Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2021, Side 13

Skessuhorn - 24.02.2021, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 13 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli Lagnaþjònusta Vesturlands ehf. Alhliða þjónustufyrirtæki á sviði pípulagna Sendu okkur verkbeiðni à lagnavest@gmail.com eða hafðu samband við okkur í síma 787-2999 Ljósmæður og starfsfólk fæðing- arþjónustu Landspítala tóku í síð- ustu viku á móti fyrstu Köku árs- ins 2021. Það var Landssamband bakarameistara sem að venju efndi til árlegrar keppni um Köku ársins. Sigurvegari í keppninni var Garð- ar Sveinn Tranberg, bakarameist- ari hjá Bakarameistaranum, og er kaka Garðars Góu hraunkaka með karamellumús og ferskju- og ástar- aldinfrómas. Sala á kökunni hófst svo í bakaríum félagsmanna Lands- sambands bakarameistara síðastlið- inn fimmtudag í tilefni konudagsins sem var sunnudaginn á eftir. mm Í gær kom út önnur útgáfa af Áfanga- staðaáætlun Vesturlands sem gildir fyrir árin 2021-2023. Í henni er sett fram áætlun um áherslur, uppbygg- ingu og þróun ferðamála í lands- hlutanum næstu þrjú árin. Um er að ræða nokkurs konar stefnumót- un og verkefnaáætlun sem nýtist jafnt fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum sem láta sig málin varða. Skýrslan er einungis gefin út á raf- rænu formi og hægt er að nálgast hana á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi; ssv.is Í inngangi Áfangastaðaáætlunar kemur fram að hún sé gerð að frum- kvæði stjórnvalda, en unnin af stoð- þjónustu ferðamála á Vesturlandi og í góðu samstarfi við sveitarfélög, heimafólk og hagaðila. „Sambæri- leg vinna við áfangastaðaáætlun fer fram í öllum landshlutum,“ segir Margrét Björk Björnsdóttir sviðs- stjóri áfangastaða- og markaðsmála hjá SSV sem jafnframt veitir Mark- aðsstofu Vesturlands forstöðu. „Markmiðið með áfangastaðaáætl- un er að móta sameiginlega sýn og samræmdar áherslur varðandi stýr- ingu, skipulag og stefnu um þróun ferðamála og uppbyggingu inn- viða á tilgreindu svæði, og hér er unnið með Vesturland. Þarna er að finna framkvæmdaáætlun um þau verkefni sem vilji er til að vinna að næstu þrjú ár. Við gerð fyrstu áætlunarinnar, sem kom út í janúar 2019, var lögð áhersla á að ná góðri yfirsýn yfir stöðu mála á hverju svæði og styðjumst við áfram við þá greiningu sem unnin var þá, því það er mjög erfitt að greina ástand ferðamála eins og staðan er í dag. Nýjar kannanir um stöðu ferða- þjónustunnar eru eðli málsins sam- kvæmt ekki til að byggja á, þar sem ferðamenn hafa lítið verið á ferð- inni síðastliðið ár og ástandið mjög órætt og mismunandi hvað varðar stöðu og rekstur ferðaþjónustufyr- irtækja. en annað sem sett var fram í fyrri áætlun breytist lítið, svo sem náttúran og byggðamynstur, sér- staða, sérkenni og menning svæðis- ins. Í vinnu okkar við þau verkefni sem sett voru fram í síðustu áætlun, svo sem mörkun ferðaleiða á öllum svæðum, hefur einnig verið mörk- uð stefna um áherslur í innviða- uppbyggingu og þróun ferðamála. Með vitneskju um þennan vilja og áherslur varðandi fjölmarga þætti sem snúa að ferðamálum er hægt að vinna markvisst að aukinni sam- vinnu með áherslu á sérstöðu lands- hlutans og eflingu allra svæða.“ Dvelji lengur og njóti Í áfangastaðaáætlun er mörkuð stefna og settar fram þær áherslur og leiðir sem fyrirhugað er að hafa að leiðarljósi við uppbyggingu, framþróun og stýringu á hinum ýmsu ferlum sem hafa áhrif á og ráða þróun og gæðum áfangastað- arins og atvinnugreinarinnar á um- ræddu svæði. „Okkar markmið er að fá ferðafólk til að dvelja lengur og njóta lífsgæðanna í landshlut- anum. Með því að setja þetta fram með formlegum hætti eins og hér er gert stuðlar áætlunin að jákvæð- um framgangi ferðamála, sam- ræmdri uppbyggingu innviða og virkri vöruþróun, en er um leið góður grunnur að aukinni sam- kennd, samráði og samstarfi á Vest- urlandi.“ Aðspurð segir Margrét Björk um næstu skref, að nú fari af stað kynning á nýrri áfangastaðaáætl- un og að áhersla sé á að kalla eft- ir virku samtali, samráði og sam- starfi við hagaðila ferðamála á öll- um svæðum á Vesturlandi til að vinna að framgangi þeirra verkefna sem sett eru fram í áætluninni. eft- ir nokkra daga er stefnt að undir- ritun samnings við ferðamálaráðu- neytið um rekstur Áfangastaðastofu Vesturlands. „Við munum kynna það nánar þegar þar að kemur. Ég hvet hins vegar fólk til að kynna sér nýja Áfangastaðaáætlun. Í henni má m.a. finna áfangastaðaverkefni sem lúta að innviðauppbyggingu en einnig áherslu- og þróunarverkefni sem unnin verða með grasrótinni á hverju svæði og snúa að framþróun ferðaþjónustunnar á Vesturlandi.“ Stilla saman strengi Þá segir Margrét Björk að með áfangastaðaáætlun og stofnun Áfangastaðastofu sé verið að leggja meiri áherslu á stoðþjónustu og ráðgjöf varðandi þróun og gæði ferðamála og eflingu áfangastað- arins Vesturlands. „Auk þess erum við að halda áfram að efla markaðs- setningu og kynningu á Vesturlandi sem eftirsóknarverðum áfangastað til að dvelja og njóta. Mikilvægt er að allir sem málið varðar vinni markvisst að þessum verkefnum með virku samstarfi. Því leggjum við áherslu á að efla samstarf við sveitarfélög og hagaðila ferðamála á Vesturlandi. Við viljum efla þró- unarvinnu með ferðaþjónustunni sjálfri og köllum því eftir virku sam- tali og samstarfi við hagaðila ferða- þjónustunnar og hvetjum alla til að skrá sig í samstarf með okkur til að taka þátt í þessum verkefnum. Þetta er því mikilvægt plagg sem hjálpar okkur til að stilla saman strengi og vinna saman að uppbyggingu og þróun áfangastaðarins Vesturlands til að við getum glöð tekið á móti gestum þegar ferðafólk fer aft- ur að streyma til landsins eftir kó- vid. Leiðarljósið okkar er að byggja upp og fá til okkar góða gesti sem geta ferðast um svæðið okkar og notið allra þeira listisemda og lífs- gæða sem hér eru „Vesturland – til að dvelja og njóta,“,“ segir Margrét Björk að lokum. mm Byggðarráð Borgarbyggðar sam- þykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að fela sveitarstjóra að afla tilboða í úttekt á gamla slát- urhúsinu í Brákarey og leggja fyr- ir næsta fund byggðarráðs. eins og fram kom í fréttum í síðustu viku var umferð og notkun í húsunum Brákarbraut 25 og 27 bönnuð frá og með laugardeginum 13. febrúar vegna alvarlegra athugasemda um ástand hússins m.t.t. brunavarna og öryggis. Í skýrslum eldvarnaeftir- litsmanns og byggingafulltrúa, sem birtar voru með fundargerð byggð- arráðs, koma fram alvarlegar at- hugasemdir við ýmsa galla vegna ástands húsanna sem um ræð- ir. Ljóst er að ráðast þarf í miklar og kostnaðarsamar framkvæmd- ir ef leyfa má starfsemi í húsunum að nýju. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudaginn að byrjað verði á því að kostnaðarmeta þær endurbætur á húsnæðinu sem nauðsynlegt er til að tryggja öryggi þannig að mögulegt verði að heim- ila starfsemi að nýju í húsunum. Í kjölfar þeirrar úttektar verði hald- inn fundur með öllum leigjendum ásamt byggðarráði þar sem rædd verði málefni hvers leigjanda fyr- ir sig. Þá kom fram í bókun á fundi byggðarráðs að byggingafulltrúi hefur heimilað að leigjendur sem þurfi að komast inn í húsnæðið að Brákarbraut 25 og 27 geti haft sam- band við Ámunda Sigurðsson, verk- stjóra í áhaldahúsinu. Leigjendur geta haft samband við hann þegar þeir þurfa að fara inn og sömuleiðis verða þeir að láta hann vita þegar þeir eru komnir út. Ámundi mun halda skrá yfir ferðir í húsnæðið að beiðni byggingarfulltrúa. mm Ljósmæður tóku á móti fyrstu Köku ársins Á myndinni eru, talið frá vinstri; Helgi Vilhjálmsson forstjóri Góu, María Guðrún Þórisdóttir yfirljósmóðir, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Garðar Sveinn Tranberg bakarameistari og Sigurbjörg Sigþórsdóttir formaður Landssambands bakarameistara. Ljósm. bíg. Áfangastaðaáætlun Vesturlands komin út Ætla að kostnaðarmeta nauðsynlegar lagfæringar í Brákarey

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.