Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202114
Slysavarnafélagið Landsbjörg hef-
ur auglýst útboð á þremur nýj-
um björgunarskipum. útboðið er
stærsta einstaka fjármögnunarverk-
efni sem Landsbjörg hefur ráðist í.
Fyrirhugað er að skipin verði tekin
í notkun fyrir árslok 2023. björg-
unarskipin þrjú, sem nú hafa ver-
ið boðin út, koma í stað eldri skipa
Landsbjargar en samtökin eiga alls
þrettán björgunarskip. Flest þeirra
eru komin vel til ára sinna en elsta
skipið var smíðað 1978. björgunar-
skip Landsbjargar eru mikilvægur
hlekkur í þéttu öryggisneti björg-
unarsveitanna. Þau eru mönnuð
sjálfboðaliðum og sinna að jafnaði á
bilinu 70 til 110 útköllum árlega.
útboðið er fyrsti áfanginn í end-
urnýjun skipanna. Það er haldið á
grundvelli samkomulags við dóms-
málaráðuneytið um að ríkið fjár-
magni hluta verkefnisins en for-
svarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa
undirritað fyrir hönd ríkissjóðs
samning um endurnýjun flotans
næstu tíu árin.
útboðið er auglýst á Evrópska
efnahagssvæðinu en gert er ráð fyr-
ir að smíði á fyrsta skipinu hefjist
fyrir haustið.
mm
Í febrúarhefti blaðsins QST í
bandaríkjunum, sem er félagsblað
amerískra radíóamatöra, er áhuga-
verð frásögn sem tengist morsi.
Georg Magnússon lesandi sendi
Skessuhorni úrklippuna. Þar seg-
ir frá því að Thomas Wayne King,
sem er radíó amatör og býr í Salon
Springs í Wisconsin í USA ásamt
konu sinni Debru, heldur sex ís-
lenskar kindur. Thomas hefur kennt
tveimur kindanna mors táknin G
og T (G er löng-löng-stutt og T er
stutt) og notar það til að kalla hóp-
inn í mat eða annað dekur heima á
bænum. Nöfn þessara bráðgáfuðu
kinda eru að vísu Thorgeir og Ari,
en af myndinni að dæma eru þeir
báðir rosknar kindur þannig að
eitthvað hafa kynjaheitin skolast til.
Ekki fylgir sögunni hvar þau Tho-
mas og Debra fengu íslensku kind-
urnar sínar.
mm
búið er að tengja að nýju
saman vegslóðann yfir bugs-
gilið í Snæfellsbæ. Það var
Hesteigendafélagið Hring-
ur í Ólafsvík sem stóð fyr-
ir framkvæmdinni. Sprengt
var grjót og fyllt að tveim-
ur rörum á þeim stað sem
brú var áður, en hún hrundi
fyrir nokkrum árum. Styrk-
ur fékkst frá reiðveganefnd
hestamannafélagsins Snæ-
fellings og fleirum til verks-
ins. Tilgangurinn með þess-
ari framkvæmd var að bæta
aðstöðu hestamanna til út-
reiða sem og allra annarra
sem eiga leið þarna um. þa
Eldur kviknaði í bifreið við Esju-
velli á Akranesi á níunda tímanum
á föstudagsmorgun. Þar kviknaði í
vélarrúmi í eldri bíl sem stóð í lausa-
gangi. bíllin er sennilega ónýtur en
hann ku vera búinn að þjóna eiganda
sínum vel og ekinn á þriðja hundrað
þúsund kílómetra. Talsverður við-
búnaður var á staðnum en nokkuð
þröngt var fyrir viðbragðsaðila eins
og sést á meðfylgjandi mynd.
Í samtali við eiganda bílsins,
Gunnar Sigurgeir Ragnarsson,
sagðist hann vera með sorg í hjarta
enda hefði bíllinn, sem er Volkswa-
gen Golf árgerð 2005, flutt hann yfir
150 þúsund kílómetra eða sem svar-
ar nærri þremur hringjum umhverf-
is jörðina. Dóttir Gunnars, Guðlaug
Sara, ætlaði í skólann á bílnum en
þegar hún kom að honum var eldur-
inn byrjaður að loga undir vélarhlíf-
inni. Erfiðlega gekk fyrir slökkvi-
lið að komast að eldinum og þurfti
að beita öflugum tækjum til þess að
spenna upp vélarhlífina.
Að sögn Gunnars var næsta mál á
dagskrá að kaupa sér öflugt slökkvi-
tæki í hinn heimilisbílinn enda gera
svona atburðir sjaldan boð á undan
sér.
frg
bókakaffið í Ármúla 42 í Reykjavík
leggur nú sérstaka áherslu á ætt-
fræðibækur. „Við erum með lager-
sölu á fjölmörgum vinsælum niðja-
tölum og auk þess mikið úrval not-
aðra ættfræðibóka og fágætra smá-
rita um ættfræði. Alltaf er eitthvað
nýtt á boðstólum í hverri viku og
hér gildir hið fornkveðna að fyrstur
kemur, fyrstur fær. Ættfræðimark-
aðurinn stendur út febrúar. Sann-
gjarnt verð og notalegt andrúms-
loft. Alltaf heitt á könnunni,“ segir
í tilkynningu.
bókakaffið festi nýlega kaup á
bókalager Ættfræðiþjónustunnar
en þar er meðal annars að finna
fjölmörg þeirra ættfræðirita sem
komu út á seinasta fjórðungi 20. al-
dar. Þá hafa smærri söfn ættfræðibó-
ka borist fyrirtækinu með öðrum
bókasöfnum. Í bókakaffinu í Ármú-
la er einnig gott úrval af íslenskum
ævisögum, þjóðlegum fróðleik, sa-
gnfræði og fleiru. bókakaffið selur
jöfnum höndum nýjar og notaðar
bækur. Auk bókanna sem gestir
finna í hillum hefur verslunin yfir
að ráða stórum bókalager notaðra
bóka austanfjalls en bókakaffið í
Ármúla er hluti af rekstri bókakaff-
isins á Selfossi.
Meðal þeirra ættartölurita sem
bjóðast nú á hagstæðu verði í lagersölu
má nefna Auðsholtsætt, bollagarðaætt,
briemsætt, Deildartunguætt, Engey-
jarætt, Galtarætt, Gunnhildargerðisætt,
Hallbjarnarætt, Hreiðarsstaðakotsætt,
Húsatóftaætt, Knudsensætt, Lau-
gardalsætt, Longætt, Lækjarbotnaætt,
Ófeigsfjarðarætt, Pálsætt undan Jökli,
Reykjaætt, Róðhólsætt, Zoëgaætt og
að auki margskonar smáprent og stét-
tatöl.
bókakaffið í Ármúla 42 er opið frá
11-18 alla virka daga og frá 11-16 á
laugardögum. Lokað á sunnudögum.
mm
Bjóða út smíði á þremur
nýjum björgunarskipum
Björgunarskipið Björg, sem Lífsbjörg í Snæfellsbæ gerir út, kemur hér að landi
með vélarvana smábát. Ljósm. úr safni.
Bráðgáfaðar
íslenskar kindur í
Westurheimi
Bugsgilið að nýju fært þurrum fótum
Kviknaði í bíl á Akranesi
Viðbragðsaðilar að störfum á Esjuvöllum.
Guðlaug Sara Gunnarsdóttir og faðir hennar Gunnar Sigurgeir Ragnarsson
sorgmædd yfir afdrifum bílsins.
Ættfræðibækur á bókamarkaði