Skessuhorn - 03.02.2021, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202112
Fréttaritari Skessuhorns tók stöð-
una á hafnarframkvæmdum
við Grundarfjarðarhöfn síðasta
fimmtudag. Veður var með besta
móti þennan dag, logn og kalt.
Friðrik Tryggvason eigandi Al-
mennu umhverfisþjónustunnar og
hans menn voru kátir við endann á
bryggjunni og það voru starfsmenn
Vélsmiðju Grundarfjarðar sömu-
leiðis, en þeir voru að sjóða stigana
á bryggjuna. tfk
Fréttir, viðtöl og aðrir textar sem
birst hafa í Skessuhorni og öðrum
blöðum hafa ekki endanlega lok-
ið tilgangi sínum þó að blöðin hafi
verið gefin út. Utan skylduskila á
Landsbókasafnið er textum sömu-
leiðis safnað í Risamálheildina svo-
kölluðu, sem er ein af málheild-
um Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum. Textarnir eru
síðan meðhöndlaðir og gefnir út.
Nýjasta útgáfa Risamálheildarinn-
ar inniheldur um 1.390 milljón les-
málsorð á íslensku. Hluti þeirra eru
opinberir textar, svo sem Alþingis-
ræður frá 1907, lagatextar, dómar
og fleira slíkt, en einnig inniheldur
hún stór textasöfn frá ýmsum fjöl-
miðlum landsins, Skessuhorni þar
á meðal.
Risamálheildin er ekki síst hugs-
uð til notkunar í máltækniverk-
efnum. Unnið er eftir sérstakri
máltækniáætlun fyrir íslensku, en
markmið hennar er að tryggja að
hægt sé að nota íslensku sem sam-
skiptamáta í tækniheiminum. Til
þess þurfa maður og tölva að geta
átt í samskiptum á íslensku og til að
svo megi verða þarf að kenna tölv-
unum ekki aðeins að lesa og skrifa,
heldur einnig að skilja og tala málið.
Þegar sá dagur rennur upp að hægt
verður að eiga alfarið í samskiptum
við tölvur og tæki á íslensku munu
textarnir úr Skessuhorni hafa verið
lóð á vogarskál þeirrar vegferðar.
Máltæknifyrirtækið Grammatek
á Akranesi annaðist söfnun text-
anna frá Skessuhorni fyrir Árna-
stofnun að þessu sinni. Það var
Kristján Gauti Karlsson, starfs-
maður Grammateks, sem tók að
sér að safna textunum síðastliðinn
föstudag. Að þessu sinni var textum
frá undanförnum rúmlega fjórum
árum safnað, eða allt frá því söfn-
un fór síðast fram. Þess má geta að
Kristján Gauti er einmitt fyrrver-
andi blaðamaður Skessuhorns og
því voru hæg heimatökin að fá hann
til verksins. mm
Séð út höfnina þar sem framkvæmdir eru á fullu.
Góður skriður á
hafnarframkvæmdum
Þybburnar liggja á höfnina tilbúnar til að vera hengdar á hornið á höfninni.
Þessar þybbur eru sérstaklega fyrir stórskipahafnir enda mikið um skemmti-
ferðaskip í venjulegu árferði.
Friðrik Tryggvason verktaki og Eyþór Garðarsson hafnarvörður fara hér yfir
málin.
Þeir Aðalgeir Vignisson og Marinó Ingi Eyþórsson starfsmenn Almennu um-
hverfisþjónustunnar hanga hér í vinnunni.
Aðalgeir og Marinó festa þybburnar á hafnarkantinn.
Kristján Gauti Karlsson safnar hér saman öllum textum sem mynda fréttasafn
Skessuhorns.
Skessuhorn notað til að kenna
tölvum íslensku
Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms
fimmtudaginn 28. janúar var tekið
til umsagnar frumvarp um breyt-
ingar á lögum um veiðar í fiskveiði-
landhelgi Íslands og lögum um
stjórn fiskveiða – um veiðistjórn
grásleppu, sandkola og hryggleys-
ingja. Í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir kvóta á hvern grásleppubát í stað
þess að hver bátur hafi heimild til
að stunda veiðar í ákveðinn fjölda
daga. Hverjum báti yrði sett afla-
hluteild miðað við veiðireynslu af
þremur bestu veiðitímabilum af sex,
frá árinu 2014-2019 og því leyfi sem
er skráð á þann bát. Hámarksafla-
hlutdeild myndi vera 2% af heild-
arafla og ráðherra hefur heimild til
að undanskilja grásleppu frá ákvæði
um veiðiskyldu með reglugerð ef
markaðsaðstæður réttlæti ekki að
haldið sé til veiða. Þá verði ráð-
herra heimilt að ákveða staðbund-
in veiðisvæði við grásleppuveiðar ef
aðstæður verði þannig að æskilegt
sé að svæðaskipta veiðunum.
Miklir hagsmunir
í Hólminum
bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar
segist styðja efnislega fyrirliggjandi
frumvarp sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra í umsögn sem
hún sendi inn. „bæjarstjórn tekur
undir að með frumvarpinu sé ver-
ið að stuðla að verndun og hag-
kvæmri nýtingu nytjastofna Íslands
og tryggja þannig trausta atvinnu
og byggð í landinu,“ segir í fund-
argerð bæjarstjórnar Stykkishólms-
bæjar. Stykkishólmshöfn hefur um
árabil verið einn helst löndunar-
staður grásleppu á landinu. Árið
2019 var um 30% af heildarafla
grásleppu veiddur við innanverðan
breiðafjörð. „Hlutfall af grásleppu
í lönduðum heildarafla í Stykkis-
hólmshöfn nam 35% árið 2019,“
segir í fundargerðinni. Í Stykkis-
hólmi eru tvær hrognkelsavinnslur
og má áætla að um 100 störf teng-
ist þeirri atvinnugrein í bæjarfélag-
inu í kringum hverja vertíð. Það er
því ljóst að að íbúar og hagaðilar í
Stykkishólmi hafa mikla hagsmuni
af framtíð hrognkelsaveiða.
Núverandi fyrirkomulag
ófyrirsjáanlegt
bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar tel-
ur núverandi fyrirkomulag veiði-
stjórnunar, þar sem ákveðin daga-
fjöldi er til veiða og/eða að veiðar
séu stöðvaðar þegar afli er kom-
inn yfir ráðlagðan hámarksafla
samkvæmt ráðgjöf Hafrannsókn-
arstofnunar, geti ekki tryggt sam-
félagslega, líffræðilega eða efna-
hagslega sjálfbærni til framtíðar. Þá
segir bæjarstjórn að slík stjórnun
sé hamlandi fyrir nýsköpun og ný-
liðun í greininni og bendir á að vel
á annað hundrað bátar hafa hætt
veiðum á grásleppu á síðustu árum.
„Með óbreyttu kerfi og áframhald-
andi þróun, sem ekkert bendir til
að muni breytast, munu einung-
is nokkrir tugir bátar stunda veiðar
eftir 10-15 ár. Þessi þróun er ekki
síst vegna þess hversu núverandi
sóknartakmörkun er ómarkviss,
skortir fyrirsjáanleika og hefur nei-
kvæð áhrif á rekstrarumhverfi sjó-
manna og vinnslu þegar til lengri
tíma er litið,“ segir í fungargerð-
inni.
„Á þeim grunni styður bæjar-
stjórn Stykkishólmsbæjar hins veg-
ar hlutdeildarsetningu nytjastofna,
hvað grásleppu varðar, eins og stefnt
er að í frumvarpinu og telur að slík
stjórnun muni ná framangreindum
markmiðum betur og tryggi ábyrg-
ari, hagkvæmari og fyrirsjáanlegri
veiðar og meiri sveigjanleika fyrir
það sem stunda veiðarnar,“ segir
bæjarstjórn Stykkishólms. bæjar-
stjórn segist viss um að hlutdeild-
arsetning geti tryggt ábyrgari fisk-
veiðistjórn, hættuminni sjósókn,
betri nýtingu veiðarfæra og að
veiðar falli betur að umhverfis- og
náttúruverndarsjónarmiðum.
arg/ Ljósm. úr safni
Styðja efnislega breytingar á
lögum um grásleppuveiðar