Skessuhorn - 24.02.2021, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 19
Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu
við sóttvarnalækni hefur útbúið
bólusetningardagatal vegna Co-
vid-19, miðað við fyrirliggjandi
upplýsingar um afhendingu bólu-
efna og áætlanir þar að lútandi.
Dagatalinu er ætlað að gefa fólki
vísbendingu um hvenær líklegt er
að bólusetning hefjist í einstökum
forgangshópum. Dagatalið er birt
með fyrirvara, enda að hluta til
um áætlun að ræða sem mun taka
breytingum. Gangi forsendur eftir
lýkur bólusetningu gegn Covid-19
hér á landi fyrir lok júní næstkom-
andi.
Þrjú bóluefni eru með markaðs-
leyfi og í notkun hér á landi. Þetta
eru bóluefni Pfizer, AstraZeneca
og Moderna. Fyrir liggur staðfest
áætlun um afhendingu þessara lyfja
til loka mars. Þá liggur einnig fyrir
að þessir framleiðendur áforma að
hafa fyrir lok júní afhent bóluefni
fyrir samtals 190.000 einstaklinga.
Áætlun um þrjú bólu-
efna til viðbótar
Á grundvelli evrópusamstarfs hef-
ur Ísland gert samninga um kaup
á Curavac og Janssen til viðbót-
ar þeim þremur efnum sem þegar
eru komin með markaðsleyfi. Þá er
evrópusambandið að ljúka samn-
ingi um bóluefni Novavax sem Ís-
land fær hlutdeild í. Öll þessi lyf
eru komin í áfangamat hjá evr-
ópsku lyfjastofnuninni og þess
vænst að þau fái markaðsleyfi innan
tíðar. Í samningum um þessi bólu-
efni kemur fram hve mikið fram-
leiðendur þeirra áætla að geta af-
hent á öðrum ársfjórðungi, þ.e. fyr-
ir lok júní. Bólusetningardagatal-
ið tekur mið af þessum upplýsing-
um en gögn hvað þetta varðar eru
birt með fyrirvara um að markaðs-
leyfi liggja ekki fyrir og staðfestar
afhendingaráætlanir ekki heldur.
Reglubundin uppfærsla
bólusetningardagatal
Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu
við sóttvarnalækni mun uppfæra
bólusetningardagatal eftir því sem
bólusetningunni vindur fram og
eftir því sem nýjar upplýsingar
berast um bóluefni og afhendingu
þeirra.
mm
Á aðalfundi Knattspyrnufélags ÍA
síðastliðinn fimmtudag voru þrír
nýir stjórnarmenn kosnir inn í níu
manna stjórn félagsins. Magnús
Guðmundsson lét af formennsku
eftir sjö ára setu og við keflinu tók
eggert Herbertsson, fimmtugur
einarður áhugamaður um knatt-
spyrnu. Auk hans komu ný í stjórn
Brandur Sigurjónsson og Lára
Dóra Valdimarsdóttir auk þess sem
Ívar Orri Kristjánsson tók sæti í
barna- og unglingaráði.
Í samtali við Skessuhorn kveðst
eggert vera spenntur fyrir nýju
verkefni og áskorun, en hann er ekki
alveg ókunnur slíku starfi. „Ég hef
reyndar einu sinni áður gegnt starfi
formanns knattspyrnufélags. Það
var í heimabyggð minni Ólafsvík
og félagið var Víkingur. Þar kynnt-
ist ég því að starfa í áhugamanna-
félagi en lét svo af formennsku þar
þegar ég hóf nám í Háskólanum á
Bifröst hausti 1997.“ eggert segir
að áhuginn fyrir enska boltanum
hafi sífellt verið að ágerast. „Bestu
stundir lífs míns eru þegar liðið
mitt Liverpool sigrar andstæðinga
sína. Þegar ég flutti á Akranes fyr-
ir sautján árum var það svo nánast
sjálfgefið að halda með ÍA í boltan-
um og lít ég svo á að ímynd Akra-
ness og ÍA sé algjörlega samofið í
huga landsmanna. Því skiptir ár-
angur í knattspyrnunni máli bæði
inná við í samfélaginu sem og útá-
við. Allir þekkja ÍA, þessa gulu og
glöðu,“ segir eggert.
Formaður leiðir
fólk saman
Þegar rætt var við eggert á mánu-
daginn var hann rétt að klára af-
mælisfrí, en hann varð fimmtugur
fyrr í mánuðinum. Ingibjörg Valdi-
marsdóttir framkvæmdastjóri Rit-
ari er eiginkona hans en saman eiga
þau og reka ferðaþjónustufyrirtæk-
ið StayWest. eggert er auk þess
hluti af stjórnendateymi Tölvu-
þjónustunnar ehf. Börnin eru að
vaxa úr grasi og segist eggert ekki
kvíða því að nýtt hlutverk formanns
ÍA setji allt á hliðina hjá sér. „Störf
að félagsmálum eru yfirleitt gefandi
og skemmtileg, ekki síst þegar þau
tengjast svona með beinum hætti
áhugamálinu. Hlutverk formanns
er að leiða fólk saman til lausna.
engu að síður er í stóru og fjöl-
mennu félagi eins og KFÍA margs
að gæta. Allir þurfa að vera meðvit-
aðir um jafnan hlut kynjanna í æf-
ingum og keppni, æskulýðsstarfið
er mikilvægt ekki síður en afreks-
starfið. Það þarf að samhæfa störf
allra til að starf í fjölmennu félagi
gangi eins vel og kostur er,“ segir
eggert. Hann undirbýr nú fyrsta
stóra verkefni sitt sem formaður,
en um næstu helgi verður ársþing
KSÍ haldið og að sjálfsögðu með
þátttöku KFÍA.
Byggja upp á
öllum vígstöðvum
eggert segist taka við góðu búi
í félaginu. „Það tókst með ótrú-
lega samstilltu átaki margra á síð-
asta ári að snúa tapi í rekstri KFÍA
við og félagið var gert upp með lít-
ilsháttar hagnaði nú um áramót-
in. „Það er ótvíræður varnarsig-
ur að mínu áliti. Félagið býr vel af
að hafa ráðið Geir Þorsteinsson í
starf framkvæmdastjóra fyrir um
ári síðan og mér finnst hann hafa
verið að blómstra í því. Auðvitað
hefur hann ekki verið í neinni vin-
sældakosningu innan félagsins þeg-
ar þurft hefur að skera niður kostn-
að hvarvetna, lækka laun og selja
frá félaginu efnilega leikmenn.
en þetta er það sem til þurfti og
nú er framundan að byggja áfram
upp félagið á öllum vígstöðvum.
Ég bara hlakka til þess ásamt öðr-
um í stjórn, iðkendum, foreldrum,
starfsfólki félagsins og samfélaginu
hér á Akranesi,“ segir eggert að
endingu.
mm
„Tek við spennandi og krefjandi verkefni“
Eggert Herbertsson kosinn formaður Knattspyrnufélags ÍA
Þau Eggert og Ingibjörg reka saman ferðaþjónustufyrirtækið StayWest sem þau
eru hér að kynna á ferðakaupstefnu fyrir nokkrum árum. Ljósm. úr safni.
Eggert Herbertsson.
Bólusetningardagatal vegna Covid-19
Hér má sjá áætlun um bólusetningu landsmanna. Fyrir lok júní er gert ráð fyrir að flestir hafi fengið bóluefni.Bólusett.