Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2021, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 24.02.2021, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 31 Snæfell spilaði tvo leiki í Domino‘s deild kvenna í körfubolta síðustu viku. Á miðvikudaginn mætti liðið Keflavík í Hólminum. Liðin fylgd- ust að í jöfnum fyrsta leikhluta en eftir það fóru gestirnir að skilja sig hægt og örugglega frá heimakon- um og unnu með 12 stigum, 91-79. Í liði Snæfells var emese Vida at- kvæðamest með 22 stig og 18 frá- köst, Haiden Denise Palmer var með 16 stig, 15 fráköst og sex stoð- sendingar og Tinna Guðrún Alex- andersdóttir og Anna Soffía Lárus- dóttir voru með tólf stig hvor en aðrar skoruðu minna. Atkvæða- mest í liði Keflavíkur var Daniela Wallen Morillo með 37 stig og 17 fráköst. Þá mætti Snæfell KR á sunnu- daginn þar sem KR sigraði sinn fyrsta leik í vetur. KR konur voru fljótar að setja tóninn í leiknum og voru komnar í stöðuna 9-0 þegar þrjár mínútur voru búnar af leikn- um. Hólmarar gáfu þá allt í leik- inn og hleyptu Vesturbæingum ekki langt frá sér en náðu þó ekki að jafna og lokatölur 78-74 KR í vil. Anna Soffía Lárusdóttir stiga- hæst í liði Snæfells með 22 stig og sjö fráköst, Tinna Guðrún Alex- andersdóttir skoraði 16 stig og tók fimm fráköst, Haiden Denise Pal- mer skoraði 15 stig, tók sjö fráköst og gaf átta stoðsendingar en aðrar skoruðu minna. Í liði KR var Ann- ika Holopainen atkvæðamest með 33 stig og 16 fráköst. Næsti leikur Snæfells er þeg- ar liðið tekur á móti Skallagrími í Vesturlandsslag í kvöld kl. 19:15. Skallagrímur hafði betur gegn Fjölni þegar liðin mættust í Fjós- inu í 1. deild karla í körfubolta á föstudaginn. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en rétt áður en fyrsti leikhluti kláraðist náðu Fjölnismenn fjögurra stiga forystu, 17-13. Í byrjun annars leikhluta komst Fjölnir níu stig- um yfir en þá ýttu Borgneingar á bensíngjöfina og gáfu allt í leik- inn og voru komnir fimm stig- um yfir þegar gengið var til klefa í hálfleiks. Í síðari hálfleik réðu Skallagrímsmenn öllu á vellin- um og silgdu örugglega fram úr Fjölnismönnum og náðu góðum 17 stiga sigri, 84-67. Atkvæðamestur í liði Skalla- gríms var Marques Oliver með 23 stig og 16 fráköst, Kristófer Gísla- son var með 22 stig og sex fráköst, Marinó Þór Pálmason var með 18 stig, Kristján Örn Ómarsson var með átta stig, Hjalti Ásberg Þor- leifsson skoraði fimm stig, tók níu fráköst og gaf fimm stoðsend- ingar, Benedikt Lárusson skoraði fimm stig og Davíð Guðmunds- son skoraði þrjú stig. Matthew Carr Jr. var atkvæða- mestur í liði Fjölnis með 40 stig og ellefu fráköst, Johannes Dol- ven skoraði 14 stig og tók 17 frá- köst, Karl Ísak Birgisson og Vikt- or Máni Steffensen skoruðu fjög- ur stig hvor, Hlynur Breki Harð- arson skoraði þrjú stig og Daní- el Bjarki Stefánsson skoraði tvö stig. Skallagrímur situr í sjötta sæti deildarinnar með átta stig eft- ir níu leiki. Næst leikur liðið við Hamar í Hveragerði á föstudag- inn, 26. febrúar, kl. 19:15. arg/ Ljósm. Skallagrímur Pútthópur eldri borgara í Borgar- byggð, undir forystu Ingimund- ar Ingimundarsonar, varð skyndi- lega húsnæðislaus, þegar loka þurfti púttvellinum í Brákarey 13. febrúar síðastliðinn. Ingimundur segir að slíkt slái áhugasama golfara ekki út af laginu. „Við sömdum við Golf- klúbbinn Leyni um að fá æfinga- aðstöðu í húsi þeirra á Garðavöll- um á Akranesi einu sinni í viku. Við mætum þar í fyrsta sinn á morgun, fimmtudag kl. 11.00 - 13.00,“ segir Ingimundur. mm Skallagrímur lék tvo leiki í Dom- ino‘s deild kvenna í körfubolta í vik- unni. Fyrst mætti liðið KR í Borg- arnesi á miðvikudaginn. Skalla- grímskonur náðu yfirhöndinni strax í fyrsta leikhluta. KR-ing- ar virtust ekki eiga nein ráð gegn sterku liði Skallagríms og sigruðu Borgnesingar örugglega með 67 stigum gegn 53. Í liði Skallagríms var Sanja Orozovic atkvæðamest með 18 stig, tíu fráköst og sex stoð- sendingar. Nikita Telesford skor- aði 16 stig. tók níu fráköst og gaf fimm stoðsendingar, embla Krist- ínardóttir var með 12 stig, fimm fráköst og fimm stoðsendingar en aðrar skorðu minna. Í liði KR var Taryn Ashley Mc Cutcheon stiga- hæst með 17 stig og níu stoðsend- ingar. ekki gekk Skallagrímskonum eins vel á sunnudaginn þegar þær tóku á móti Valskonum í Fjós- inu. Gestirnir tóku stjórnina strax í fyrsta leikhluta og Borgnesing- ar náðu lítið að gera til að halda í við Valskonur sem gjörsigruðu með 91 stigi gegn 65. Í liði Skallagríms var Keira Robinson stigahæst með 20 stig, Sanja Orozovic skoraði 18 stig og tók tíu fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði sjö stig en aðrar skoruðu minna. Í liði Vals var Kiana Johnson atkvæðamest með 32 stig og sjö stoðsendingar. Skallagrímur er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig. Næsti leikur Skallagríms er Vesturlands- slagur gegn Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld, miðvikudag, kl. 19:15. arg/ Ljósm. Skallagrímur Karlalið Víkings Ólafsvík lék sinn annan leik í Lengjubikarn- um í Akraneshöllinni á laugardag- inn, nú gegn KA. Víkingar töp- uðu stórt fyrir úrvalsdeildarliðinu, með fimm mörkum gegn engu. Staðan í hálfleik var 0:1 með marki Nökkva Þeys Þórissonar. en í upphafi síðari hálfleiks bætti Ásgeir Sigurgeirsson öðru marki við. eftir um klukkutíma leik varð Alex Bergmann Arnarsson fyr- ir því óhappi að skora sjálfsmark. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði ann- að mark sitt og fjórða mark KA í leiknum um miðjan hálfleikinn. Tveimur mínútum fyrr leikslok skoraði Jonathan Hendrickx síð- an fimmta og síðasta mark norð- anmanna. Víkingar töpuðu fyrsta leik sín- um í Lengjubikarnum gegn Aftur- eldingu í Mosfellsbæ 0:3. en næsti leikur þeirra verður gegn Íslands- meisturum Vals á Hlíðarenda, næstkomandi sunnudag. se Skagaliðin ÍA og Kári áttu leiki í Lengjubikarkeppninni í knatt- spyrnu karla síðastliðið föstudags- kvöld. Þar hafði knattspyrnufélag- ið Kári sigur gegn ÍH, en ÍA tap- aði leik sínum við Stjörnuna. Góður sigur Kára Káramenn byrjuði vel í B-deild karla í Lengjubikarnum með öruggum sigri gegn ÍH 4:1 í Akra- neshöllinni á föstudagskvöldið. Það var Breki Þór Hermannsson sem kom Káramönnum á bragð- ið með opunarmarkinu á 20. mín- útu. Aðeins þremur mínútum síð- ar kom Andri Júlíusson Kára í 2:0 með marki úr vítaspyrnu. ÍH minnkaði muninn skömmu fyr- ir lok fyrri hálfleiks en Garð- ar Gunnlaugsson kom Kára í 3:1 í upphafi síðari hálfleiks og um miðjan hálfleikinn urði ÍH menn fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Öruggur sigur Kára var í höfn. Næsti leikur Kára í Lengjubikarn- um er gegn Augnabliki í Akranes- höllinni laugardaginn 6. mars nk. Tap gegn Stjörnunni ÍA tapaði 0:2 fyrir Stjörnunni í leik í annarri umferð Lengjubikarsins sem fram fór á Samsung vellinum í Garðabæ sömuleiðis á föstudags- kvöldið. Stjörnumenn byrjuðu leik- inn betur og náðu forystunni strax á 10. mínútu leiksins með marki Trist- ans Freys Ingólfssonar og bættu síð- an öðru marki við á 27. mínútu þeg- ar Hilmar Árni Halldórsson skor- aði af stuttu færi. ekki batnaði staða gestanna þegar Inga Þór Sigurðs- syni var vísað af velli með sitt annað gula spjald á 41. mínútu leiksins. en Skagamönnum til hróss þá voru þeir mjög skipulagðir í leik sínum einum færri í síðari hálfleik. Fengu Stjörnu- menn nánast engin alvöru færi til þess að bæta við mörkum og kom- ust Skagamenn reyndar næst því að skora og minnka muninn á lokamín- útunum þegar markvörður Stjörn- unnar varði með tilþrifum auka- spyrnu Gísla Laxdals Unnarsson rétt utan vítateigs. Næsti leikur Skaga- manna í Lengjubikarnum er gegn Vestra frá Ísafirði í Akraneshöllinni föstudagskvöldið 5. mars nk. se Erfið vika hjá Snæfelli Snæfell í leik gegn Fjölni í síðasta mánuði. Ljósm. sá Góður sigur Borgnesinga á föstudaginn Sigruðu KR örugglega en töpuðu stórt fyrir Val Ingimundur ásamt hluta pútthóps eldri borgara. Ljósm. úr safni/mm Púttarar í Borgarbyggð bruna nú á æfingar á Akranes Tap og sigur Skagaliða í Lengjubikarnum Tap hjá Víkingi Ólafsvík gegn KA

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.