Skessuhorn - 03.02.2021, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202122
Á síðasta ári voru konur einung-
is ráðnar framkvæmdastjórar fyr-
irtækja hér á landi í fjórðungi til-
vika. Stórátak þarf til að markmið
Jafnvægisvogarinnar náist. Þetta er
meðal þess sem lesa má í greiningu
Creditinfo á ráðningum í fram-
kvæmdastjórastöður fyrirtækja hér
á landi síðustu ár. „Að óbreyttu nást
ekki markmið Jafnvægisvogarinnar
um að árið 2027 verða hlutfall á
milli kynja að minnsta kosti 40/60
í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á
Íslandi.“
Greiningin leiðir í ljós að á ný-
liðnu ári voru konur einungis ráðn-
ar sem framkvæmdastjórar í um
25% tilvika. Það er þó töluvert yfir
meðaltali síðustu fimm ára sem
er 20%. „Núna er staðan sú að sé
horft til virkra fyrirtækja eru kon-
ur framkvæmdastjórar í um 18%
þeirra, en einungis í um 13% fyr-
irtækja ef horft er á rúmlega 1.000
tekjuhæstu fyrirtækin.
Greiningin leiðir ýmislegt for-
vitnilegt í ljós, svo sem að líklegra
er að kona taki við starfi fram-
kvæmdastjóra hafi forveri hennar
í starfi einnig verið kona. Eins, ef
horft er til framkvæmdastjóraskipta
síðustu fimm ár, þá er kona líklegri
til að taka við stöðunni af karli í
fyrirtækjum í sérfræðivinnu (29%),
en til dæmis í fjármála-, vátrygg-
inga- og fasteignastarfsemi (18%).
Í ferðaþjónustu og afþreyingu er
hlutfallið 21%, 10% meðal fram-
leiðslufyrirtækja og einungis 3% í
landbúnaði, skógrækt og sjávarút-
vegi.
mm
Frá 15. janúar hafa
nemendur og starfs-
fólk í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi
verið að ganga til góðs
og stefna á að ganga,
hlaupa, hjóla og synda
4.000 kílómetra. Átak-
ið stendur til 15. febrú-
ar. Um er að ræða jafn
langa vegalengd og
er frá Akranesi til Te-
nerife. „Fyrst enginn
kemst til Tenerife þá
ætlum við í FVA að
taka höndum saman
og ganga vegalengd-
ina til Tene,“ segir í til-
kynningu frá skólan-
um. Markmið verkefn-
isins er að auka hreyf-
ingu og kolefnisjafna
ímyndaðar flugferðir
til Tenerife í leiðinni.
En öll áheit sem safn-
ast fyrir kílómetrana
renna óskert til Skóg-
ræktarfélags Akraness
og verða notuð til að
gróðursetja í nærum-
hverfi bæjarins. Eru því
allir hvattir til að heita
á nemendur og starfs-
fólk FVA með frjálsum
framlögum.
Áhugasamir geta
farið inn á vefsíðuna
www.kolvidur.is og
fundið þar reiknivél til
að reikna út kolefnis-
jöfnun.
arg
Undanfarnar tvær vikur hafa um
3,7 milljarðar króna verið greidd-
ir úr ríkissjóði í tekjufallsstyrki til
rekstraraðila sem orðið hafa fyr-
ir tekjufalli vegna heimsfaraldurs
kórónuveiru. Skatturinn fer með
framkvæmd úrræðisins en styrkirn-
ir sem þegar hafa verið greiddir út
renna til um 540 aðila. Tekjufalls-
styrkir nýtast fjölmörgum rekstrar-
aðilum sem hafa orðið fyrir veru-
legu tekjufalli vegna faraldursins og
er markmiðið að styðja þau fyrir-
tæki og einyrkja þar sem tekjufall er
meira en 40%.
Tugir þúsunda
nýtt úrræðin
Síðustu mánuði hafa á fjórða þús-
und rekstraraðilar og tugþúsund-
ir einstaklinga nýtt sér ýmis úr-
ræði stjórnvalda sem eru á annan
tug talsins – styrki, lán, gjaldfresti
og annan stuðning. Þannig hafa um
1.450 rekstraraðilar fengið lokun-
arstyrki fyrir rúmlega 1,8 milljarða
króna.
„Hjá Skattinum er unnið að því
að opna fyrir umsóknir um viðspyr-
nustyrki sem ætlað er að tryggja að
fyrirtæki geti viðhaldið nauðsyn-
legri lágmarksstarfsemi á meðan
áhrifa faraldursins gætir og tryggt
viðbúnað þegar úr rætist. Í fjármá-
la- og efnahagsráðuneytinu er enn
fremur til skoðunar að leggja til
breytingar á afborgunartíma stuðn-
ingslána.
Fjölmörg önnur úrræði hafa
boðist vegna áhrifa Covid-19. Þar
má nefna viðbótarlán, laun í sóttkví,
ráðningarstyrki, hlutabætur, styrki
til greiðslu launa á uppsagnarfres-
ti, tekjutengdar atvinnuleysisbætur
og frestun skattgreiðslna. Fjármá-
la- og efnahagsráðuneytið heldur
úti upplýsingasíðu um nýtingu úr-
ræðanna. Sömuleiðis má kynna
sér og sækja um opin úrræði á vef
Skattsins,“ segir í tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu.
mm
Ungmennafélag Grundarfjarðar
fékk á dögunum afhent húsnæði til
afnota fyrir nýstofnaða rafíþrótta-
deild félagins. Húsnæðið er í eigu
Grundarfjarðarbæjar og er stefnt á
að taka það í notkun á næstu vik-
um. Ungmennafélag Grundar-
fjarðar hóf vinnu við stofnun raf-
íþróttadeildar snemma á síðasta ári
og nú er sú vinna langt komin. búið
er að kaupa tölvubúnað, fá húsnæði
og halda kynningu fyrir foreldra.
Næstu skref eru að ganga frá ráðn-
ingu þjálfara. Einnig er búið að
ganga frá öflugri nettengingu í hús-
ið en hún kemur úr ljósleiðaranum
sem er í ráðhúsinu sem er staðsett
við hliðina á þessu húsnæði. Það
eru því spennandi tímar framundan
hjá ungmennum í Grundarfirði en
rafíþróttir eru orðnar vinsælar og
spretta rafíþróttadeildir víðsvegar
upp hjá íþróttafélögum landsins.
tfk
Fjölmargar atvinnugreinar glíma við tekjufall. Tónlistarfólk er í þeim hópi.
Tæpir fjórir milljarðar
í tekjufallsstyrki
Ganga til góðs í FVA
Gengið til
góðs í FVA.
Hérna eru fulltrúar UMFG ásamt bæjarráði Grundarfjarðarbæjar við afhendingu
húsnæðisins.
UMFG fær húsnæði
undir rafíþróttadeildina
Erum langt frá markmiði
um jafnara kynjahlutfall í
stjórnum fyrirtækja