Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202118
Á morgun, fimmtudaginn 4. febrú-
ar, stendur Kraftur, stuðningsfélag
fyrir ungt fólk sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandend-
ur þess, fyrir söfnunarþætti í op-
inni dagskrá á Sjónvarpi Símans.
Félag þetta hefur reynst ungu fólki
og aðstandendum þess afar dýr-
mætt þegar veikindi koma upp.
Af þessu tilefni ræðir Skessuhorn
við ungan Skagamann sem glímt
hefur við erfið veikindi. Í sumar
verða sex ár liðin síðan krabbamein
greindist í Inga Magnúsi Ómars-
syni. Það var 31. júlí árið 2015 sem
hann fór að finna fyrir breytingum
á eista. Hann hitti lækni á sjúkra-
húsinu á Akranesi sem skoðaði
hann og sendi hann í framhaldi til
nánari skoðunar á Landspítalanum.
Þar var hann ómskoðaður og áður
en endanlegar niðurstöður þeirr-
ar skoðunar lágu fyrir var honum
tjáð það það væru yfirgnæfandi lík-
ur á að þetta væri krabbamein. Ingi
Magnús deilir reynslu sinni í viðtali
við Skessuhorn.
Aðgerð og lyfjameðferð
Þegar niðurstöður úr rannsóknum
á Inga Magnúsi lágu fyrir örfáum
dögum síðar sumarið 2015 var hann
strax sendur í aðgerð þar sem ann-
að eistað var fjarlægt. Að aðgerð-
inni lokinni fékk hann þær frétt-
ir að grunur léki á að krabbamein-
ið hefði dreift sér. Niðurstöður úr
rannsóknum á sýnum sýndu síð-
an að krabbameinið sem var fjórða
stigs hafði dreift sér bæði í lungun
og eitla og stefndi greinilega á heil-
ann. Ingi var því settur strax í mjög
sterka lyfjagjöf þrátt fyrir að sárin
eftir aðgerðina væru langt frá því
að vera gróin. „Ungir karlar eiga
að þola allt,“ segir Ingi. Lyfjameð-
ferðin skilaði ekki þeim árangri sem
til var ætlasta heldur; „...var eins og
vítamínsprauta fyrir krabbameinið
og það stækkaði bara,“ rifjar hann
upp.
Þar sem lyfjameðferðin bældi
ónæmiskerfið þá leiddi hún til þess
að ígerð hljóp í skurðsárin. Að lok-
inni níu vikna lyfjameðferð kom í
ljós að krabbameinið hefur bara
stækkað. Ingi segist á þessum tíma
hafa verið í hálfgerðri þoku, með-
ferðin tók mjög á líkamlega, t.d.
hafi neglur og tennur verið farnar
að losna, og hann verið farinn að
búa sig undir að kveðja svona innst
inni.
Ingi hitti á þessum tíma Örvar
Gunnarsson, sérfræðing í krabba-
meinslækningum sem var nýkom-
inn heim úr sérnámi í boston þar
sem hann lagði sérstaka áherslu á
meðferð krabbameina í þvagfær-
um. Örvar sagði Inga að hann væri
„odd case“ þar sem lyfin virkuðu
ekki á krabbameinið og leist í raun
ekki á blikuna. Eftir að hafa feng-
ið álit Tómasar Guðbjartssonar,
Lækna-Tómasar, varð niðurstaðan
engu að síður sú að krabbameinið
væri skurðtækt.
Í aðgerð á
báðum lungum
Í lok árs 2015 fór Ingi síðan í fyrri
aðgerðina þar sem krabbameinið
var skorið burt úr hægra lunganu
og í byrjun árs 2016 fékk vinstra
lungað sömu meðferð. Ekki var tal-
ið hættandi á að taka bæði lung-
un í einu. Fella þurfti lungað sam-
an til þess að framkvæma aðgerðina
og eftir aðgerðina kom upp vanda-
mál þegar hægra lungað fór að
leka. Ekki var hægt að hefja lyfja-
meðferð strax eftir aðgerð því bíða
þurfti eftir að blóðgildi færu upp
og yrðu ásættanleg. Vandamál sem
komu upp, svo sem lek lungu og
fleira, gerðu það að verkum að Ingi
var algerlega búinn á líkama og sál,
næpuhvítur og ómerkilegustu hlut-
ir fóru í taugarnar á honum. „Ég
var viðkvæmur og þoldi lítið áreiti,“
rifjar hann upp.
„Eftir aðgerðina fannst mér ég
endurfæðast. Ég var farinn að halda
að þetta væri búið en þarna vaknar
maður aftur til lífsins og hlutirnir
fara að gerast,“ segir hann. Ingi út-
skrifaðist af sjúkrahúsinu 10. janúar
2016 og í fyrstu var hann það mátt-
farinn að hann átti hreinlega í erf-
iðleikum með að labba á klósettið.
Smám saman styrktist hann og fór
þá í Ljósið sem er endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem
hefur fengið krabbamein og að-
standendur þess. Ingi segist hins
vegar ekki hafa passað alveg þar
inn. Þar hitti hann sálfræðinga og
fór í göngutúra.
Bakslag eftir bílslys
Í byrjun apríl, eða strax eftir páskana
2016, átti Ingi síðan að hefja end-
urhæfingu á Reykjalundi. Örfá-
um dögum áður en endurhæfing-
in átti að hefjast var Ingi að skutla
syni sínum á íþróttaæfingu í borg-
arnesi. Færðin var frekar slæm,
hálka og skafrenningur. Þegar þeir
feðgar eru að nálgast Laxárbakka í
Hvalfjarðarsveit missti Ingi bílinn
út af veginum. bíllinn lenti tals-
vert utan vegar og þó að þeir feðg-
ar væru nokkuð lemstraðir voru
þeir óbrotnir. Það fór hins vegar að
blæða úr skurðunum á Inga eftir að-
gerðirnar og segir Ingi að við þetta
hafi hann færst til baka um mörg
skref í batanum. Slysið varð þess
valdandi að fresta þurfti endurhæf-
ingunni á Reykjalundi um nokkr-
ar vikur. Þegar hann kemst loks á
Reykjalund er hann enn mjög verkj-
aður eftir áföllin en á Reykjalundi
var hann tekinn af öllum verkjalyfj-
um. „Það var strembið,“ segir Ingi,
en þó gekk vel að byggja upp þol og
vöðva. Hann var svo á Reykjalundi
í fjórar vikur.
Kraftur er öðruvísi
en allt annað
Stuttu eftir að endurhæfingunni á
Reykjalundi lauk fór Ingi með fjöl-
skyldunni til Vestmannaeyja í frí.
Þar var á sama tíma viðburðurinn
Perlað af Krafti á vegum Krafts sem
er stuðningsfélag fyrir ungt fólk
sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur þess. Það er ein
helsta fjáröflunarleið Krafts, sala
perluarmbanda með áletruninni
„Lífið er núna“. Armböndin eru
eingöngu framleidd af sjálfboðalið-
um sem leggja félaginu lið með því
að bjóða fram krafta sína. Þar hitti
Ingi Huldu Hjálmarsdóttur fyrr-
verandi formann Krafts. Hún bauð
hann velkominn í Kraft og hvatti
hann til þess að koma í Kraft þegar
hann væri kominn heim.
Ingi ræðir um fyrstu kynni sín
af Krafti: „Þarna var í fyrsta skipti
tekið utan um mann af kunnáttu og
þekkingu og á heildstæðan hátt.“
Þarna segist hann einfaldlega hafa
fundið sig. „Þetta er öðruvísi en allt
annað. Þarna er manni tekið með
kostum og kynjum og þarna fannst
mér ég loks fara að mjakast eitt-
hvað upp á við.“ Ingi var á þessum
tíma búinn að vera hjá Ljósinu en:
„Ég var alltaf að hlaupa á vegg, að
sprengja mig og hreinlega fann mig
ekki þar. Í Krafti eru allir sem eru
að vinna þar tengdir krabbameini,
hafa sjálfir veikst eða aðstandendur
þeirra. Þar fann ég strax fyrir 100%
öryggi og lærði að taka eitthvað eitt
fyrir í einu. Þar lærir maður að jafn-
vægisstilla hugræna og líkamlega
getu. Maður lærir líka að taka bara
einn dag í einu. Kraftur er alltaf til
staðar fyrir þig og stendur við bak-
ið á þér.“
Áföll
Á sama tíma og þessi áföll dundu
yfir hrundi Sylvía Dröfn eiginkona
Inga niður enda kemur sjúkdóm-
urinn niður á allri fjölskyldunni.
„Kallinn á leið í gröfina og börnin
horfa á pabba sinn veslast upp. Hún
þurfti í rauninni á svipaðri aðstoð
og ég að halda. Þá fékk mamma
krabbamein 2018 og fósturpabbi
kransæðastíflu 2017,“ segir Ingi.
„Síðan misstum við fóstur, tvíbura,
árið 2017.“ Áföllin voru því orð-
in allnokkur hjá þessari fjölskyldu.
Þegar Ingi veiktist af krabbamein-
inu áttu hann og Sylvía Dröfn þrjú
börn sem í dag eru 13, 19 og 21 árs.
2019 eignuðust þau síðan dreng og
segist Ingi horfa björtum augum
til framtíðarinnar. Fyrir veikindin
hafði hann verið að læra húsasmíð-
ar og stefnir hann nú á að ljúka því
námi enda hafi hann mjög gaman
af smíðum og gleymi sér gjarnan
við þær.
Söfnunar og skemmti-
þáttur Krafts
Á morgun, fimmtudagskvöldið 4.
febrúar á alþjóðadegi gegn krabba-
meinum, verður Kraftur með söfn-
unar- og skemmtiþáttinn „Lífið er
núna“ í beinni útsendingu á Sjón-
varpi Símans, K100 og í netstreymi
á www.mbl.is. Þennan dag hefst
einnig Vetrarhátíð Reykjavíkur-
borgar og verður þátturinn hluti af
henni.
Kraftur hefur fengið landsþekkta
skemmtikrafta og tónlistarfólk í lið
með sér til að skemmta áhorfend-
um og verða það engin önnur en
GDRN, Valdimar, Ari Eldjárn og
Páll Óskar sem munu stíga á stokk.
Sóli Hólm og Sóley Kristjánsdótt-
ir verða kynnar kvöldsins og munu
þau einnig fá gott fólk í sófann til sín
til að spjalla um málefni ungs fólks
sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur þess.
frg
Ingi er búinn i aðgerðinni, er að skríða saman. Fjórar aðgerðir búnar og níu vikna
mjög strangur og erfiður lyfjakúr.
Kraftur er öðruvísi en allt annað
Tekið er utan um sjúklinginn af kunnáttu og þekkingu og á heildstæðan hátt
Ingi Magnús Ómarsson horfir björtum augum til framtíðar.
Ingi Magnús og Vinjar Rökkvi.
Ingi Magnús, Sylvía Dröfn, Vinjar
Rökkvi og Esjar Maron.