Skessuhorn - 03.02.2021, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202130
Hver er besta uppfinning
sögunnar?
Spurning
vikunnar
(Spurt á netinu)
Sunna Rós Þorsteinsdóttir
Áttaviti.
Benedikt Jón Sigmundsson
Það hlýtur að vera úr smiðju Ni-
cola Tesla vinar míns en hann
var langt á undan sinni samtíð
og gerði fjölmargar uppgötvan-
ir sem urðu undirstaða annarr-
ar og þriðju iðnbyltingarinnar.
Nefna má hluti eins og tilraun-
ir með riðstraum, orkuflutning,
röntgen, útvarpsbylgjur, fjar-
stýringar og margt fleira.
Bjarki Þór Aðalsteinsson
Íbúðir.
Lísbet Sigurðardóttir
Ljósaperan.
Gunnar Jóhann Elísson
Ostaskeri. Góður til síns brúks
og ekki síður sem spartlsspaði.
Um næstsíðustu helgi hlupu ofur-
hlaupararnir Gunnar Viðar Gunn-
arsson og börkur Reykjalín brynj-
arsson 100 km á Varmárvellinum í
Mosfellsbæ til að safna fjárframlög-
um fyrir Píeta-samtökin. Hægt var
að hlaupa lengri eða skemmri spöl
með þeim félögum gegn gjaldi, eða
þá heita á þá og leggja inn peninga
hjá samtökunum. Söfnunin gekk
vonum framar, allmargir hlupu
með þeim nokkra hringi á vellinum
og í lok dags höfðu safnast samtals
rúmlega milljón krónur.
Gunnar og börkur eru báð-
ir reynsluboltar í lengri hlaupum.
Síðasta sumar lauk Gunnar t.a.m.
100 mílna (161 km) keppnishlaupi
á Íslandi fyrstur manna, eins og ít-
arlega var fjallað um í Skessuhorn-
inu á þeim tíma. Áður hafði hann
m.a. lokið 100 km hlaupi í bret-
landi og 90 km hlaupi í Svíþjóð,
svo eitthvað sé nefnt. börkur hefur
hins vegar keppt í nokkrum áfanga-
hlaupum erlendis, þar sem hlaupn-
ir eru t.d. 50 km á dag fimm daga
í röð. Síðasta sumar hljóp börkur
einmitt eitt slíkt hlaup á eigin veg-
um hérlendis, þar sem ekki viðraði
til utanferða. Dags daglega starfar
Gunnar sem húsasmiður í borgar-
nesi, þar sem hann er búsettur, og
börkur er verkfræðingur og starfar
einkum í Reykjavík og í uppsveitum
Suðurlands.
börkur átti hugmyndina að
styrktarhlaupinu á laugardaginn, en
hann hafði lengi velt fyrir sér mögu-
leikanum á að láta gott af sér leiða
við tómstundaiðkun sína. Píetasam-
tökin urðu svo fyrir valinu, en eins
og kunnugt er sinna samtökin for-
vörnum gegn sjálfsvígum og sjálfs-
skaða. Fjármunirnir sem söfnuðust
í hlaupinu verða m.a. nýttir til að
fjármagna viðtalsþjónustu samtak-
anna, en hægt er að hringja í síma
þeirra 552 2218 á hvaða tíma sólar-
hringsins sem er.
Veðrið lék ekki beinlínis við
hlaupafélagana á laugardaginn, þar
sem norðan strekkingur blés á þá
allan tímann og hitastigið var vel
undir núllinu. „Þetta var helvíti
kalt,“ eins og Gunnar orðaði það,
en svo bætti hann því við að veð-
ur væri bara hugarfar. Til að setja
hlaupavegalengdina og aðstæðurn-
ar í eitthvert samhengi má benda á
að til að klára 100 km á venjulegri
hlaupabraut, eins og á Varmár-
vellinum, þarf að hlaupa hringinn
250 sinnum! Mesta hættan í svona
hlaupum er að fara of hratt af stað
og þess vegna einsettu félagarnir
sér að hlaupa aldrei meira en 8 km
á hverri klukkustund. Í lok hverrar
klukkustundar gengu alltaf nokkrar
mínútur af, sem voru þá vel nýttar
fyrir stutta hvíld og nesti. Hlaup-
ið hófst kl. 6 um morguninn og
100 km voru að baki nákvæmlega
12:40:22 klst. síðar, þ.e. stundvís-
lega kl. 18:40:22.
Að endingu má benda á reikn-
ingsnúmer Píeta-samtakanna:
Kt: 410416-0690. Reikn nr.
0301-26-041041.
Stefán Gíslason
Ljósm. Guðmundur Freyr Jónsson
Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftinga-
kona sigraði í kvennaflokki í klass-
ískum kraftlyftingum á Reykja-
víkurleikunum sem fram fóru um
helgina. Keppni fór fram í Sport-
húsinu í Kópavogi en var að þessu
sinni innanlandsmót en erlendir
keppendur urðu að hætta við þátt-
töku vegna Covid-19.
Kristín náði góðum árangri á
mótinu og varð stigahæsti keppandi
mótsins. Átta af níu lyftum henn-
ar voru gildar. Hún bætti sig í öll-
um greinum og í samanlögðu auk
þess sem hún setti níu Íslandsmet
á mótinu. Kristín lyfti samanlagt
516,5 kílóum. Hún tók mest 201
kíló í hnébeygju, 108 kíló í bekk-
pressu og 207,5 í réttstöðulyftu.
arg
Börkur (nr. 1191) og Gunnar (nr.
1192) kappklæddir í kuldanum á
laugardaginn með tveimur hlaupa-
félögum sem fylgdu þeim hluta
leiðarinnar.
Hlupu 100 km fyrir Píetasamtökin
Gunnar (nr. 1192) með einum af fjölmörgum hlaupafélögum sem hlupu með þeim
Berki á laugardaginn til styrktar Píeta-samtökunum. Eins og glöggir lesendur
sjá er hringurinn þarna hlaupinn réttsælis, en annars eru hlaupabrautir jafnan
hlaupnar rangsælis. Þegar hlaupnir eru 250 hringir á vellinum á einum degi er
hins vegar góð hugmynd að skipta um hlaupastefnu annað slagið.
Kristín Þórhallsdóttir
setti níu ný Íslandsmet á
Reykjavíkurleikunum um
helgina.
Ljósm. Kraftlyftingasam-
band Íslands
Kristín
stigahæsti
keppandinn
á Reykjavíkur-
leikunum