Að sögn Sigurðar Sveins Guðmunds- sonar hafnarvarðar tók verkið ekki langan tíma og hélt Jóhanna strax til veiða að nýju á breiðafirði. af Arkitektastofan Studio Granda hlaut í síðustu viku Hönnunarverðlaun Ís- lands 2020 fyrir hönnun Dranga á Skógarströnd á Snæfellsnesi. Á bæn- um hefur eldri útihúsum verið breytt í gistiheimili þaðan sem ægifagurt út- sýni er yfir breiðafjörð. Það var Þór- dís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðmála, nýsköpunar og iðnaðar sem afhenti verðlaunin og var sýnt frá at- höfninni í streymi. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Drangar séu metnaðarfullt hönnunar- verkefni og afar vel heppnuð birting- armynd aðkallandi viðfangsefnis arki- tekta í nútíma samhengi, endurhugs- un og endurnýting gamalla bygginga. „Hér er sérstaklega vel útfærð breyt- ing á gömlu sveitabýli og útihúsum í gistihús fyrir ferðamenn. Veðraðar byggingarnar fá að njóta sín og halda útlitslegu yfirbragði með sterkri vís- un í sögu og samhengi, en um leið er heildarmynd staðarins styrkt og efld.“ Einnig segir að verkið sé mik- ilvægt fordæmi og viðmið í ljósi vax- andi fjölda bygginga, ekki síst á lands- byggðinni, sem kalli á endurskilgrein- ingu og endurbyggingu vegna aldurs og annars konar nýtingar. Þess má einnig geta að Drangar Country Guesthouse fær 9,7 í ein- kunn á bókunarsíðunni booking.com í 104 umsögnum gesta. mm/ Ljósm. Drangar Country Gu- esthouse. Fékk í skrúfuna við veiðar á Breiðafirði Hönnunarverðlaun fyrir Dranga á Snæfellsnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.